Morgunblaðið - 20.07.1986, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
B 11
I•riðja pósisjón
Jallatte öryggisskórnir eru svo léttir og þægilegir,
að ganga í þeim er sem ánægjulegur dans.
Þeir draga úr þreytu vinnudagsins og auka vellíðan.
Stál í tá er vernd gegn þrýstingi og höggi.
Stálþynna í sóla er vernd gegn nöglum og hvössum hlutum.
JALLATTE ER ALLT SEM ÞARF Í
HINN DAGLEGA DANS
Skeifan 3h - Sími 82670
Svifflugmenn og áhugamenn um íþróttína fylgdust spenntír með
þegar sviffluguraar tóku að nálgast HelluflugvöU úr loftí. Oft þurfa
svifflugmenn hinsvegar að bíta í það súra epU að snúa aftur á móts-
stað landleiðina með farkostinn á vagni aftan í bíl.
íslandsmótið í svifflugi á Hellu:
Jöfn og spennandi keppni
mótinu lýkur í dag
í DAG lýkur íslandsmótinu í svifflugi sem staðið hefur sl. viku á
Helluflugvelli. Þá daga sem veðurguðirnir hafa gefið hefur keppnin
verið jöfn og spennandi. í gærdag var Eggert Norðdahl í fyrsta
sætinu með 1.550 stíg samanlagt en hann keppir á einni eldri svif-
flugu landsins, TF SAE. Annar er Baldur Jónsson með 1.442 og
keppir hann á einni fullkomnustu og bestu svifflugunni, TF SIP.
Þriðja sætíð vermir Sigmundur Andrésson með 1.003 stig og keppir
hann á TF SOL. Fast á hæla þremenninganna koma þrír aðrir flug-
menn með á milli 900 og 1.000 stíg svo ekki þarf mikið til að þessi
röð riðlist.
Bæði Baldur og Sigmundur hafa
unnið til verðlauna áður á íslands-
mótum. Baldur hlaut verðlaun fyrir
4 árum fyrir besta árangur í 100
km þríhyrningsflugi. Sigmundur
varð Islandsmeistari árið 1974 og
1984, síðast þegar slík meistara-
keppni var haldin.
Islandsmótið í svifflugi hófst fyr-
ir 7 dögum. Aðeins hefur verið
unnt að fljúga í 4 daga en aðeins
3 dagar teljast gildir. Til þess að
dagur teljist gildur, verða 20%
keppenda að fljúga lágmarksvega-
lengdina sem er 25 km. Þá er mótið
orðið löglegt samkvæmt keppnis-
reglum því aðeins tvo daga þarf til
að svo sé.
Fyrsta gilda keppnisdaginn sigr-
aði Baldur Jónsson og hlaut hann
1.000 stig. Sigmundur Andrésson
var annar með 661 stig og þriðji
Steinþór Skúlason með 561 stig.
Þó að sjálft flugið sé aðalatriðið,
leggja þeir svifflugsmenn mikið upp
úr mannlega þættinum. Þeir reisa
tjaldbúðir þar sem svifflugum er
lagt og gista þar alla dagana. Á
kvöldin, að loknu flugi, er gjaman
sest að grillveislu og rabbað um
árangur dagsins og fleira. í tjald-
búðunum ríkti skemmtilegur andi
og mátti jafnvel sjá bamavagna
innan um svifflugumar og tjöldin.
Þegar svifflugmenn mæta á
Hellu með sitt hafurtask segja
sunnlenskir bændur að upp sé mnn-
in „vika hinna löngu vagna" og að
þá megi fastlega fara að búast við
rigningu. Þetta segja bændur nú
meira til gamans, vegna þess að
oft verða flugmennimir að ienda á
túnum þeirra víðsvegar um Suður-
land þegar uppstreymið þrýtur. Þá
fara aðstoðarmennimir á stjá til að
leita fluguna uppi og taka hana
Þórmundur Sigurbjaraason
mótsstjóri hafði í mörgu að snú-
ast. Með reglustiku á landakortí
og talstöðina á loftí, nauðsynleg
hjálpartæki embættísins. Þór-
mundur hefur fengist við svif-
flug í 33 ár.
Þann dag var keppt í fijálsu fjar-
lægðarflugi á milli fjögurra punkta.
Annan daginn var flogið 106 km
þríhymingsflug, Hella-Búrfell, Búr-
fell-Hruni, Hmni-Hella. Aðeins
tveir flugmenn náðu að ljúka þessu
verkefni og flugu þeir báðir einum
elstu svifflugum landsins. Eggert
Norðdahl sigraði með 1.000 stig en
Höskuldur Frímannsson var rétt á
eftir með 962 stig.
í gær var flogið 88 km fjarlægð-
arflug frá Hellu að Búrfellsstíflu
og til baka en úrslit lágu ekki fyrir
þegar blaðamaður talaði síðast við
mótsstjómina.
Stigagjöfin fer fram eftir keppn-
isreglum og þarf að taka tillit til
margs við þann útreikning. M.a. er
notuð einkatölva. Þannig þurfa
flugmennimir að skila mótsstjóm-
inni lendingarvottorðum og ljós-
myndafilmum sem eiga að sanna
að þeir hafi flogið yflr rétta fyrir-
fram ákveðna punkta á leið sinni.
Mótsstjómin þarf síðan að taka til-
lit til forgjafar sem svifflugurnar
hafa því þær em af mismunandi
gerðum. Til gmndvallar forgjöfinni
er lögð lágmarksvegalengdin 25 km
og þannig þarf besta flugan að
fljúga 27 km á meðan sú elsta og
„slakasta" þarf aðeins 19,5 km.
Mikið lagt upp úr
félagsskapnum og
útiverunni
Samtals taka 11 flugmenn þátt
í íslandsmeistarakeppni nú og
keppa þeir á jafn mörgum vélum.
Þar af er ein frá Akureyri. Þetta
er helmingur allra sviffluga sem til
em hérlendis. Hverri vél fylgir svo-
kallað „lið“ og em í því 1—2
aðstoðarmenn.
Morgunblaðið/Ólafur Bragaaon
Eggert Norðdahl vermir efsta sætíð á íslandsmeistaramótinu í svif-
flugi að loknum 3 keppnisdögum. Keppnin er jöfn og spennandi og
allt getur gerst á þeim tveimur dögum sem eftir era. Eggert er til
vinstri á myndinni við flugu sína ásamt keppinaut sínum, Höskuldi
Frímannssyni. Þeir háðu spennandi keppni í fyrradag og voru þá
þeir einu sem náðu að ljúka 106 km þríhyrningsflugi, vora á lofti
á fjórðu klukkustund.
sundur á staðnum (tekur aðeins 15
mín.), setja hana á langan vagn og
keyra svo rakleiðis til Hellu og taka
til við að undirbúa næsta flug.
Helluflugvöllur er rétt fyrir utan
kauptúnið og þar er góð aðstaða.
Þar em tvær grasbrautir, rúmlega
1.000 og 750 metra langar og góð-
ur fjarskiptabúnaður. íslandsmótin
í svifflugi hafa alltaf verið haldin á
Hellu á tveggja ára fresti.
Þórmundur Sigurbjamason, var
mótsstjóri síðari hlutann og hefur
hann stundað svifflug í 33 ár. Hann
var spurður hvers vegna þeir héldu
svona upp á Hellu sem mótsstað?
„Hella er ekki endilega besti svif-
flugstaðurinn hérlendis. En flug-
völlurinn er mjög góður, sömuleiðis
fjarskiptatækin og svo er einn
stærsti kosturinn sá, að héðan
liggja góðir vegir til allra átta. Við
verðum nefnilega oft að sækja flug-
urnar á bílum eftir að þær hafa
lent út um allar sveitir. Á móti er
sá ókostur að hafgolan kemur hér
snemma dags og vill því oft skemma
seinni part dagsins fyrir okkur. Það
kemur meira að segja fyrir, að við
rétt náum að koma öllum flugunum
á loft áður en hún tekur að láta á
sér kræla og eyðileggur uppstreym-
ið. Svifflugið snýst jú allt um
uppstreymið. Bestu veðurskilyrði
fyrir okkur eru sól og hiti því þá
hitnar yfír landinu og hita-
uppstreymið sem ber svifflugumar
uppi myndast. Hitauppstreymið er
okkar himnastigi. Það má líkja
þessum veðurfarsaðstæðum við það
þegar vatn er að sjóða," sagði hinn
reyndi svifflugkappi sem annars var
önnum kafinn við stjóm mótshalds-
ins.
- G.Þ.