Morgunblaðið - 20.07.1986, Page 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
BENNI
Á ÍSLANDI
og hann gat alltaf treyst Áka og
Kalla, sem voru það „sem kallað
er drengur góður“.
Berti var hins vegar hálfgerð
ráðgáta. Þegar hann var með kom
alltaf babb í bátinn, m.a. vegna
þess að hann vildi sífellt reyna ein-
hveijar nýjar og afkáralegar brellur
úr bandarískum kvikmyndum, sem
hann hafði séð, og þær fóru alltaf
út um þúfur.
Enginn vafí er á því að Benni
var hægrimaður (hann barðist með
Franco á Spáni!). Johns var þó eng-
inn „stríðsæsingamaður", því í
Benna- bókunum hans er að fínna
hugleiðingar um grimmd styrjalda,
sem hann þekkti.
Fyrstu Benna-bækumar komu
út skömmu eftir valdatöku nazista
í Þýzkalandi, þegar flestir aðrir en
leiðtogar lýðræðisríkja gerðu sér
grein fyrir hættu á nýrri heimsstyij-
öld. Johns hafði ríkari ástæðu en
flestir til að hata Þjóðveija og gagn-
rýnt hefur verið að í bókum hans
um Benna gæti óvildar í þeirra
garð. Hann kallar þá gjaman „Hún-
ana“, en hann benti á það sjálfur
að bandamenn hefðu yfírleitt nefnt
fjandmanninn því nafni í fyrri
heimsstyijöldinni, án þess að það
væri skammaryrði.
Því hefur líka verið haldið fram
að sums staðar örli á gyðingahatri
í bókum Johns, eins og ýmissa ann-
Erich von Stalheln yflrheyrir
Áka.
arra höfunda á þessum ámm, en
raunar kemur fram samúð með
gyðingum. Hins vegar em gyðingar
Ákl er fangi von Stalheins,
sem sklpaAi mönnum sínum
að fljúga flugvöl hans burtu.
Benni og fólagar höföu beAIA
eftir Áka og sitja eftir með
sárt enniA ásamt heims-
frmgum vísindamanni, sem
þeir œtla aö bjarga.
stundum viðriðnir njósnir í bókun-
um og það þykir fyrirlitlegt.
ERKIÓVINURINN
Erkióvinur Benna er prússneski
junkarinn Erich von Stalhein höf-
uðsmaður, „fyrrverandi foringi í
leyniþjónustu hans keisaralegu
tignar", þekktur undir nafninu
„Grospu". Hann er gerður hálf-
hlægilegur og aldrei kemur fram
Nell Dickson í hlutverki
Benna og flugvál hans. Alex
Hyde-White lelkur tvffara
hans, sem er í förum frá
nútímanum tll vfgstöAvanna
1914—1918. Helzti kostur
myndarinnar er aA Peter
Cushing lelkur aldurhnlglnn
yfirmann Benna. Myndina
gerAI John Hough.
Benni yfirbugar válamann,
sem gœtir flugválar f óvina-
landi, og kemst undan.
hvers vegna hann nær aldrei hærri
tign, en maðurinn er greinilega
gersneyddur öllum hæfileikum og
Benni leikur svo oft á hann að furðu
gegnir að yfírstjóm þýzka heraflans
hafí ekki látið skjóta hann fyrir
löngu.
Eftir síðari heimsstyijöldina
þrengdist starfssvið Benna og hann
fékk færri tækifæri til að lenda í
ævintýrum, þótt hann „gerði örygg-
isþjónustunni ýmsan greiða, ef
hættur steðjuðu að“. Rússar tóku
við hlutverki Húnanna og meira að
segja erkióvinurinn von Stalhein
gekk í lið með kommúnistum. Rúss-
ar senda hann að lokum til Síberíu,
því Johns segir að junkarinn sé svo
gamaldags að hann geti aldrei orð-
ið sannur kommúnisti.
Að lokum fær von Stalhein upp-
reisn æru að vissu marki þrátt fyrir
allt sem á undan er gengið. í einni
síðustu bókinni bijótast Benni, Áki,
Kalli og Berti inn í nauðungarvinnu-
búðir á Sakhalin-eyju og bjarga
Austur-Skaftaf ellssýsla:
Söluumboð: Hagþing h.f./Fasteignamiðstöðin
Hátún 2B, Reykjavfk.
Sfmar: 622030, 14120 og 20424
Ösp h.f.,
Stykkishólmi.
S. 93-8225 - 8307
Hin fjölbreyttu einingahús frá Ösp í Stykkishólmi eru að
öllu leyti íslensk framleiðsla fvrir íslenskar aðstæður.
Asoareiningahúsin eru nú seld á ýmsum bygging-
-arstigum t.d. í fokheldi ástandi. Dæmi um verö
á 95 fm húsi í fokheldu ástandi m. einangruöum
og klæddum útveggjum, ásamt einangrun í lofti
kr. 1.193.874. b.m.t. flutningur til Reykjavíkur.
- Margar stærðir íbúðarhúsa
- Orlofshús í sérflokki
- Traustir bílskúrar
- Margs konar innréttingar í öll hús
Framleiðandi er sveigjanlegur í samningum.
Póstsendum bækling og verðskrá sé þess óskað.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar á skrifstofunni.
ASPAREININGA-
HUS
Hlaupið frá Hvals-
nesi að Skaftafelli
Ungmennasambandlð Úlfljótur
í Austur-Skaftafellssýslu efnir til
áheitahlaups þann 26. þ.m. milli
byggðra bóla í sýslunni, frá Hvals-
nesi í Lóni að Skaftafelli í
Öræfum.
Alls er hlaupið um 200 kíiómetra
og er áætlað að það taki um 20
klukkustundir að hlaupa þá vega-
lengd. Ungmennafélagamir hlaupa
þetta boðhlaup í fjáröflunarskyni, til
styrktar íþróttastarfsemi í sýslunni.
Áheitum er safnað, og er fólki boðið
að heita ákveðinni fjárhæð á hvem
hlaupinn kílómeter, og ganga félags-
menn í hús og fyrirtæki og safna
áheitunum.
Afurðasala
Sambandsins:
Lambakjöt
í nýjum
umbúðum
AFURÐASALA Sambandsins hef-
ur sett á markað frysta hálf-
skrokka af 1. flokks lambakjöti.
Kjötið er sérstaklega niðursag-að
þannig að vel henti að grilla það.
Skrokkamir eru seldir í nýjum
umbúðum, pappakössum úr bylgju-
pappa og em þeir með handfangi.
Að sögn Jóns Magnússonar hjá
Afurðasölunni er hér líklega um að
ræða eitthvert ódýrasta kjötið á
markaðnum að kjúklingum með-
töldum því verðið á hveiju kg er um
236.40 kr.
Morgunblaðið/Einar Falur
Nýju umbúðirnar.
Þetta á líka að gefa neytendum
kost á að kaupa hæfílegt magn af
kjöti í einu án þess að það taki of
mikið rúm í frystikistunni.