Morgunblaðið - 27.07.1986, Síða 45
BBGÍ LlÖlt ,VS HUOAQUVU4U8 ,GIGAíJSMÚOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1986
heiminum. Til samanburðar má
nefna að tæplega 33% þess jarð-
varma, sem nýttur er, fara til
raforkuframleiðslu. “
Frumkvæði hér á landi
Við íslendingar nýtum jarðvarma
í stórum stfl, fyrst fremst til hús-
hitunar, en jaftiframt til raforku-
framleiðslu og ylræktar. Nokkrir
framsýnir aðilar hafa og haft frum-
kvæði um nýtingu hans til heilsu-
bótar. Má þar nefna Gísla
Sigurbjömsson, forstjóra, sem
byggt hefur hliðarstarfsemi Elli-
heimilisins Grundar í nánd heitra
hvera í Hveragerði. Ennfremur
heilsubótarstöð NLFÍ í Hveragerði
og aðra slíka, sem félagið reisir á
Akureyri. Nýtt glæsihótel Helga
Þórs Jónssonar í Hveragerði mun
og reist að hluta á möguleikum, sem
hér um ræðir. Og nefna verður Bláa
lónið í Svartsengi, þó þar séu að-
eins stigin hin fyrstu skrefín að því
sem líkur standa til. „Má þó í þessu
sambandi ekki gleyma hinum fjöl-
mörgu sundstöðum um land allt
sem nýta heita vatnið til heilsubót-
ar, þótt þeir falli að mestu utan
ramma þessarar tillögu," segja
flutningsmenn.
Verðmæt náttúrugæði
Í tilvitnaðri greinargerð þeirra
segir og:
„Að áliti flutningsmanna er
löngu orðið tímabært að hér á landi
verði hafizt handa um byggingu
alhliða heilsubótarstöðva þar sem
nýttur væri jarðvarmi, hveravatn,
hveraleir og ölkelduvatn. Þar er um
náttúrugæði að ræða sem óvíða er
að finna í Evrópulöndum og skapa
þau því betri aðstöðu til fram-
kvæmda á þessu sviði hér á landi.
Slíkar heilsubótarstöðvar mundu,
eins og reynslan í Hveragerði sýn-
ir, verða sóttar í verulegum mæli
af íslendingum. En einnig má telja
líklegt að útlendingar sæktu slíkar
stöðvar í miklum mæli ef vel tekst
til um framkvæmdina og kynningu
þeirra erlendis. Gæti stofnun heilsu-
ræktarstöðva hérlendis á þann hátt
stuðlað mjög að því að ferðamenn
sæktu hingað til lands í auknum
mæli og skapað bæði atvinnu á
nýjum vettvangi og gjaldeyristekj-
ur.“
Ljóst er að framangreind þings-
ályktun víkur að möguleikum, sem
sjálfsagt er að skoða vel. Þess
vegna er framkvæmd hennar tíma-
bær. Kapp er hins vegar bezt með
forsjá, hér sem annars staðar. Eftir-
spum ræður ferð og arðsemi.
Efnahagsástand, bæði hér og í
umheiminum, ræður miklu um
streymi ferðafólks heimshoma á
milli, jafnvel þótt áningarstaður
bjóði eftirsótta kosti, svo meta verð-
ur áhættu meðfram ágóða.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
45
Sigurður H. Einars-
son - Minning
Fæddur 22. september 1925
Dáinn 18.júlí 1986
Þann 18. júlí sl. lést í Landakots-
spítala í Reykjavík afi okkar
Sigurður Einarsson.
Okkur langar að minnast Sigga
afa eins og við kölluðum hann, með
nokkmm orðum, þó ætt hans eða
æviferill verði hér ekki rakin. Siggi
afi var glaðvær maður og gaman-
samur með mikla kímnigáfu. Hann
naut þess að vera í góðra vina hóp
og hafa líf og fjör í kringum sig.
Siggi afí var þrátt fyrir líkamlegt
heilsuleysi síðari ár lánsamur mað-
ur. Hann ólst upp á ástríku heimili
umvafinn ást og hlýju foreldra sinna
og einkabróður. Hann átti góða
konu sem var honum stoð og stytta
alla tíð. Hann átti fjögur mann-
vænleg böm og þrettán bamaböm
sem öllum þótti vænt um hann.
Siggi afi átti iíka ómetanlega
trygga vini sem reyndust honum
vel allt til hinztu stundar.
Alla amma og Siggi afi vom
mjög samrýnd og áttu saman marg-
ar góðar stundir. Oft var gest-
kvæmt á Selvogsgötunni og þá
líkaði nú afa lífíð. Já, það var ósjald-
an sem hann laumaði að okkur
sælgætismola er við heimsóttum
hann á Selvogsgötuna og það kunn-
um við öll að meta. Það kom líka
oft fyrir að við gátum platað hann
afa í spil við okkur, þó þau minnstu
okkar varla þekktu á spilin.
Siggi afi átti við erfiðan sjúkdóm
að stríða og var óvinnufær sl. níu
ár. Það furðar okkur því hve sjald-
an hann kvartaði en reyndi þess í
stað að bera sig vel og gera lítið
úr heilsuleysi sínu. Síðasta mánuð
var mjög af honum dregið og lést
hann eftir þriggja vikna sjúkrahús-
legu.
Hann Siggi afí trúði á líf að þessu
loknu og það gerum við líka. Við
trúum því að þar sem hann er núna
gangi hann heill, laus við þrautir
og þjáningar.
Mikill er missir Öllu ömmu og *
biðjum við guð að blessa hana og
styrkja á þessari erfiðu stund.
Að leiðarlokum viljum við þakka
Sigga afa þær stundir sem við átt-
um með honum og biðjum algóðan
guð að veita honum góða heim-
komu.
Blessuð sé minning afa okkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir alit og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
Hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt
(Vald. Briem)
Bamabömin
Sumarhús á strönd
Nýjung sem hrittir i marh
WEISSENHAUSER STRAND, glæsilegur sumardvalarstaður um 100 km norður af Ham-
borg. Frábær aðstaða fyrir alla aldurshópa, góður vettvangur leikja og útiveru.
WEISSENHAUSER STRAND er frábærlega vel í sveit sett, stutt til ótal forvitnilegra staða.
Má þar nefna glæsilega tívolígarðinn HANSALAND, dýragarðinn í Hamborg, sem er frægur
um víða veröld, og vilji menn skreppa til Kaupmannahafnar er aðeins um 3ja klst. akstur til
borgarinnar við sundið.
RÚSÍNAN í PYSLUENDANUM: BREIÐ OG GÓÐ BAÐSTRÖNDIN.
Beint dagflug með ARNARFLUGI til HAMBORGAR alla sunnudaga.
I
Verðdæmi: kr.
á mann, miðað við 4ra manna fjölsk. í eina viku.
dtCOMW
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388
•Umboð a Islandi fyrir
DINERSCLUB
INTERNATIONAL
28580