Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.08.1986, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 Taylor ísvélar fyrirliggjandi Hagstætt verd. Góð kjör. Eiríkur Ketilsson Heildverslun, Vatnsstíg 3. Símar: 23472, 25234, 19155. Torfæniaksturs- keppni Stakks hin árlega torfæruaksturskeppni björgun- arsveitarinnar Stakks, Keflavík-Njarðvík, verður haldin við Hagafell í Grindavík, sunnudaginn 31. ágúst nk. Keppt verður í tveimur flokkum, flokki götubíla og flokki sérútbúinna jeppa. Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig í símum: 92-1102 (Þorsteinn), 92-3666 (Sævar). Sjö ný lönd í gagna- netinu Samband við Telenet í Bandaríkjunum og Tymnet bætist við innan skamms NOTENDUR „gagnanets" Pósts og síma geta nú róið á fleiri mið en áður. Nýlega voru opnuð sam- bönd við Finnland, Noreg, Svíþjóð, Frakkland, Holland, Vestur-Þýskaland og Telenet- kerfið í Bandaríkjunum. Sam- bönd við Danmörk og Bretland voru þegfar opin. Að sögn Ragn- ars Benediktssonar, deildar- stjóra tæknideildar, eru þegar um 60 fastir notendur tengdir netinu. Auk þeirra eiga á annað hundrað tölvueigendur aðgang að því um sk. „upphringimótöld". Unnið er að því að víkka notkun- arsvið gagnanetsins, og í náinni framtíð verður hægt að nota það til að senda og taka við telex- skeytum. Eins og nafn þess gefur til kynna er gagnanetið notað til að flytja gögn frá einni tölvu tii annarrar. Notandi á Íslandi byrjar á því að hafa samband við íslenska gagna- netið, sem er riðið í heila tölvu í Múlastöð símans. Síðan velur hann númer þess lands sem hann hyggst hringja til. Einkennisnúmer Tele- net-kerfisins í Bandaríkjunum er t.d. 3110. Tölvan í Múla kallar þá upp sambærilega vél vestan liafs, og getur íslenski notandinn „hringt" í hverja þá tölvu sem tepgd er netinu. Boðflutningurinn fer um „gagna- línur" og er kostnaður við hverja sendingu minni en ef hringt er beint til útlanda. Auk þess eru sending- arnar villuprófaðar, og getur sendihraði verið allt að 16 sinnum meiri en með venjulegu símasam- bandi, eða 19.200 „baud“. Til dæmis um verð, kostar hvert „gagnasímtal" við Bandaríkin 27 aura, og hver byrjuð mínúta 3 krón- ur. Einnig er greitt eftir magni. Fyrir u.þ.b. 640 stafi (bókstafi, töl- ur og tákn) borgar rrotandi 2 krónur. Sem dæmi má nefna að í þessari frétt eru tæplega 3.000 stafir, og myndi því kosta 10 krón- ur að senda hana yfír hafið. Við þetta þarf að bæta tímagjaldi, stofnkostnaði og ársfjórðungs- gjaldi. Tveir síðastnefndu kostnað- arliðimir eru óháðir notkun, en miðast við hversu öflugum búnaði notandinn beitir við gagnaflutning- inn. Ragnar sagði að til væra þijár meginleiðir til að gerast aðili að gagnanetinu. Notandi getur verið með fasta símalínu og sent gögn með tvennskonar liætti, sem meðal sérfróðra gangast við nöfnunum „X.25“ og „X.28“. Þriðji möguleik- inn byggist á áðumefndum „upp- hringimótöldum“ og lientar hann þeim sem senda gögn af og til. Til þess að notfæra sér netið á bennan hátt þarf aðeins einkatölvu, venju- legt samskiptaforrit, nótald og síma. Stofngjald slíks notanda er 1.150 krónur og ársfjórðungsgjald- ið 575 krónur. Einkennisnúmer þeirra landa sem nú er komin tenging fyrir era þessi: Finnland og Noregur númer 2442, Svíþjóð númer 2402 og 2405, Frakkland númer 2080, Holland númer 2041, Vestur-Þýskaland númer 2624. Hver upphringing kostar 27 aura, hver byjjuð mínúta 1 krónu á Norðurlöndunum en 1,60 á meginlandinu. Magngjald fyrir 640 stafí er 1 króna. Telenet í Bandaríkjunum er númer 3110, hver mínúta kostar 3 krónur, magn- gjaldið er 2 krónur. Upphringing kostar það sama og annarstaðar. Að sögn Ragnars verður „Tym- net“-kerfíð í Bandaríkjunum opnað okkur Islendingum innan skamms. Reynt verður að ljúka upp „gagna- gáttum" sem víðast og er takmarkið að netið verði jafn þéttriðið og síma- kerfið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.