Morgunblaðið - 20.07.1986, Blaðsíða 30
Í3Ö B
11?.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUU 1986
tic HEIMI rVll n>NI *NNA
Stephen King sest
í leikstjórastólinn
Stephen King skrifar
spennusögur sem seljast eins
og heitar lummur og hann sel-
ur kvikmyndaréttinn að bókum
sínum til leikstjóra sem hann
telur góða, en nú er hann bú-
inn að fá nóg af slíku og hyggst
gera betur í framtíðinni: Hann
ætlar sjálfur að gera myndir
sinar eftir bókum sínum. Sú
fyrsta er langt komin, verður
raunar sýnd í Bíóhúsinu síðar
í sumar.
Það er myndin Maximum
Overdrive (sem kalla mætti
Hágírinn á íslensku) og byggir
á smásögunni Trukkarnir. Sag-
an fjallar um maskínur framtíð-
arinnar sem smám saman taka
völdin af manninum. King
ákvað að leikstýra myndinni
sjálfur þar sem hann hefur
orðið fyrir svo miklum von-
brigðum með flestar hinar
myndirnar sem gerðar hafa
verið eftir bókum hans.
Ég veit hvernig á að skapa
spennu, segir þessi metsölu-
höfundur. Ég veit hvernig
lesandanum/áhorfandanum
líður, en nýja myndin á líka að
vera fyndin, því fólk vill ekki
sitja dauðspennt allan tímann.
Brandarar hafa afslappandi
áhrif en þegar áhorfendur eru
að slappa af þá kem ég með
eitthvað magnað atriði og skýt
þeim skelk í bringu.
Allar bækur Kings hafa selst
vel en vinsældir myndanna eft-
ir bókum hans hafa farið
Stephen King
dvínandi. Sú fyrsta, Carrie,
gekk vel, enda segir King að
hún hafi verið einstaklega fag-
mannlega gerð. Næst kom
The Shining sem enginn annar
en Stanley Kubrick gerði, en
King hefur lítið álit á þeirri
mynd. Kubrick vissi ekki hvað
hann var að gera, segir King,
það var enginn hryllingur í
myndinni. Fólk hló í stað þess
að skelfast. King telur að fólk
hafi misst áhugann á myndun-
um eftir The Shining. King
vinnur að því að kaupa kvik-
myndaréttinn af Kubrick og
endurgera myndina sjálfur.
Varla tekst mér að gera verri /
mynd en Kubrick, segir King.
Og hann heldur áfram:
Minnugur þess að hann seldi
kvikmyndaréttinn að bókum
sínum þeim sem fyrstir sýndu
áhuga: „Ég skil ekki hvers
vegna Kattaraugunum vegnaði
ekki betur, mér fannst hún
bara nokkuð góð og skemmti-
leg. Cujo var einnig ágæt,
en Firestarter var ömurleg
og Children of the Corn enn
verri.“
Skýringuna á dvínandi
vinsældum myndanna tel-
ur King vera þá að áhorf-
endur sjái ekki það sem
þeir hafa séð og fundið
í bókunum og einmitt
þess vegna finnst hon-
um tími til kominn að
hann spreyti sig í leik-
stjórastólnum sjálfur.
/*"
KKt
Dustin Hoffman
leikur
Willy Loman
Dustin Hoffman hefur tekið því frekar rólega síðustu
fjögur árin eða síðan hann lauk við Tootsie. Hoff-
man hagnaðist svo mikið á henni og gerð myndar-
innar reyndi svo mikið á leikarann, að hann ákvað
að taka sér góða hvíld.
Hoffman hefur þegar lokið við eina mynd. Það
er Sölumaður deyr, byggð á leikriti Arthurs Miller.
Dustin leikur að sjálfsögðu Willy Loman, roskna
sölumanninn sem finnst lífið vera búið þegar sölu-
mennskan gengur ekki. Myndin var upphaflega gerð
fyrir bandaríska sjónvarpsstöð af þýska leikstjóran-
um Volker Sclöndorff. Síðan var myndinni dreift í
kvikmyndahús, m.a. í Evrópu, en þar hefur hún vak-
ið mikla athygli.
Dustin Hoffman byrjaði fyrr á þessu ári að leika
í myndinni Ishtar, en með honum leikur enginn ann-
' ar en Warren Beatty. Ishtar er sögð verða „road-
movie“ í anda gömlu myndanna með Bing Crosby
og Bob Hope. Warren Beatty leikur náunga sem
gengur ekki alltof vel að ná í kvenfólk. Hann ferðast
um Marokkó með vini sínum, frekar misheppnuðum
söngvara sem Hoffman leikur og ungri konu sem
Isabelle Adjani, kærasta Beattys, leikur.
Myndina gerir Elaine May en hún skrifar einnig
handritið. Hún vann áður með Beatty að „Heaven
Can Wait“ og þykir með afbrigðum skopskynug
kona.
MOLAR
■\í~‘ < ■
Úr mynd Kubricks, the Shining sem King fannst ekki vera
nógu góð.
Staniey Kubrick hefur unnið að „Full Metal Jacket"
síðan í ágúst 1985, og eru menn farnir að bíða eftir
henni í ofvæni, því sex ár eru liðin síðan Kubrick gerði
síðustu mynd. Þetta mikla kvikmyndaskáld fer aldrei
troðnar slóðir og hann kippir sér ekki upp við það
þótt Víetnammyndirnar séu farnar úr tísku, en nýja
myndin fjallar einmitt um það stríð.
Sjóræningjarnir, fyrsta mynd Romans Polanski
síðan 1979, var frumsýnd í Frakklandi í júní. Þar nýtur
hún mikilla vinsælda, en hún verður sýnd í Bíóhúsinu
síðar í sumar.
Richard Attenborough byrjar á „Biko: Asking For
Trouble'1 í þessum mánuði. Mikil leit hefur farið fram
að leikara í titilhlutverkið, en Kevin Kline mun leika
blaðamanninn sem skrifaði bók um blökkumannaleið-
togann.
Bruce Beresford fær ærið verkefni að leikstýra þrem
miklum leikkonum í Crimes of the Heart, þeim Diane
Keaton, Jessicu Lange og Sissy Spacek.
Eddie Murphy byrjaði að leika í The Golden Child f
febrúar síðastliðnum. Michael Ritchie stjórnar. Myndin
gerist í Kína.
Robert de Niro, sem nýlega lauk við Trúboðsstöðina
(The Mission) eftir Roland Joffé, tók að sér aukahlut-
verk í nýjustu mynd Alans Parker, Angel Heart.
Nick Nolte lætur ekki deigan síga og vinnur um
þessar mundir að Öfgafullum fordómum (Extreme
Prejudices). Nolte þekkir leikstjórann Walter Hill síðan
þeir gerðu 48 Hrs.
Susan Seidelman er eini kvenleikstjórinn sem vinn-
ur nú að mynd á vegum kvikmyndaveranna stóru. Hún
byrjaði í apríl á „Making Mr. Right" með John
Malkovich.
Bob Rafelson hefur loksins fengið verkefni eftir sjö
rára hvíld. Hann gerði „Póstmaðurinn hringir alltaf
ftvisvar" með Jack Nícholson árið 1979, en nú vinnur
íhann að „Svörtu ekkjunni" með þeim Debru Winger i <
fog Theresu Russell. / *
Árans
vandræði!
Ein af þeim myndum sem
búist er við að vekji kátínu
og hlátur hjá áhorfendum í
sumar er ný grínmynd með
þeim hressu félögum Peter
Falk og Alan Arkin, í mynd
sem nefnist Big Trouble, og
kalla mætti Árans vandræði á
íslensku. Hér er um að ræða
síðbúið framhald af mjög vin-
sælli mynd með þeim félögum,
Tengdapöbbunum (The In-Laws)
frá árinu 1980 eða þar um kring.
Það kemur kannski mest á óvart
að leikstjóri myndarinnar er John
Cassavettes.