Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 31

Morgunblaðið - 17.08.1986, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGUST 1986 B 31 Úr annálum Tolla skyldi óþarfa hunda AFSTAÐA til hunda í þéttbýli á Islandi er ólík því sem gerist í öðr- um löndum, en hin íslenska andúð á hundum á sér sögulega skýringu. Þar sem sambýli sauðrjár, hunda og manna var náið átti sullaveikis- bandormurinn heima. Suilaveikin var svo útbreidd hér á landi að fjöldi fólks gekk með sulli. Arið 1864 gerði Harald Krabbe kunnar rannsóknir sínar og Jóns Finsen á sullaveiki á íslandi og sýndi fram á samhengið milli hunda, sulla í kindum og sulla í mönnum. Vísinda- menn höfðu áður ráðið þessa gátu að mestu, en eftir var að sannprófa hana með tilraunum. Rannsókn Krabbe leiddi í Ijós að 75% hunda höfðu netjusullsbandorm, 18% þeirra höfðu höfuðsóttarbandorm og 28% ígulbandorm. Stjómin lét prenta bækling eftir Krabbe um sullaveikina og dreifa um landið. Arið 1867 lagði hún svo fyrir alþingi frumvarp um hunda- hald á Islandi og var Krabbe með í ráðum við samningu þess. Það miðaði að fækkun hunda með þvl að skattleggja alla hunda á landinu. Jón Hjaltalín landlæknir kynnti málið á alþingi með því að biðja þingmenn að hafa það ekki í „fíflskaparmálum". Ógn sullaveik- innar var alþingismönnum ljós og þeir sömdu nýtt frumvarp sem gerði ráð fyrir læknun hunda með orma- lyfjum. Þetta frumvarp gekk þó styttra en frumvarp stjómarinnar að því leyti að einungis átti að tolla þá hunda sem töldust óþarfir. Úr bókinni Sveitin við sundin eftir Þór- unni Valdimarsdóttur. Hollensk videómynd með íslenskum fyrirsætum sýnd í versluninni. SONJA Laugavegi 81, sími 21444 --------------------------------- Vinsamlega sendið mér eintak af Bar- bara Farber-, Pointer-kynningarbækl- ingi sem tekinn var á islandi. Heimilisfang Nafn Staður POTTÞETT FRA Pepperino Full verslun af nýjum vetrarvörum frá Barbara Farber og Pointer. . . Tómas Guðmundsson, Þin er borgin björt af gleði./ Borgin heit af vori og sól./ Strætin syngja. Gatan glóir./ Grasið vex á Arnarhól. úr kvœðinu Hanna litla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.