Morgunblaðið - 20.07.1986, Síða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
W.E.
JOHNS
— Udet
skauthann
niAur
BENNI
stjórnaði leit aó þýzkum
kafbátum á íslandi 1943—
1944.
Bennl f loftbardaga.
ISLANDI
Stjórnaði brezka
fíughernum hér í
stríðinu með hjálp
Gríms grallara
BENNI, flugkappi í heimsfrægum
drengjabókum og einhverjum hinum
vinsælustu sem hér hafa komið út,
varyfirmaður brezka flughersins á
(slandi í síðari heimsstyrjöldinni.
Grímur grallari, söguhetja í öðrum
kunnum drengjabókum, var líka í
flugher Breta hér á landi í stríðinu
og undirmaður Benna. Frá þessu
segir íforvitnilegu bókmenntariti,
sem nýlega kom út í Bretlandi.
Fyrinnyndin að Benna var án
efa Cecil George Wigglesworth
(1893-1961), sem var „flug-
kommódor" (þ.e. næstur fyrir neðan
flugmarskálk að tign) þegar hann
var yfirmaður flughers Breta hér í
stríðinu. Hann og höfundur Benna-
bókanna, W.E. Johns flugkapteinn,
voru félagar f brezka flughernum í
heimsstyijöldinni 1914-1918.
Bókaútgáfan Norðri á Akureyri
gaf út 10 Benna-bækur í ágætri
þýðingu Gunnars Guðmundssonar
á árunum eftir stríðið. Nýjar
Benna-bækur birtust til 1960. Síðan
varð annað og lengra hlé, til um
1980, þegar nýjar þýðingar fóru
að birtast, og um svipað leyti hófst
útgáfa á teiknimyndasögum um
kappann í nútímabúningi.
I vor var frumsýnd kvikmynd um
Benna í London og hún verður ugg-
laust sýnd hér á landi áður en langt
um líður.
Bækumar um Grím grallara
(„Just William") em ekki eins kunn-
ar hér á landi, en hafa einnig notið
hylli ungra lesenda frá því þær fóm
að birtast í íslenzkri þýðingu upp
úr 1960.
Benni heitir fullu nafni James
Bigglesworth í bókum Johns, sem
kallar hann „Biggles", en í íslenzku
þýðingunum breyttist fyrra nafnið
í Benjamín og Benna-heitið er af
því dregið. Sjálfur var Wiggles-
worth uppnefndur “Wiggly Worrn"
í gamni (þ.e. ormur sem er á sífelldu
iði).
Upplýsingamar um fyrirmyndina
að Benna og Grími koma fram í
uppflettiritinu Fyrirmyndirnar
(The Originals: Who’s Really Who
in Fiction) eftir William Amos. Þar
segir að fyrirmyndin að Grími grall-
ara sé John Lambum, sem var í
brezka flughemum, RAF, á íslandi
í stríðinu. Amos telur litlum vafa
undirorpið að Benni og Grímur hafi
hitzt á íslandi, en gerir ekki ráð
fyrir að þeir hafi vitað að þeir ættu
það sameiginlegt að vera skáld-
sagnahetjur.
Samkvæmt upplýsingum Amos
var fyrst gefíð í skyn opinberlega
1949 hver fyrirmyndin að Benna
væri þegar systir Johns, höfundar-
ins, greindi frá því viðtali við Radio