Morgunblaðið - 20.07.1986, Page 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
Það var einmitt á þessu
sældarlega „laxa-
plani" á eyri úti í á
þar sem hver veiddi á
sína vísu, í net, háf
eða á stöng, að kvikmyndatökur
fóru fram þegar blaðamaður Morg-
unblaðsins lagði leið sína á sögu-
slóðir „Stellu í orlofi", en það er
vinnuheiti kvikmyndar sem UMBI
s/f vinnur að þessa dagana undir
leiðsögn Þórhildar Þorleifsdóttur,
leikstjóra.
Eins og ofangreint atriði gefur
kannski til kynna er um að ræða
gamanmynd með miskilningi á
miskilning ofan samkvæmt hand-
riti Guðnýjar Halldórsdóttur sem
er í hópi fímmenninganna sem
mynda UMBA s/f. „Það má segja
að við séum hér með landsliðið af
leikurum," segir annar UMBI,
Ragnheiður Harvey. A lista er að
fínna leikarana Gest E. Jónasson,
Eggert Þorleifsson, Gísla Rúnar
Jónsson, Sigurð Siguijónsson,
Hönnu Maríu Karlsdóttur, Bessa
Bjamason, Ásu Hlín Svavarsdótt-
ur, Brieti Héðinsdóttur, Amar
Jónsson, Margréti H. Jóhanns-
dóttur, Sigríði Þorvaldsdóttur,
Sú allra úrræðabesta, Stella og Salómon Svíi, undrandi á íslandsmóttökunum.
Staðið í ströngu
með Stellu í orlofi
Stella í orlofi er vinnuheiti kvikmyndar
sem UMBI sf vinnur nú aÖ og eru
kvikmyndatökur rúmlega hálfnaÖar
„Settu allt í botn — það er verið að stela löxunum
mínum!“ Þetta hljómar kannski ekki eins og það vana-
legasta sem flugstjóri í loftum uppi segir við aðstoðar-
flugmann sinn. En á hinn bóginn — hver myndi lá
þeim sama flugstjóra að segja slíkt þegar hann flýgur
yfir friðsælu ánna þar sem laxaræktin hans hefur
blómstrað og sér þar aðfarir aðkomumanna merktra
Lionsklúbbnum Kidda ásamt fleirum, sem minna
fremur á tilburði söltunarfólks á sældarlegu síldar-
plani en annað.
Eggert Þor-
leifsson,
með húfu
merkta
Lions-
klúbbnum
Kidda, gerir
sig kláran í
aðgerð.
Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri.
Samantekt og myndir:
VILBORG EINARSDÓTTIR
Salómon Svíi.
Karl Guðmundsson, Öm Ámason,
Pálma Gestsson og Kjartan Bjarg-
mundsson, að ógleymdum aðalleik-
urunum tveimur, þeim Þórhalli
Sigurðssyni, Ladda, í hlutverki
Salómons, Svíans sem kemur til
íslands í leit að tiltekinni tegund
frelsunar, og Eddu Björgvinsdótt-
ur, sem í hlutverki Stellu tekur
Salómon upp á sína arma - þó það
sé á miskilningi byggt.
Edda segir persónunni Stellu
vera best lýst með samskiptum
hennar og Salómóns. „í góðri trú
heldur hún blessunin að hún sé að
bjarga heiðri Gogga eiginmanns
síns sem hún veit ekki betur en
að eigi á von á „erlendum við-
skiptavini" til landsins. Hún
ákveður að drífa sig með bömin
upp í sumarbústað og bjóða þeim
erlenda í lax þar sem Goggi, óbeint
af henpar völdum, liggur á sjúkra-
húsi ófær um að sinna sínum
viðskiptum sjálfur. Stella fískar
Salómon nýkominn úr flugi og
drífur sig í orlofíð. Saólmon er hins
vegar komin til landsins í allt öðr-
um erindagjörðum, en þar með er
miskilningurinn komin af stað.
Þetta er góður „farsi" þar sem
miskilningur er á miskilning ofan
og svona meira í ætt við „farsa“
en aðrar íslenskar gamanmyndir,"
segir Edda.
Laddi kinkar kolli og bæði segj-
ast hafa skellt upp úr við lestur
handritsins, þannig að það sé ekki
svo að gamanið sé bara vinna hjá
gamanleikurum. „Nei, nei. Hins
vegar er talsvert ólíkt að vera
skemmtilegur uppi á sviði fyrir
framan áhorfendur eða fyrir fram-