Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 52
&
möRgííííbláðíð, 5§unnudá6ur-W: Adftá¥
titt/iAfln
j?
Ég sagbi þér- a£ dreidox £etto_
©kki cé íustondi ma^íi,"
hönd dóttur þinnar.
Með
morgunkaffinu
Ég sagði við manninn
minn: Ef þú dettur í það
skaltu ekki ómaka þig
heim! Og síðan hef ég ekki
séð hann!
HÖGNI HREKKVÍSI
i \ \\ \ \\ íi \\p=t\\ Í \\\ \\\ •\y\ \\T \ \V 1
WV AVpo \\ i \V( \vC?\\vA^ „ á
Stjörnuspekin afhjúpuð
7906-6435 skrifar:
„Hér á eftir fara nokkur atriði,
sem endanlega afhjúpa falseðli
stjörnuspekinnar.
A) Stjömuspekin segir, að eðli
mannsins ráðist á fæðingarstundu
hans, hvenær hann er fæddur og
hvar. Hins vegar staðhæfa vísindin,
að þróun hugans hefjist strax við
getnað og hann sé í grundvallarat-
riðum fullmótaður fyrir fæðingu.,
Ekki þarf að minna fólk á erfðir,
hvernig bæði útlit og eiginleikar
koma fram kynslóð fram af kynslóð
í sömu ætt. Stjörnuspekin cr því í
öllum atriðum óvísindaleg og kenn-
ingar hennar flestar stangast á við
staðreyndir.
B) I árdaga, þá er stjörnuspekin
varð til, miðuðu menn við stjörnu-
merki sjóndeildarhringsins. Þá var
til að mynda Ljónsmerkið á himni
þannig, að sól gekk inn í það 23.
júlí eða þar um bil. Við þetta miða
sumir stjömuspekingar ennþá.
Þannig er það einmitt með önnur
mei-ki Dýrahringsins. Öll merkin
(kissuðu nákvæmlega við stjörnu-
merki himinsins. Þetta kerfi er enn
í notkun og talið gilt. — Málið í dag
er hinsvegar það, að afstöður í
geimnum hafa breyst. Nú gengur
sólin t.a.m. inn í Ljónsmerkið 10.
ágúst og út úr því 15. september,
og spannar því Ljónsmerkið í raun
þetta tímabil á okkar dögum, þ.e.
frá 10. ágúst til 15. september.
Þannig er þessu einnig háttað með
önnur stjömumerki. Sumir stjörnu-
sj)ekingar á okkar diigum telja.að
stjörnumerkin dragi ekki eðli sitt
af hinum fjarlægu stjörnumerkjum
dýrahi-ingsins, heldur séu hin jarðn-
esku merki einskonar sólkei-fisvís-
indi, að merkin mótist af reikistjörn-
um sólkerfís okkar og árstíðum. —
Þá vakna spurningarnar: Hvernig
má það vera, að merkin á jörðu hér
samræmdust svo algerlega stjörnu-
merkjum dýrahringsins í fomöld?
Slíkt getur ekki verið nein tilviljun.
Ef því eitthvað er ti) í stjömuspek-
inni, þá hlýtur hún að halda sig við
stjörnumerki dýrahringsins — og
verður að taka tillit til afstöðubreyt-
inga. En ef hins vegar stjörnuspekin
er fmmspeki og þvættingur frá
rótum, sem er miklu líklegra, þá
þarf hún ekki að taka tillit til af-
stöðubreytinga, þetta er einfalt
mál. Stjörnuspekingur hér á landi
heldur því fram, að eðli merkjanna
ráðist af árstíðum. Hvernig er því
þá farið með þá, sem búa á suður-
hveli jarðar, eða þá sem búa á
miðbaugi? Eru sér merki fyrir norð-
urhvelið? Hér stangast hvað á
annars koll.
C) Lýsing á hinum hreinu merkjum
er auðvitað hreinn þvættingui1, ef
hver og einn er samansettur úr
mörgum merkjum. Slík lýsing er
ekkert annað en (K'rsónugerving
vissra mannlegra eiginleika, eins
konar goðafraíði, þar sem þeir eru
ýmist lofaðir af trúarlegri og skáld-
legri vellu leirskálds, eða fordæmdir
með viðeigandi orðaforða af sama
leirskáldi.
D) Varðandi reikistjörnurnar má
spyija, hvað gerast mundi, ef Merk-
úr hyrfi í cldhaf sólar? Yrðu menn
ruglaðir og hættu að hugsa? Sama
er hægt að spyija um aðra hnetti.
E) Ókostir stjörnus(>ekinnar eru
margir. Hún elur á ranghugmynd-
um og ímyndunarheimi, hún elur á
sundrungu og metingi, hún skrýðir
menn kostum sem þeir hafa í raun
ekki og níðir aðra, sem ekki eiga
það skilið, hún ruglar mat manna
á fólkinu sem þeir umgangast,
staðlar menn og einfaldar sálrænan
veruleik, hún stangast á við stað-
reyndir og vísindi, hún kemur óorði
á sannan dulrænan veruleik heims-
ins, — í fáum orðum sagt, þá hefur
hún mjög óheillavænleg áhrif á
mannlega skynjun og hugsun,
ruglar eðlilegum samskiptum
manna og mati þeirra hvers á öðr-
um. Auk þess leggur hún áherslur
á mjög umdeilanleg atriði.“
Víkveiji skrifar
Víkveiji ber ákaflega hlýjan hug
til Húsavíkur. Því hefur gott
gengi húsvískra tónlistarmanna í
sumar glatt hans hjarta. Bjarni
Hafþór Helgason reið á vaðið í vor
og sigraði með glæsibrag í sam-
keppni um afmælislag Reykjavíkur.
Sá misskilningur hefur verið æði
útbreiddur að Hafþór sé Akur-
eyringur af því að hann vinnur þar
en það er af og frá. Hann er
Húsvíkingur í húð og hár.
Um svipað leyti og Hafþór tók
við verðlaunum fyrir sigurlagið var
unglingahljómsveitin Greifarnir að
slá í gegn í Músíktilraunum Tóna-
bæjar og rásar 2. Þeir höfðu að
lokum sigur eftir harða og tvísýna
baráttu við nokkrar sveitir. Greif-
arnir bættu svo um betur skömmu
fyrir verzlunarmannahelgi er þeir
komust í efsta sæti vinsældalista
rásar 2 og urðu þar með fyrstir
húsvískra tónlistarmanna til að
komast í þetta eftirsótta sæti. Það
má svo geta þess í framhjáhlaupi
að hljómsveitin Skriðjöklar á Akur-
eyri komst á vinsætdalistann með
aðstoð Húsvíkinga. Þeir Bjami
Hafþór og Arnar Björnsson lögðu
þeim til lagið „Tengja“, sem þaut
upp vinsældalistann.
Og áður en skilið -verður við
Húsvíkinganna er skylt að geta
frammistiiðu knatts|)yrnuliðs
þeirra, Völsungs, sem virðist þegar
þetta er ritað eiga góða möguleika
á að hre|)j)a sæti í 1. deild næsta
sumar.
XXX
Hins vegar olli það Víkveija
vonbrigðum þegar hann hitti
á dögunum mann, sem hafði snætt
á Hótel Húsavík og orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum. Maðurinn sagði
að maturinn hefði bæði verið lítill
og illa framreiddur.
Umræddur maður kvað þessa
reynslu ekki vera einsdæmi. Oftar
en ekki yrði hann fyrir vonbrigðum
á matsölustöðum úti á landsbyggð-
inni. Stefna matreiðslumannanna
virtist vera sú að apa eftir fínustu
veitingahúsunum í Reykjavík og
hafa matinn í knappara lagi en
þeim mun meira væri af skreyting-
um á diskinum. Fyrir glorsoltinn
ferðalang væri þetta afleitt. Og við-
mælandi Víkveija klykkti út með
að segja að ekki aðeins væri for-
dæmi fínustu veitingahúsa
Reykjavíkur fylgt í matreiðslunni
heldur væri verðskráin augljóslega
höfð til hliðsjónar líka!
XXX
Lögreglan hefur verið með mikla
herferð að undanförnu, sem
aðallega hefur beinst að hraðakstri
og ölvunarakstri. Ekki sýnist
Víkveija vanþörf á að taka hart á
ciðnjm þáttum umferðarinnar.
Sérstaklega er áberandi upp á
síðkastið hve ökumenn aka orðið á
rauðu ljósi. Ekki er óálgengt að
tveir til þrír bílar aki yfír gatnamót-
in eftir að rauða Ijósið er komið.
Menn ættu að veitu þessu sérstaka
athygli þegar þeir t.d. aka eftir
Miklubrautinni næst.
XXX
Skattamálaumræðan hefur
hjaðnað furðu fljótt. En enginn
vafi leikur á því að undir niðri
brennur óánægjan hjá þeim prós-
entum þjóðarinnar, sem ber megin
hluta skattbyrðarinnar. Sumt af
þessu fólki á vart til hnífs og skeið-
ar seinni hluta árs vegna svimandi
hárra skatta.
Svo eru það hinir sem af ýmsum
ástæðum geta hagrætt skattfram-
tölum sínum þannig að byrðamar
lenda á manninum í næsta húsi.
Víkveiji hefur aldrei getað skilið
hvemig þetta fólk getur litið framan
í nágranna sína. Þetta er kannski
fólk sem á allt til alls, hús, bíla, fer
í utanlandsferðir mörgum sinnum á
ári en er svo með tekjur undir fá-
tækramörkum. Maðurinn í næsta
húsi er jafnvel að borga fyrir það
sorphirðuna!
Sanngjamari skattheimta er eitt
mesta réttlætismál dagsins í dag.
Þolinmæða fólks er á þmtum, það
mega stjómmálamenn vita.
XXX
á er afmælishátíðin mikla að
ná hámarki og afmælisdagur
Reykvíkinga er á morgun. Það er
von Víkveija að hann verði öllum
eftirminnilegur, Reykvíkingum og
gestum þeirra. Víkveiji sendur
Reykjavík beztu afmælisóskir.