Morgunblaðið - 20.07.1986, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
B 7
Á skrifstofu ríkisskattstjóra, þegar Garðar tók við af Sigurbimi
Þorbjömssyni fráfarandi rikisskattstjóra, sem er til vinstri á mynd-
inni.
Við starfi Garðars sem skattrannsóknarstjóra tók Guðmundur Guð-
bjarnason viðskiptafræðingur, sem er með Garðari á þessari mynd.
Guðmundur starfaði áður hjá ríkisskattstjóra.
Ekkí starf fyrir þá sem
vilja öðlast vinsældir
Skattrannsóknastjóri er bundinn
þagnarskyldu í öllu málum, að sögn
Garðars. Hluti mála fer eftir af-
greiðslu embættisins til rannsókn-
arlögreglu, þ.e. þau alvarlegustu.
En hvað telur embættið „alvarleg
mál“? - Garðar: „Það er alvarlegt
að svíkja stórar upphæðir undan
skatti og það er alvarlegt þegar það
er gert af sannanlegum ásetningi.
Ásetningur og vilji til að svíkja
undan skatti skipta verulegu máli.“
" — Hvemig hafa skattgreiðendur
tekið hertu skattaeftirliti? Er skatt-
rannsóknastjóri óvinsæll maður,
verður hann til dæmis fyrir aðkasti
opinberlega?
„Eftir því sem við höfum skipu-
lagt okkur betur þá fáum við stærri
mál, og eftir því sem málin eru
stærri þá verða viðbrögð eigehda
fyrirtækja, endurskoðenda og lög-
I„ Velflest mál
eru vegna
söluskattssvika,
enda oftast
einfaldara að
skoða þau en til
dœmis
tekjuskattssvik. “
manna þeirra harðari. Það er tekið
stífara á af okkar hálfu og enn-
fremur af þeirra. Ég hef nú ekki
orðið fyrir neinu aðkasti en þetta
er ekki starf fyrir þá sem vilja öðl-
ast vinsældir."
— Þú nefndir áðan að reynt
væri að hafa skattalögin réttmæt,
en oft virðast menn komast misjafn-
lega frá sköttum sínum, án þess
að um skattsvik sé að ræða. Ef þú
mættir breyta lögunum, hvar mynd-
ir þú bera niður?
„Það er rétt að í skattalögunum
eru ýmsar smugur og holur, sem
oft er deilt um, að hve miklu leyti
er réttmætt. Það má finna ýmislegt
í lögunum, sem eru að stofni til frá
1978, sem mætti breyta að feng-
inni reynslu. Ég nefni til dæmis
ákaflega hæpnar reglur sem lúta
að lánum hlutafélaga eða annarra
félaga til starfsmanna eða eigenda.
Við höfum dæmi um að hlutafélög,
sem eru kannski að meginhluta til
í eigu sama aðila eða fjölskyldu,
láni starfsmanni, sem þá jafnframt
er eigandi, peninga í stað þess að
borga honum mannsæmandi laun.
Þetta er mjög hentugt bæði fyrir
fyrirtækin og eigendur þess. Þetta
eru ekki skattsvik, en menn koma
þarna út með svo til enga skatta,
launalausir og með háar skuldir,
ekki satt? Þarna er oft um að ræða
forstjórana með vinnukonuútsvörin,
sem almenningi er tíðrætt um og
enginn skilur hvemig fara að því
að lifa eins og þeir gera á lúsarlaun-
um samkvæmt skattaskýslu. Þessu
þarf að breyta og það er víðar pott-
ur brotinn í skattalögunum.“
Áreiðanlega arðbær-
asta fjárfestingin í
ríkiskerfinu
Stjómmálamönnum hefur verið
tíðrætt um skattsvik og sérstaklega
hafa skattsvik verið nefnd, þegar
gat myndast á fjárlögum. Garðar
sagði þetta ekkert einsdæmi, Danir
hefðu t.d. í svonefndum skatta-
pakka frá sl. vetri gert ráð fyrir
tekjuauka að upphæð 800 millj.
danskar krónur með auknu og hertu
skattaeftirliti. Eins og fram hefur
komið hafa hérlend stjómvöld eflt
embætti skattrannsóknastjóra á
síðustu árum með flölgun starfs-
manna. Garðar sagði réttilega, að
miðað við árangur væri þetta áreið-
anlega arðbærasta fjárfesting sem
gerð hefði verið í ríkiskerfmu. Hann
var spurður, hvort hann teldi að
ná mætti enn betri árangir með
frekari eflingu embættisins. Hann
sagði að bættur og aukinn tölvu-
búnaður myndi líklega koma að
bestum notum. Embættið hefði flár-
fest á síðasta ári í smátölvum sem
komið hefðu að mjög góðum notum,
ein slík þyrfti að vera á hvem
starfsmann. Hvað varðar §ölgun
starfsmanna sagðist hann telja
meira áríðandi að núverandi starfs-
menn fengju mannsæmandi laun,
þannig að embættinu héldist á góð-
um mönnum. Hann sagði: „Þetta
eru erfíð störf og lýjandi og laun
„Alvarlegt að
svíkja stórar
upphυir undan
skatti ogþað er
alvarlegt þegar
þaðergertaf
sannanlegum
ásetningi.
Ásetningur og
vilji til aÖ svíkja
undan skatti
skipta verulegu
máli. “
ættu að vera í samræmi við það.“
Þess má geta, að Garðar Valdi-
marsson er kvæntur og á þijú börn.
Af starfs- og menntaferli má nefna,
að hann varð stúdent frá Verslunar-
skóla íslands árið 1966 og lög-
fræðingur frá Háskola Islands
1972. Lagði stund á framhaldsnám
í skattarétti við Kaupmannahafnar-
háskóla 1974-1976, síðara náms-
árið sem styrkþegi Nordiska
Skattevetenskapliga Forsikn-
ingsrádet. Þá starfaði hann með-
fram endurskoðunamámi hjá
Ragnari Ólafssyni hæstaréttalög-
manni á áranum 1966 til 1972.
Löggiltur endurskoðandi varð hann
1. apríl 1975 og var skipaður skatt-
rannsóknastjóri 1. október 1976,
eins og fyrr segir. Auk þessa hefur
hann átt sæti í fjölmörgum nefndum
og starfshópum á vegum hins opin-
bera, sem unnið hafa að skattamál-
um. Við Háskóla íslands hefur hann
einnig starfað sem stundakennari í
skattarétti.
Mun beita mér fyrir
eflingu skattaeftirlits
Garðar var í lokin spurður, hvem-
ig hann liti hið nýja starf, embætti
ríkisskattstjóra. Hann kvaðst líta
það björtum augum. Aftur á móti
væri það starf meira í föstum skorð-
um, ákveðnara fari, en fyrra starf.
Embætti skattrannsóknastjóra
hefði gefíð möguleika á frumkvæði
og mótun. Hann taldi þó að margt
af því sem hann hefði fengist við í
því embætti kæmi til með að nýtast
sér í hinu nýja starfi. „Þrátt fyrir
að ég skipti um starf hef ég mikinn
áhuga á skattaeftirliti. Ég mun því
beita mér til þess að efla það á öll-
um sviðum," sagði Garðar Valdi-
marsson ríkisskattstjóri að lokum.
Viðtal: FRÍÐA PROPPÉ
Ljósmyndir: EINAR FALUR
Þessi glæsilegi
Audi 10OGT 5TS
árg. 1981 með öllu er til sölu.
Ath.: getum útvegað vel með farna
bíla á góðu verði frá Þýskalandi.
HUSGAGNA-
RÝMINGARSÖLUNNI
LÝKUR Á ÞRIÐJUDAGINN
15—60% afsláttur
Mikið úrval af húsgögnum: Sófasett — stakir
sófar — skápar — sófaborð — borðstofusett —
eldhússett
Athugið að nú er hægt að gera einstaklega góð
kaup á ódýrum sófasettum. Lítið í gluggana um
helgina.
ILJI
Bláskógar
ÁRMÚLA 8 105 REYKJAVÍK
FLUGMÁLASTJÓRN
Nám í
jlugumferðarstjórn
Flugumferðarstjórn hyggst taka nokkra
nemendur til náms í flugumferðarstjórn í
byijun árs.
Skilyrði fyrir inntöku og námi í flugumferðarstjórn
er, að umsækjandi hafi lokið stúdentsprófi, tali
skýrt mál, riti greinilega hönd, hafi gott vald á
íslenskri og enskri tungu og fullnægi tilskyldum
heilbrigðiskröfum. Miðað er við, að umsækjendur
séu á aldrinum 22—30 ára.
Námið fer að mestu leyti fram við erlendar mennta-
stofnanir og að hluta sem starfsþjálfun á vinnustöð-
um hérlendis.
Þeir sem áhuga hafa á slíku námi og starfa vilja
við flugumferðarstjórn sæki umsóknargögn, útfylli
umsóknareyðublað og skili ásamt staðfestu stúd-
entsprófsskírteini og sakarvottorði til flugmála-
stjórnar á Reykjavíkurflugvelli fyrir 25. ágúst nk.
Umsóknargögn liggja frammi á afgreiðslu flug-
málastjórnar á 1. hæð í flugturninum á Reykjavík-
urflugvelli.
16. júli 1986,
Flugmálastjóri.