Morgunblaðið - 27.07.1986, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 27.07.1986, Qupperneq 64
Morgunblaðið/Ámi Sæberg Skátar setja upp tjaldbúðir í Viðey í gænnorgnn. Landsmót skáta sett í Viðey í dag LANDSMÓT skáta verður sett í Viðey klukkan þrjú í dag og um leið stofnað nýtt lýðveldi þar sem skátar ráða ríkjum fram tii 3. ágúst er mótinu lýkur. Setningarathöfn mótsins verður að fyrirmynd stofnunar lýðveldis á Islandi og er gömlum skátum sérstaklega boðið að vera viðstaddir. Þáttakendur á mótinu eru um þúsund talsins, íslenskir skátar víðsvegar að af landinu erlendir skátar frá 11 þjóðlöndum auk þess sem öllum stendur til boða að dvelj- ast í fjölskyldubúðum í lengri eða skemmri tíma og taka þátt í dag- skrá mótsins. Eftir setningu mótsins í dag verður m.a. kynningarleikur og tjaldbúðarvinna auk þess sem skráning í dagskrá fer fram frá kl. 17.30. Eftir kvöldverð verður torgvarðeldur og boðið upp á kakó á meðan. A morgun, mánudag verður ræst kl. 8.00. Tjaldskoðun hefst kl. 9.15 og kl. 10.00 hefst dagskrá, sem stendur fram eftir degi með hádegisverðar- og kaffi- hléi. Um kvöldið kl. 21.00 verður félagavarðeldur og boðið verður upp á kvöldhressingu, eins og áður. Undirbúningur fyrir þetta mót hefur verið viðfangsmikill og bæði staðarval og hluti dagskrár tekið mið af 200 ára afmæli Reykjavík- urborgar. Til dæmis verður borgar- búum boðið á kvöldvöku í Laugardalshöll á þriðjudagskvöld eftir að mótsgestir hafa spreytt sig á götuleik um borgina þvera og endilanga. Og á þjóðhátíð lýðveldis- ins í Viðey, laugardaginn 2. ágúst, gefst svo þeim sem aðeins ætla að dvelja einn dag í lýðveldinu færi á að koma í heimsókn og taka þátt í hátíðarhöldunum sem hefjast með skátatívolíi og vatnasafaríi, þá verður grillveisla og loks varðeldur og flugeldasýning. Mótssvæðið í Viðey. Landsvirkjun: Fyrirhugar kaup á jarð- varmaveitu í Bjamarflagi Kaupverð 120 millj. er greiðast á 15 árum LÍKUR eru á að stjórn Landsvirkjunar muni á næstunni taka ákvörðun um kaup á eignum Jarðvarmaveitna ríkisins í Bjarnarflagi. Samkvæmt fyrirliggjandi samningsdrögum mun Landsvirkjun kaupa umræddar eignir á 120 milljónir króna, miðað við verðlag í apríl 1985, sem greiðist á 15 ^rum. Stjóm Landsvirkjunar óskaði eftir því á sínum tíma að eignarað- ilar að fyrirtækinu, sem em auk ríkisins Akureyrarbær og Reykjavíkurborg, létu í ljós af- stöðu til fyrirhugaðra kaupa á áðumefndum eignum. Bæjarráð Akureyrar hefur fyrir sitt leyti samþykkt kaupin, en á fundi borg- arráðs Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag var samþykkt að mæla ekki með umræddum kaupum. Hins vegar taldi borgarráð að stjóm Landsvirkjunar bæri að af- greiða málið endanlega. Fyrir liggur samþykki iðnaðarráðherra, fyrir hönd ríkisins, um fyrirhug- aða sölu á umræddum eignum. í fyrirliggjandi samningsdrög- um, sem byggð em á heimildar- lögum frá Alþingi frá því í desember sl., sem þá vom sam- þykkt í tengslum við sölu á Kröfluvirkjun, ábyrgist ríkis- stjómin fyrir sitt leyti tiltekið lágmarksverð á gufu frá Kísiliðj- unni hf. til næstu 15 ára, en Kísiliðjan hf. er aðalviðskiptaaðili Jarðvarmaveitnanna. Viðræður við sjóm Kísiliðjunnar hf. um breytta tilhögun orkusölu til verk- smiðjunnar hafa staðið yfír að undanfömu og er þeim nú lokið, en þær viðræður vörðuðu, auk sölu á gufu, gerð nýs samnings um sölu á raforku. Viðræður við „Manville Corpor- ation“, meðeigenda ríkisins að Kísilidjunni hf., um endurskoðun á orkusölu til verksmiðjunnar standa nú yfír og er áætlað að þeim ljúki í september næstkom- andi. Þær viðræður munu þó ekki hafa nein áhrif á fyrirhuguð kaup Landsvirkjunnar á eignum Jarð- varmaveitna ríkisins í Bjamar- flagi. Laxá í Aðaldal: Fimm 22,5-27 punda laxar á einum degi MIKIL stórlaxaveiði hefur verið í Laxá í Aðaldal það sem af er sumri, sérstaklega í löndum Ness og Araess, en þar veiddust á föstudaginn fimm laxar yfir 20 pund, sá stærsti 27 punda, en hinir fjórir allir 22,5 punda. Þar með hafa 25 laxar frá 20-27 pund veiðst á þessu veiðisvæði Laxár, en heildaraflinn þar er um 200 fiskar. Það var Nicholas Rowey sendiherra Bandaríkjanna sem veiddi stærsta laxinn, 27 punda hæng sem áður segir, og tók sá stóri Blue Charm nr. 8 í Prest- hyl. Hinir laxarnir veiddust meðal annars á Skerflúðum, í Lönguflúð og Vitaðsgjafa. Að sögn Völundar Hermóðssonar í Álftanesi, muna menn þar um slóð- ir ekki eftir öðru eins stórlaxasumri, en svo virðist sem þeir stærstu kunni sérstaklega við sig á þessum slóðum í sumar, því til samanburðar má geta þess, að á svæðum Laxár- félagsins hafa veiðst yfír 1.100 laxar og þó meðalþunginn hafí ver- ið hár, hafa „aðeins" 20 laxar verið 20 punda og þar yfír, enginn stærri en 23 punda. Um 1400 laxar hafa veiðst í Laxá þegar á heiidina er litið og er mikið af laxi í ánni. Hafa menn verið að spá allt að 3.000 laxa sumarafla. Lokahátíð N’ART í dag N’ART listahátíðinni lýkur í dag. Að sögn Kolbrúnar Péturs- dóttur, starfsmanns hátíðarinn- ar, hefur aðsókn á einstaka liði verið mjög misjöfn, en á annað þúsund manns hafa hlustað og horft á atriðin í Sirkusíjaldinu á túninu við Norræna húsið. N’ART hefur verið opið al- menningi frá 18. júlí. Hluti þeirra listamanna sem lögðu skerf til hátíðarinnar fór í ferð um landið og má sjá afrakstur vinnu þeirra á leiðinni í Hlaðvarpanum og Borgarskála. Þessum sýningum lýkur einnig í kvöld. „Þáttakendur eru alveg í skýjunum, þetta hefur verið frábær tími. Aðsóknin í klúbb hátíðarinnar í Félagsstofn- un sýnir okkur að fólk kann að meta þennan viðburð. Þar hefur ríkt afslöppuð og þægileg stemmning“ sagði Kolbrún. Eitt vinsælasta atriðið á dag- skrá hátíðarinnar, að sögn Kol- brúnar, voru sýningar Ludviga Mini Sirkus frá Svíþjóð. Bömin í fjölleikahúsinu koma fram á loka- hátíð í fyaldinu í dag, ásamt félögum úr leikhópnum „Veit mamma hvað ég vil?“. Þar verður einnig flugdrekahátíð og sagðist Kolbrún vonast til að sem flestir flugmenn mættu með dreka sína. Einnig væri efni í flugdreka til reiðu, fyrir þá sem vilja smíða slíkan grip í tilefni dagsins. Um kvöldið verður þriðja sýning fínnska leikhópsins Porquettas í Borgarskála, kl. 20.30. Dag- skránni lýkur með tónleikum tríós bassaleikarans Niels-Henning Örsted-Pedersen, kl. 21.00 í Tjald- inu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.