Morgunblaðið - 20.07.1986, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
Kvöldverðurinn kominn í háfinn á lognkyrru júlíkvöldi.
legt að menn haldi til síns heima
kaldir og hraktir eftir válynd veð-
ur, eða sólbrunnir og mýbitnir, alla
vega rykugir, órakaðir og þreyttir.
Nær undantekningarlaust tala
menn þó um „góða ferð“ nema
sterklegar sé að orði kveðið. Áður
en við sláum botni í þetta spjall,
skulum við ri§a upp sögu sem lýsir
kannski vel þeim kyngikrafti sem
Arnarvatnsheiði býr yfir.
Tveir menn hafa verið að veiðum
í Arnarvatni litla og langur, strang-
ur og heitur dagur er að kvöldi
kominn. Þegar heitast var um miðj-
an daginn horfðu veiðimenn í
forundran á vatnsstróka gjósa upp
af vatninu í logninu og æða ýlfr-
andi út á vatn. Mýið var gersamlega
að gera út af við þá, það héti kvala-
losti að fækka fötum í hitanum.
En nú var kvöldgolan komin og
þreyttir veiðimenn köstuðu mæð-
inni í litlum hvammi nokkrum
metrum frá vatnsbakkanum. Fyrir
aftan þá lá afgamalt og fúnandi
bátsskrifli, gamlar menjar liðins
tíma, er Amarvatnsheiði var forða-
og nægtabúr sveitamanna bæði
sunnan heiða og norðan.
göngu sinni, það er ekki ýkja löng
ganga til jeppans og nestið bíður í
Alftakróki.
Þeir hafa ekki gengið 100 metra
þegar sá sem renndi nemur skyndi-
lega staðar og segir: „Maðkapolk-
inn, hann liggur enn á bakkanum
þar sem við lágum. Ég fer aftur
og sæki hann.“ Hann gengur til
baka og leitar og leitar, þar sem
lágu og horfðu báðir á pokann á
milli sín, niður á vatnsbakkanum
þar sem stöngin var. Ekkert. Hann
rekur slóðina til baka, auðgert, því
þeir höfðu þrætt kindagötu. Ekkert
finnst. Næst er að ganga báðir til
baka og víkka sjóndeildarhringinn,
ef pokinn skyldi hafa slæðst með
þeim og annar þeirra ráfað eitthvað
út fyrir götuna. Þeir leita svo vand-
lega fram og til baka. Leita síðan
báðir á hvíldarstaðnum, á vatns-,
bakkanum, allt í kring, í vösum
sínum og pinklum. En það er eins
og það hafi aldrei verið neinn
maðkapoki. Til baka aftur, leitandi.
Nú var maðkaeigandanum farið að
hitna í hamsi, hann fór eina ferð
fram og aftur til viðbótar. En það
stoðaði ekkert. Enn þann dag í dag
vita þeir félagar ekkert hvað varð
af pokanum og þeim er næst að
halda að hann hafi verið fenginn
að láni. Ekki vilja þeir þjófkenna
Heiðina.
gg
Annar mannanna vill láta flotk-
úlu með maðköngli liggja úti meðan
þeir hvíla sig, dregur upp úr vasa
sínum lítinn maðkapoka, beitir og
stendur upp. Kastar pokanum litla
að hlið vinar síns sem nennir ekki
að standa á fætur. Sá duglegri labb-
ar þessi fáu skref að vatnsbakkan-
um og kastar út, röltir því næst til
baka og leggst á sinn stað. Á milli
mannanna liggur maðkapokinn.
Þeir tala um heima og geima, hlusta
á goluna og heiðarbúann, litla
sendlinginn, sem gefur þeim gætur.
Loks afráða þeir að halda áfram
Stórbleikja brýst um í háfnum en hefur tapað leiknum. Fjöldi veiði-
viqja er um alla Amarvatnsheiði.
*■
Slökkvitæki og reykskynj-
ARI, VATNSBRÚSAR OG FÖTUR.
Handverkfæri, RAFMAGNS-
VERKFÆRI TIL ALLRA MÖGU-
LEGRA OG ÓMÖGULEGRA NOTA.
Olíulampar OG LUKTIR, GASLUKT-
IR, GAS OG OLÍUPRÍMUSAR, HREINS-
UÐ STEINOLÍA, OLÍUOFNAR,
ARINSETT, ÚTIGRILL, GRILLKOL OG
VÖKVI, RAFHLÖÐUR, VASAUÓS.
FATADEILDIN
Hitamælar, klukkur,)
BARÓMETER, SJÓNAUKAR.
Fánar
FLAGGSTANGARHÚNAR |
OG FLAGGSTENGUR,
6-8 METRAR.
SlLUNGANET, NÆLONLÍNUR,
SIGURNAGLAR, ÖNGLAR, SÖKK-
UR.
Vatns-olíudælur.
KEÐJUR, MARGAR GERÐIR, OG
VÍRAR, GRANNIR OG SVERIR,
GIRNIALLSKONAR.
Garðyrkjuverkfæri í ÖLL
STÖRF, HJÓLBÖRUR, SLÖNGUR,
SLÖNGUKLEMMUR OG TENGI,
ÚÐARAR, SLÁTTUVÉLAR, ORF
OG UÁIR.
Hlífðarfatnaður, REGNFATNAÐUR,
GÚMMÍSTÍGVÉL HÁ OG LÁG, PEYSUR,
BUXUR, SKYRTUR, NORSKU ULLAR-
NÆRFÖTIN. SUMARFATNAÐUR.
Fúavarnarefni, LÖKK, MÁLN-
ING — ÚTI OG INNI - MÁLNING-
ARÁHÖLD___
HREINLÆTISVÖRUR, KÚSTAR
OG BURSTAR.
Ánanaustum, Grandagarði 2, sími 28855.
0g í BÁTINN EÐA SKÚTUNA
BJÖRGUNARVESTI FYRIR BÖRN
OG FULLORÐNA. ÁRAR, ÁRAKEF-
AR, DREKAR, KEÐJUR, AKKERI,
VIÐLEGUBAUJUR, KJÖLSOGDÆL-
UR. ALLUR ÖRYGGISBÚNAÐUR.
ÖLL SMÁVARA FYRIR SKÚTUNA,
BLAKKIR O.M.FL. BÁTALÍNUR.
IBATIIMN — BUSTAÐINN OG GARÐINN