Morgunblaðið - 20.07.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JUU 1986
B 31
Dvínandi vinsældir
Richards Gere
Það ætlar að ganga hálf brösug-
lega fyrir Richard Gere að endur-
heimta hyllina sem hann naut fyrir
nokkrum árum. Hann hefur nú leik-
ið í nokkrum rándýrum myndum í
röð sem allar hafa brotlent í flug-
taki; með öðrum orðum, fólk er
hætt að nenna að sjá myndir hans
að því er virðist.
Gere fór vel af stað. Hann lék í
nokkrum stórgóðum myndum,
þeirra á meðal Days of Heaven,
Blóðbræður, Looking for Mr.
Goodbar (að vísu bara aukahlut-
verk) og Yanks. En það var ekki
fyrr en hann lék í American Gigolo
að hann sló í gegn og með næstu
mynd, An Officier and a Gentle-
men, varð hann einn allra vinsæl-
asti leikarinn í Bandaríkjunum
(hvað svo sem segja má um mynd-
ina sjálfa).
Besta árið hans var 1982, árið
sem offíserinn fór sem logi yfir
akur, en þá snögglega hallaði und-
an fæti. Gere gat ekki fylgt
vinsældum sínum eftir því mynd-
irnar sem hann kaus að gera voru
vægast sagt slappar. Hann byrjaði
á því að leika í Breathless sem var
endurgerð á franskri giæpamynd.
Síðan lék hann í Heiðurskonsúln-
um (eftir bók Grahams Greene).
Hvorug þeirra náði til almennings.
Þegar svo var komið mátti búast
við að Gere reyndi að vanda valið,
en þá kaus hann að leika engan
annan en frægasta Davíð sögunn-
ar, Salómonsson. King David var
gríðarlega dýr í vinnsiu en var aldr-
ei sýnd nema í örfáa daga því
áhorfendur létu sig vanta. Epískur
kvikmyndaskáldskapur byggður á
biblíunni var vinsæll fyrr á öldinni,
en á miðjum níunda áratugnum
er hann tímaskekkja; það var dóm-
ur almennings.
Enn fékk Gere ágætis tækifæri
til að spreyta sig á ný, þegar Copp-
ola fékk hann til að leika aöalhlut-
verkið í 50 milljón dollara mynd
sinni The Cotton Club en það verð-
ur sennilega ekki við Gere að
sakast þótt myndin sú nyti ekki
þeirrar hylli sem framleiðendur
vonuðust til. Þó var Cotton Club
næstvinsælasta myndin sem Ric-
hard Gere hefur gert, næst á eftir
Offísernum. Og fyrr á þessu ári
var sýnd hans nýjasta mynd, Pow-
er. Hún hvarf fljótt þótt myndina
skrýddu nöfn heimsfrægra leikara,
auk Geres, þeirra Gene Hackman
og Julie Christie. En gæði mynda
verða ekki dæmd eftir gengi þeirra
á peningamarkaðinum. Power,
sem sýnd verður í Bíóhöllinni í
haust, þykir marka viss tímamót
hjá Richard Gere. Hann er farinn
að takast á við þroskaðri og merk-
ari hlutverk, hlutverk sem vissu-
lega breyta ímynd hans.
i bilnum.
Góður hátalari er lykillinn að
góðum hljómburði.
Roadstar AD-3800X frábœrir
120 watta hátalarar á aöeins 5.890,- kr. pariá
Roadstar RS-400 er
sérhannaöur tii aö flytja mœlt mál.
Ómissandi fyrir bílstjórann, sem þá losnar viö
að ver sífeilt að hœkka og lœkka í útvarpinu.
Roadstar kraftur-hljómgœði
Roadstar i bilinn
VIO TÖKUM VEL
Á MÓTIÞÉR
19
SKIPHOLTI
SÍMI 29800
Roadstar RS-960X 4 hátalarar,
-2 i hurö og 2 affur í-
150 watta hátalarar á aöeins 10.900,- kr.
r