Morgunblaðið - 20.07.1986, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
Maradona skrifar undir samning við argentínska stórliðið
Boca Juniors á öndverðu ári 1981. Áður hafði hann spilað
með Argentinos Juniors en var nú orðinn of dýr fyrir það
félag. Frá Boca fór Maradona árið 1982 til Barcelona á Spáni.
Eftir fyrstu kynni sín af spænskri knattspyrnu lýsti Maradona
þvi yfir að hún væri alltof gróf. Hann kvaðst vera logandi
hræddur um að verða einn daginn sparkaður svo illa niður
að hann ætti ekki afturkvæmt á fótboltavöllinn.
Hamingjurík stund f lífi Diego Maradona, heimsmeistaratitillinn f höfn. Það var
á fárra vitorði að Argentínumaðurinn snjalli gekk ekki heill til skógar í Mexí-
kó. Nokkru fyrir heimsmeistarakeppnina átti að skera hann upp vegna meiðsla
á kné en Maradona sagði nei; Mexíkó fyrst, hnifurinn svo.
besta
„Brasilía
liðið
Diego Maradona 1980, þá tvítugur,
en það ár var hann kosinn knatt-
spyrnumaður ársins f Suður-
Ameríku.
en Maradona besti
knattspymumaðimnn“
Á nýafstöðnu heimsmeistaramóti í knatt-
spyrnu, sem haldið var í Mexíkó, urðu margir
til að nefna guð og helstu stjörnu argentínska
knattspyrnulandsliðsins, Diego Maradona, í
sömu andránni. Argentínumenn lofuðu himna-
föðurinn fyrir að Maradona skyldi vera af réttu
bergi brotinn, nefnilega argentínsku, og af
orðum snillingsins sjálfs varð ekki annað ráðið
en að almættið hefði hönd í bagga með marka-
skorun hans.
Næstbestir voru Frakkar en
heimsmeistaramir voru í þriðja
sæti hjá strákunum. Piltamir
vildu þakka það fyrst og fremst
seiglu og baráttugleði Þjóðveij-
anna hversu langt þeir náðu í
keppninni. Þegar hér var komið
skaut blaðamaður inn athuga-
semd: „En hvað með Englend-
inga?“ Strákamir sögðust ekki
vera mjög hrifnir af þeirri knatt-
spymu er þeir spiluðu, mikið væri
byggt upp á köntunum og löngum
sendingum.
En hver var þá að dómi strá-
kanna besti leikmaður keppninn-
ar. Svarið var afdráttarlaust:
Maradona var langbestur. Hans
var vel gætt í heimsmeistarkeppn-
inni „82“, sögðu strákamir, en
núna bjuggust menn kannski ekki
við neinu sérstöku af honum, við
það varð heldur rýmra um hann
á vellinum og hann fékk að njóta
sín. Það var greinilegt að piltam-
ir kunnu góð deili á Maradona,
einn þeirra vissi jafnvel nafn eig-
inkonu hans.
Nú ætlaði blaðamaðurinn að
setja punkt eftir efninu en hann
komst ekki upp með neitt múður.
Strákamir vildu óðir og uppvægir
að hann prófaði kunnáttu þeirra
í fræðunum og það var ekki aldeil-
is komið að tómum kofanum hjá
þeim. Þeir höfðu horft á allar
beinu útsendingamar frá heims-
meistaramótinu og það var sama
um hvað var spurt, svörin létu
ekki á sér standa.
Hæf ileikar Mara-
dona dregnir í efa
Englendingar tóku orð Mara-
dona, um samvinnu hans og guðs,
óstinnt upp enda urðu þeir illa
fyrir barðinu á henni. Raunar
virðast sumir enskir íþróttafrétta-
ritarar löngum hafa haft hom í
síðu Argentínumannsins iitla
Árið 1981, þegar Maradona
var lánaður til Boca Juniors frá
Argentinos Juniors, skrifaði einn
blaðamaður hins þekkta tímarits
„WORLD SOCCER", um Mara-
dona, að hann væri að vísu
geysilega efnilegur en líklega yrði
hann ekkert umfram það. Þessa
skoðun sína studdi blaðamaðurinn
þeim rökum að Maradona væri
orðinn alltof ríkur, hann hefði því
ekki að neinu að keppa og hlyti
að staðna.
Árið 1984 spilaði Manchester
United við spænska liðið Barcel-
ona, en Maradona hafði gengið
til liðs við það tveimur ámm áð-
ur. Sem fyrr var blaðamaður
„WORLD SOCCER" afskaplega
neikvæður í garð Maradona og
raunar alls spænska liðsins. í hans
augum var Maradona sem fiskur
á þurru landi og auk þess í alltof
háum launaflokki, en þann dóm
fengu allir samheijar hans í Barc-
elonaliðinu einnig.
Frammistaða Argentínu-
mannsins í Mexíkó verður þó
líklega til þess að jafnvel Englend-
ingar neyðast til að viðurkenna
snilld hans á knattspymuvellin-
um. En hvað skyldu íslenskir
knattspymumenn hafa að segja
um nýafstaðið heimsmeistaramót
og Maradona?
Brasilíumenn bestir
Til að fræðast um svör nokk-
urra knattspymumanna hérlendra
við þessum spumingum brá blaða-
maður sér á æfíngu hjá flórða
flokki Vals að Hlíðarenda.
Fyrsta spumingin var auðvitað
þessi sígilda; hveijir vom bestir?
Svarið var einróma, Brasilíumenn.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti þessa frisku stráka þar sem þeir voru að spila knattspymu á
Hlíðarenda. Þeir eru allir i 4. flokki. Lengst tíl vinstri er þjálfari piltanna, Sævar Tryggvason, en
aðrir í efri röðinni eru, taldir út frá Sævari: Halldór HaOdórsson, Friðrik S. Gylfason, Þórarinn
Ólafsson, Ólafur Tryggvason, Fídel H. Gunnarsson og Þormar Þorbergsson. í neðri röðinni eru,
talið frá vinstri: Júlíus Axelsson, Sveinn Sigfinnsson, Friðrik E. Jónsson, Friðbjöm Karlsson, Ólaf-
ur Sveinsson og Konráð Jónsson.