Morgunblaðið - 20.07.1986, Page 5
MORGUNBLAÐÍÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
B 5
Farþegar með Norrönu
aldrei fleiri en í ár
ÞAÐ VAR mikið um að vera á
Seyðisfirði á fimmtudagsmorgun
þegar feijan Norröna kom til
hafnar rétt fyrir kl. 9.00. Mikill
fjöldi bila var i bænum og gang-
andi fólk hvert sem litið var. Að
sögn Jónasar Hallgrímssonar
umboðsmanns feijunnar á Seyð-
isfirði hafa farþegar með feij-
unni aldrei verið fleiri en nú í
sumar, en í fyrra flutti Nörröna
5.600 farþega. Gert er ráð fyrir
a.m.k. 10% farþegaaukningu á
þessu sumri.
Með Norrænu á fímmtudag komu
milli 8-900 farþegar og 230 bílar.
íslendingar eru Qölmennastir þeirra
sem ferðast með skipinu og að sögn
Jónasar voru þeir rúmlega 1.700 í
"'iiimum
Ú • 'yjGPk I
NOSr.CNA
Morgunblaðið/Garðar Rúnar
Norröna leggst við bryggju á
Seyðisfirði.
Blaðamaður tók nokkra ferða-
langa tali og voru sumir á heimleið
eftir 2-3 vikna dvöl á Islandi. Allir
íétu þeir vel af landi og þjóð, enda
hefur veður verið með besta móti
að undanfömu. Jean Nelson,
kanadísk kona, sagðist hafa hjólað
ásamt fleirum frá Reykjavík til
Egilsstaða og ferðalagið hefði í einu
Ferðamenn í biðröð við tollskoðunina.
orði sagt verið frábært. Einu sinni
hefði þau orðið að leita skjóls í
sæluhúsi skammt frá Höfn, vegna
úrhellisrigningar. 30 manna hópur
Þjóðveija sem var að koma með
feijunni sagðist ætla að keyra
hringinn í kringum landið á einni
viku og gista á Edduhótelum. Það
fólk sagði ísland svo dýrt land að
ferðast um að þessvegna yrði vika
að duga. Þau sögðust vera með eins
mikið af niðursoðnum mat með-
ferðis og lög lejrfðu.
íslenskur ferðalangur, Guð-
mundur I. Leifsson, sagðist vilja
koma með ábendingu til þeirra að-
ila sem stæðu fyrir komu erlendra
ferðamanna til landsins um að þeir
hefðu einhvem um borð til að leið-
beina og veita upplýsingar, t.d. um
ástand ij’allvega. Guðmundur var
að sigla með Norrænu í annað sinn
og bætti því við að aðbúnaður væri
allur hinn besti og skipið gott í sjó.
Siglingar Norrænu til Seyðis-
fjarðar setja mark sitt á_ bæjarlífíð
eins og nærri má geta. Á miðviku-
dögum í viku hverri streyma til
bæjarins bílar, merktir hinum ýmsu
þjóðlöndum, fólk á mótórhjólum og
reiðhjólum, langferðabílar fullir af
fólki og gangandi folk með bak-
poka. Farfuglaheimilið á Seyðis-
fírði, gistiheimilið, hótelið og
tjaldstæðin fyllast þá af fólki. Úti-
markaður er í miðbænum á þessum
feijudögum og verslanir opnar leng-
ur en venja er.
Á þeim 3-4 klukkustundum sem
Norræna stoppar í höfn á Seyðis-
fírði sjá 15 konur á staðnum um
þrif á skipinu, sem m.a. felast í því
að skipta um rúmföt í kojum og
að þessu sinni þurfti að skipta á
liðlega 800 slíkum.
fyrra. Af erlendum ferðamönnum
sem koma til landsins með skipinu
eru Þjóðveijar fjölmennastir og því
næst Danir. Tiltölulega fáir Færey-
ingar sigla til íslands með Norrænu
og taldi skipstjórinn, Amaliel
Knudsen, skýringuna á því vera að
veðurfar í Færeyjum og á íslandi
væri heldur svipað, og færu Færey-
ingar því heldur suður á bóginn í
sumarleyfí. Jónas sagði að þeir
ferðamenn sem kæmu til landsins
væru vel upplýstir um landið, nátt-
úru þess og annað sem nauðsynlegt
væri að fólk vissi. Hann sagði að
útgáfa bæklinga hefði stóraukist
og allir sem í Iand kæmu fengju
afhenta upplýsingabæklinga þar
sem m.a. er varað við hinum ýmsu
hættum sem á vegi kunna að verða.
Það er alltaf mikill viðbúnaður á
hafnarsvæði Seyðisfjarðar á
fímmtudagsmorgnum, gæslumenn
frá útlendingaeftirlitinu, lögregl-
unni, bifreiðaeftirlitinu og tollverðir
sem fylgjast grannt með öllu. Um
það bii 30 lögreglumenn og tollverð-
ir afgreiða skipið en að sögn þeirra
hefur lítið borið á að fólk geri til-
raunir til að taka með sér inn í
landið ólöglegan vaming.
Mögulegt að greina
hvort vöðvarýrn-
un gangi í erfðir
Bar Harbor, Mainc, AP.
NÝ ERFÐÁPRÓF geta leitt í ljós hvort konur, sem telja að þær
beri vöðvarýrnunargen, eigi á hættu að sjúkdómurinn berist til
sona þeirra í gegnum erfðir.
Á undanfömum ámm hafa nýj-
ar rannsóknir á erfðakerfí
mannsins aukið líkur á að læknar
geti sagt fyrir hvort konur beri
með sér erfðavísa vöðvarýmunar,
sem synir þeirra myndu þjást af.
Þar til nú, hafa margar konur,
sem halda að þær beri þessa
erfðavísa, fengið fóstureyðingar
þegar í ljós kom að þær gengu
með sveinböm, frekar en að eiga
á hættu að bömin fengju sjúk-
dóminn. í nánast öllum tilvikum
heijar sjúkdómurinn, sem er
bannvænn, einungis á drengi og
eru líkumar á því að drengir fæð-
ist með vöðvarýmun einn á móti
5.000 til 8.000.
Vöðvarýmun kemur í veg fyrir
að vöðvar líkamans nái að þrosk-
ast á venjulegan hátt og þurfa
sjúklingamir yfírleitt að notast
við hjólastól þegar þeir ná 12 ára
aldri. Flestir deyja á unglings- eða
tvítugsaldri.
Ef kona ber erfðavísi vöðva-
rýmunar, getur hún engu að síður
lifað eðlilegu lífi, en það em 50%
líkur á því að genið gangi í erfðir
til sona hennar og valdi hinum
bannvæna sjúkdómi. Ef maður er
haldinn þessum sjúkdómi, er
líklegt að kvenmenn í fjölskyldu
hans, s.s. systur og frænkur, beri
með sér vöðvarýmunargenið og
eiga þessi próf að hjálpa konum,
sem þannig er ástatt fyrir, að fá
vitneskju hvort svo sé.
Þróun erfðafræði hefur verið
mjög ör á undanfömum ámm og
geta læknar nú greint tugi erfða-
sjúkdóma fyrir fæðingu. Talið er
líklegt að innan nokkurra ára
verði mögulegt að greina hundr-
uðir til viðbótar.
» Gódan daginn!
GERNI JET TURBO
HREINSITÆKI
Hreinsun verður leikur einn
GERNI JET, ný gerð af háþrýstihreinsitæki með Turbo spíss.
Mjög handhæg - létt og afkastamikil.
Aðeins 18 kg á þyngd og með allt að 120 BAR þrýsting.
Ýmsir fylgihlutir, t.d. fyrir sandblástur.
Þú sparar tíma, fé og fyrirhöfn með GERNI JET.