Morgunblaðið - 20.07.1986, Síða 28
I
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1986
28 B
y Hvernig átti ég ob geto mér til urn
stacr&irvCL i qeqnurn s'imO-F "
Hjálpsamir lögreglumenn
6032-8447 skrifar:
Það er oft verið að hnjóða í lög-
regluna, en sjaldan getið þess, er
vel er gert. Ég komst í það, að loka
Veitið exemsjúkling-
um afslátt af ljósaböðum
Exemsjúklingur skrifar:
„Mig langar að leggja fyrirspum
fyrir landlækni. Er ekki hægt að
veita exemsjúklingum afslátt á
ljósaböðum hjá sólbaðstofum í
stuttan tíma. Eg er exemsjúklingur
og hef verið það í 3 ár. Hef verið
látin prófa ýmiss konar dýr ljrf sem
lítið hafa verkað og sum ekkert.
En eftir 10-15 skipti í ljósum hefur
batinn orðið slíkur að áferð húðar-
innar hefur orðið nánast eðlileg.
Þar sem sýnt þykir að í mínu til-
felli sé besta lækningin fólgin í
ljósaböðum fínnst mér eðlilegt að
hlaupið sé undir bagga með greiðsl-
ur.“
mig úti eitt kvöldið, og engin tök
á að komast inn, því ég gat ekki
nálgast aukalykla, sem ég hafði úti
í bæ.
Þá var mér ráðlagt að leita til
lögreglunnar, og ekki stóð á að-
stoð. Tveir ungir menn komu á
vettvang. Annar setti sig í þó
nokkra hættu með að klifra inn um
glugga. Þurfti hann að skrúfa úr
gluggajám. Ekki lét hann við svo
búið standa, heldur skrúfaði
gluggajámið aftur í. Þegar ég
spurði, hvort ég mætti borga fyrir
þetta var svarið: „Nei, aldeilis ekki,
við erum hér á kaupi." Þessir ungu
menn vom þar að auki sérdeilis
indælir og kurteisir.
Víkveiji skrifar
Víkveiji skrapp í golf á Grafar-
holtsvöllinn á þriðjudaginn.
Ekki væri það í frásögur færandi
nema fyrir þá sök að á vellinum
mætti hann borgarfulltrúum
Reykjavíkur með kylfur á lofti.
Voru þeir að keppa í árlegri golf-
keppni borgarfulltrúa og embættis-
manna.
Davíð Oddsson borgarstjóri sýndi
mjög fagmannlega tilburði á ijórðu
brautinni. Hann sendi hvíta boltann
með hnitmiðuðu skoti inn á flötina
og alveg upp að fánanum. Aðrir
keppendur sýndu einnig góð tilþrif.
Golfið er ákaflega heilsusamleg
íþrótt, ekki síst fyrir þá sem vinna
inni allan liðlangan daginn. í þeim
hópi eru flestir borgarfulltrúamir.
Kannski ánetjast einhveijir þeirra
íþróttinni eftir að hafa kynnst henni
í Grafarholtinu?
Golfíðkendum hefur fjölgað
gífurlega á undanfömum ámm. Það
kom fram hér í Morgunblaðinu á
þriðjudaginn, að á annað þúsund
manns hefðu tekið þátt í meistara-
mótum golfklúbbanna í landinu í
síðustu viku. Sá hópur er enn stærri
sem iðkar goif en keppir ekki í
mótum.
I Reykjavík er einn 18 holu golf-
völlur, í Grafarholti. Þá er 9 holu
bráðabirgðavöliur í landi Korpúifs-
staða. Að sögn forráðamanna
Golfklúbbs Reykjavíkur er aðsókn
geysimikil að báðum völlunum og
brýn nauðsyn að gera annan 18
holu völl í borginni. Forráðamenn
GR hafa hug á Korpúlfsstöðum
undir slíkan völi og munu hafa
rætt þann möguleika við borgar-
yfírvöld.
Það er skoðun Víkveija að ekki
sé hægt að nýta Korpúlfsstaði á
betri hátt. Grafarholt er eitt fjölsótt-
asta útivistarsvæði borgarinnar og
enginn vafi er á því að 18 holu
golfvöllur á Korpúlfsstöðum yrði
strax geysilega vinsæll. Víkveiji
trúir því að borgarfulltrúamir ger-
ist harðir stuðningsmenn GR í þessu
máli eftir að hafa kynnst töfmm
golfíþróttarinnar.
XXX
Ríkiseinokun birtist þegnum
þessa lands í ýmsum myndum.
Nýjasta uppákoman er sú að ítalska
vínið Campari hefur ekki verið flutt
til landsins í einn mánuð vegna
þess að forstjóri Áfengisverslunar-
innar er í stríði við framleiðandann
um innflutningsverð!
Það er hreint með ólíkindum að
seint á 20. öldinni skuli það geta
viðgengist að einn maður geti
ákveðið að þær þúsundir manna,
sem vanir em þessum drykk, geti
nú ekki keypt hann. Það samrýmist
ekki nútíma hugsunarhætti að fá
einum manni slíkt vald. Ef ítalski
framleiðandinn vill hækka vínið sitt
er það hans áhætta. Sumir hætta
kannski að kaupa Campari vegna
þess að verðið er of hátt. Hinir
kaupa Campari áfram vegna þess
að þeir era tilbúnir að borga 50 eða
100 krónum meira fyrir það. Valið
á að vera neytandans en ekki eins
manns, sem er ráðherraskipaður
forstjóri ÁTVR. Sá tími mun koma
að svona nokkuð verði ekki liðið
af þegnum þessa lands. Fólkið mun
segja hingað og ekki lengra. Það
mun krefjast þess réttar að fá að
kaupa þá vöm sem það vill, hvort
sem það er bjór eða vín, mótorhjól
eða bíli eða hvað sem helst.
Víkveija krossbrá á sunnudag-
inn þegar hann ætlaði að senda
frænku sinni í Mosfellssveit heilla-
óskaskeyti. Því miður, sagði stúlkan
á Ritsímanum, skeyti em ekki borin
út um helgar úti á landsbyggðinni.
Vfkveiji átti engra kosta völ, Póstur
og sími hefur einkarétt á skeyta-
sendingum og því fékk frænka hans
skeytið daginn eftir afmælið.
Stofnunin hefur gefið þær skýr-
ingar í Morgunblaðinu að ekki sé
hægt að veita þessa þjónustu um
helgar nema í höfuðborginni vegna
mikils kostnaðar. Víkveiji er þeirrar
skoðunar að í þessu tilfelli gildi það
sama og í dæminu sem _ nefnt er
hér á undan varðandi ÁTVR. Á
meðan ríkisstofnun hefur einokun
á skeytaburði sé hún skyldug að
bjóða þessa þjónustu á kostnaðar-
verði fyrir þá sem tilbúnir em að
greiða uppsett verð.
X X X
egar þessar línur em hripaðar
niður berst úr útvarpinu hljóm-
mikill lestur Einars Ólafs Sveins-
sonar á Njálssögu. Víkveiji metur
Njálu allra bóka mest og les hana
helst einu sinni á ári. En upplestur
Einars Ólafs er enn áhrifameiri en
eigin lestur því hann gerir söguna
svo Ijóslifandi.
Það er vel til fundið hjá útvarp-
inu að endurflytja lestur Einars
Ólafs en þessi tími árs er ekki heppi-
legur. Vonandi verður haldið áfram
á sömu braut. Er ekki tími til kom-
inn að endurflytja lestur Helga
Hjörvar á Bör Börssyni? Þá myndu
margir setjast við tækin.