Morgunblaðið - 20.07.1986, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
22 B
fclk í
fréttum
Rachel Welsh
Það verður í nógu
að snúast á þessum
bæ næstu árin.
Katie með þríbur-
ana í fanginu.
Þríburafæðing á Englandi:
Báðir foreldrarnir
eru blindir
F egurðin
krefst fórna
- en hversu stórra?
að getur varla verið neitt grín
að eignast þrjú böm á einu
bretti — og varla batnar ástandið,
ef báðir foreldramir em blindir.
Bresku hjónin Katie og Hugh
Webster em einmitt í þeirri aðstöðu
nú. „Auðvitað var þetta algert
áfall," viðurkennir Katie. „Fyrstu
tvo dagana eftir fæðingu þeirra
vonaði ég að einhver kæmi og segði
mér að það hefðu orðið einhver
mistök. Þríburamir tilheyrðu ein-
hveijum allt öðmm en okkur. Nú
emm við hinsvegar miklu jákvæð-
ari og bjartsýnni á framtíðina.
Vissulega verður þetta afskaplega
erfítt, þegar fram líða stundir og
þeir fara allir að skríða um, en með
svolítilli hjálp ætti okkur að takast
að yfírstíga þann hjalla."
Þau hjónin áttu fyrir eina dóttur,
Lizzie, sem orðin er þriggja ára.
Victoria Principal
ann í andlit sér. En þá er rétt að
gæta þess að setja það ekki mjög
nærri augunum. Húðin þar er svo
ofsalega viðkvæm," segir hún.
Victoria Principal, leikkona:
„Tuttugu bolbeygjur kvölds og
morgna, nægur svefn og næring-
arríkur matur - og það bregst ekki,
þú verður undurfögur á skömmum
tíma“, segir Victoria. „Einnig finnst
mér það mikið atriði að konur kunni
að klæða sig, gangi í víðum fötum.
Það er nefnilega ekkert sem undir-
strikar galla okkar á eins grátlegan
hátt og þröng og mjög aðskorin
föt.“
Rachel Welsh, leikkona:
„Dagblöð og tímarit hafa fullyrt
það nokkmm sinnum að ég hafí
farið í andlitslyftingu og það fleiri
en eina,“ sagði Rachel Welsh.
„Þetta er hinsvegar á engum rökum
reist. í andlitslyftingu hef ég atdrei
farið, en sé ég sléttari f andliti en
gengur og gerist með jafnöldmr
mínar þá þakka ég það yoganu.
Yoga veitir manni nefnilega hug-
arró og það skilar sér svó aftur í
útlitinu," fullyrðir hún.
- Svo nú er spumingin bara sú
hvort fegurðin sé fómanna virði?
Marisa Berenson, leikkona:
„E-vítamín,“ svaraði Marisa að
bragði, er hún var innt eftir fegr-
unar-formúlu sinni. „Ef maður
innbyrðir bara einhvem helling af
E-vítamíni, þá hræðir það hmkk-
umar á brott. Einnig er hægt að
sprengja vítamínhylkið og bera saf-
Fagrar vilja flestar konur vissu-
lega vera og beita þær ýmsum
klækjum svo sem kraftaverkakúr-
um og -kremum í viðleitni sinni til
að varðveita unglegt útlit. Sumum
tekst þetta betur en öðmm, ein-
hverra hluta vegna og gefa þær
kynsystmm sínum gjaman góð ráð,
ljóstra upp leyndarmáli sínu um
hvemig hindra beri hmkkumjmdun
o.s.frv. Hvort hinar frægu, fögm
konur segja allan sannleikann um
fegmnaraðgerðir sínar, skal ósagt
látið - en við leyfum þó formúlun-
um að fljóta hér með.
Karólína, Mónakóprinsessa:
„Ég hef tileinkað mér aðferðina
hennar mömmu, enda gafst hún
geysilega vel. Tvisvar á dag, kvölds
og morgna, smyr ég allan líkamann
með bamaolíu, læt hana vera á í
u.þ.b. 5 mínútur og skola hana svo
af í sturtunni. Þetta gerir húðina
Jbæði mjúka og hreina," segir Kar-
ólína.
En bamaolía er ekki eina leyni-
vopnið hennar. Dagleg hreyfíng
skiptir nefnilega líka miklu máli.
Hún er mikil skíðamanneskja, spilar
tennis, syndir og fer á sjóskíði,
hvorki meira né minna. „Það versta,
sem maður gerir húðinni er að sitja
í reykmettuðu lofti," segir hún.
„Því nota ég hvert tækifæri sem
gefst til að vera utandyra og leyfí
golunni að leika um andlit mitt.“
Joan Collins, leikkona:
„Ég reyki hvorki né drekk áfenga
drykki,“ fullyrðir Joan, en bætir svo
við, eftir svolitla umhugsun: „Ja,
nema náttúrulega kampavín ...“
Collins er einnig mjög meðvituð um
mataræði sitt. Ferskt grænmeti,
magurt kjöt, glænýr fiskur og
ávextir eru aðaluppistaðan í fæðu
hennar. Auk þess drekkur hún
venjulegt vatn í ómældu magni.
„Vatnið er náttúrulega nauðsynlegt
til að halda sér hreinum að utan
sem innan," segir hún. Að ætla að
freista Joan Collins með vel steikt-
um kjötbita, góðri sósu og bakaðri
kartöflu, er algerlega vonlaust. Hún
fylgir kúr sínum fast eftir, segir
mataræðið Iykilinn að fegurðinni.
Audrey Landers, leikkona:
„Mitt leyndarmál er ofureinfalt,"
segir Audrey Lánders. „Ég er ein-
faldlega hætt að borða kjöt og
fríkka með hveijum deginum. Kjöt-
ið gerir mann aðeins slappan og
sljóan og hefur áhrif á alla starf-
semi líkamans, þar með talið
hugans. Síðan ég gerðist græn-
metisæta, á ég mun auðveldara með
Joan Collins
Audrey
að hugsa skýrt og skapið hefur
gerbreyst til batnaðar. Hreyfingin
er líka nauðsynleg bæði fyrir sál
og líkama og veit ég ekkert
skemmtilegra en að skokka í
klukkustund - bæði til að halda
línunum svo og til að safna í sálar-
sarpinn."