Morgunblaðið - 27.07.1986, Síða 26

Morgunblaðið - 27.07.1986, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1986 Niðjar Guðrúnar Runólfsdóttur og Sveins Jónssonar: Fjölmennt ættarmót undir Eyjafjöllum ÆTTARMÓT hafa færst mjög í vöxt hér á landi að undanförnu enda hafa íslend- ingar löngum verið áhuga- samir um ættir sínar og uppruna. Hinn 12. júlí síðast- liðinn var haldið fjölmennt ættarmót í samkomuhúsinu Heimalandi undir Eyjafjöll- um, en þar komu saman niðjar Guðrúnar Rúnólfsdótt- ur og Sveins Jónssonar, sem kenndur var við bæinn Steina undir Eyjafjöllum. Þetta var í fyrsta sinn sem ættin kom saman á skipulögðu ættar- móti og var mótið haldið í tilefni þess, að á þessu ári eru 100 ár síðan þau Guðrún og Sveinn gengu í hjónaband. Veg og vanda af undirbúningi mótsins höfðu þær Lilja Ársæls- dóttir frá Vestmannaeyjum og Inga V. Einarsdóttir, eiginkona Sveins K. Sveinssonar í Völundi. Inga sagði í samtali við Morgun- blaðið að mótið hefði heppnast afar vel og heimtur hefðu verið framar öllum vonum. „Það komu um 220 manns og úr sumum fjölskyldunum vantaði ekki einn einasta mann,“ sagði hún. „Þama var fólk á öllum aldri, allt frá fjögurra mánaða og upp í 78 ára. Bömin voru í miklum meirihluta og hafa sjálfsagt skemmt sér best en annars voru allir ákaflega ánægðir. Þama hitt- ist til dæmis skyldfólk, sem aldrei hafði sést áður og dæmi voru um, að fólk sem þekktist áður upp- götvaði þama á mótinu að það var skylt eða tengt venslaböndum," sagði Inga ennfremur. Hún sagði að hugmyndin að þessu ættarmóti hefði vaknað fyrir 12 árum, eftir Vestmanneyjagosið. Þá kom fjölmenn ættgrein frá Vestmannaeyjum til meginlands- ins og á stuðningssamkomu vegna gossins var hugmyndin reifuð í fyrsta sinn. „Það tók okkur þó 12 ár að hrinda þessu í framkvæmd og óvíst hvort þetta verður endur- tekið. Reynslan af þessu var þó það góð að það væri gaman að endurtaka þetta, eftir svona fimm eða tíu ár,“ sagði Inga. Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ AFKOMENDUR Sveinn Jónsson fæddist að Stein- um undir Eyjafjöllum þann 19. apríl Komið úr kirkju á sunnudag Þær voru í hópi hinna yngstu, Edda Rún af 5. ættlið og Elsa Val- borg af 4. ættlið. Guðrún Runólfsdóttir Sveinn Jónsson Sigríður Pétursdóttir, ekkja Sigurðar Sveinssonar í Vestmannaeyjurn og sú eina sem er eftirlifandi af 1. kynslóðinni, ræðir við Bryndísi Björnsdóttur sem tilheyrir 2. kynslóð. Allir Sveinamir vora kallaðir upp á svið. Bragðið á leik á laugardag. Á ballinu á Heimalandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.