Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 36

Morgunblaðið - 17.08.1986, Page 36
36 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1986 Hvað segir landsbyggðarfólk um höfuðborgina? ■ Morgunblaðið/Úlfar Guðmunda Sigurðardóttir Guðmunda Sigurðar- dóttir, Kirkjubóli í Langadal: Fallegust ogalveg passlega stór „Reykjavík er alveg stórkostleg borg. Hún er falleg og alveg pass- lega stór,“ sagði Guðmunda Sigurð- ardóttir húsfreyja á Kirkjubóli í Langadal við ísafjarðardjúp. Guðmunda var ásamt manni sínum, Kristjáni Steindórssyni, úti í flekk að raka, þegar fréttamann Morgunblaðsins bar að garði. Glaðasólskin var og brakandi þerr- ir, en Guðmunda gaf sér samt tíma til að ganga með gestum til stofu og á örfáum mínútum var hún búin að töfra fram hlaðið vcisluborð. „Ég er kannski ekki alveg óhlut- dræg í þessum málum, því ég er fædd og uppalin í Reykjavík, og verð aldrei annað en Reykvíkingur hversu lengi sem ég bý hérna vest- ur í sveitinni eða einhversstaðar annars staðar. Ég er búin að ferðast víða en mér finnst Reykjavík alltaf falleg- asta borgin. Hún er svo hlýleg ekki með stórborgarsniði, en þó með allt, sem góð borg þarf að hafa. Breytingamar sem hafa orðið síðan ég var stelpa í Hlíðunum eru alveg stórkostlegar. Þá voru Hlíðarnar í úthverfunum, bóndabæ- ir og kartöflugarðar allt í kring. Ég er mjög hrifín af framtakinu við að vernda gamla miðbæinn. Þó aldrei megi ganga of langt í að geyma það gamla hefur tekist alveg stórkostlega vel að viðhalda gamla svipnum þama. Það sem kernur verst við mig er að Reykvíkingum og dreifbýlisfólki skuli sífellt vera att saman vegna hagsmunaárekstra. I Reykjavík er alltaf verið að tala um okkur skollans bændafólkið sem framleiðum okkar vörur alltof dýrt. Mér fínnst að það þurfi að leggja meiri áherslu á að útskýra hvemig kostnaðurinn við milliliðina í bænum hækkar verðið. Mér sám- ar það að geta ekki talað um eitthvað skemmtilegra við fólkið mitt fyrir sunnan. Ég vil tala um eitthvað uppbyggilegra, eitthvað sem tengir okkur saman og gerir mannlífið bjartara. Þótt við búum norður við Djúp, em samgöngumar orðnar þannig núna, að það munar sára litlu fyrir okkur hjónin hvort við notum versl- unarþjónustu í Reykjavík eða á ísafírði. Vegirnir í Djúpinu em oft- ast mjög slæmir, en vegimir suður batna með hveiju árinu. Því er það orðið þannig hjá okkur að við sækj- um bankaþjónustu og annað smálegt til Hólmavíkur, en allt meiriháttar sækjum við til Reykja- víkur. Þar er vöruúrvalið auðvitað mest og verðið hagstæðast. Nú, svo á ég allt mitt skyldulið í Reykjavík og get þá heimsótt það um leið. Eg vil senda Reykvíkingum ham- ingjuóskir á 200 ára afmælisdegin- um og óska borginni minni velfarnaðar á komandi ámm.“ Morgunblaöið/Guðl.Sig. Richard Sighvatsson Richard Sighvatsson, Vestmannaeyjum: Slæmt að vera á V-númeri „REYKJAVÍK, er það bara ekki mjög góður staður sem gaman er að heimsækja? Ég gæti vel hugsað mér að búa þar og hefi raunar verið á leiðinni þangað í ein 10 ár en er þó ekki kominn lengra,“ sagði Ric- hard Sighvatsson, verkstjóri við togaralandanir í Vestmannaeyjum. „Það skemmtilegasta sem ég geri þegar ég heimsæki Reykjavík er að ganga um hafnarsvæðið og fýlgj- ast með athafnalífinu þar. Það versta við borgina er umferðaröng- þveitið á föstudögum, þá er slæmt að vera á V-númeri. Reykvíkingar njóta vissulega sér- réttinda umfram okkur utanbæjar- fólkið, hafa alla æðri skólana, leikhúsin, menninguna og íþrótta- viðburðina. Þeir hafa úr meim að velja og geta notið þess á mun ódýr- ari hátt en okkur býðst. Gagnvart okkur í Vestmannaeyj- um er það alltof dýrt að ferðast til Reykjavíkur, annars fæmm við þangað mun oftar að heimsækja ættingja og vini. Því verður ekki á móti mælt að höfuðborgin sogar til sín Ijármagn af landsbyggðinni og það heldur ótæpilega. Við fáum ekki til baka út á land það sem okkur ber af útflutningstekjunum, sem verða til fyrir tilstilli fólks á stöðum sem V estmannaeyj u m. “ — hkj. Guðrún Valdimars- dóttir og Sólrún Tómasdóttir, Hellu: Allir að f lýta sér alltof mikið ÞÆR stöllur Guðrún Valdimars- dóttir og Sólrún Tómasdóttir, báðar 15 ára, sátu og röbbuðu saman í Grillskálanum á Hellu, er blaðamað- ur átti leið þar um þeirra erinda að leita álits utanbæjarfólks á höf- uðborginni. Þær vom sammála um að það væri ágætt að koma til Reykjavíkur, aðallega til að versla og skemmta sér, en að búa þar vom þær sammála um að kæmi alls ekki til greina. Heima á Hellu væri best og rólegast. Af hveiju ekki að búa í Reykjavík, fyrst svo gott er að fara þangað? Svarið var einfalt: Alltof mikið stress á öllum. „Allir alltaf að flýta sér alltof mikið," eins og önnur þeirra orðaði það. Þær kváðust líta á Reykjavík eins og aðra bæi eða borgir. „Svona eins og Selfoss, bara að hún er stærri,“ sagði Sólrún. - Af hveiju að fara alla leið til Reykjavíkur að versla? „Jú, það er flottast þar og úrvalið meira," sagði Guðrún. Þær stöllur sögðust einnig hafa sótt til Reykjavíkur til að láta klippa sig, en nú væri það að breytast, - hægt væri að fá „smart“ klippingu á Hellu. - Unglingar í Reykjavík. Eru þeir „meira smart“ en úti á landi. - Eða em þeir bara „púkó“? „Osköp svipaðir og úti á landi,“ var svarið. Þegar gengið var á þær vinkonurnar kom í ljós að strákarn- ir, þ.e. reykvískir gæjar, líta fremur stórt á sig, að þeirra mati, - finnst þeir vera meiri karlar en jafnaldrar þeiira úti á landi. Stöllurnar vom að lokum spurð- ur, hvað þær myndu veíja í afmælisgjöf handa borginni, ef þær væru spurðar ráða: „Fleiri ungl- ingastaði, góðan skemmtistað fyrir krakka yngri en 16 ára,“ svaraði Guðrún að bragði og Sólrún sagðist algjörlega sammála henni um það val. Morgunblaðið/Jóhanna Guðríður Vigfúsdóttir „Mér fínnst alltaf gott að koma til Reykjavíkur enda hef ég búið þar af og til í gegnum árin,“ sagði Guðríður Vigfúsdóttir, starfsstúlka á Hótel KEA. „Ég held að Reykvíkingar og aðrir gestir fínni fyrir svolitlum hrepparíg þegar komið er til Akur- eyrar og jafnvel á öðmm stöðum líka, en þegar utanbæjarfólk kemur til Reykjavíkur held ég að hreppa- pólitík sé ekki til þar.“ Guðríður sagðist ekki geta gert upp á milli þess hvort betra væri að búa í Reykjavík eða á Akureyri þar sem hún hefði búið svo víða erlendis. „Hver staður hefur sinn „sjarma" og manni getur líkað vel alls staðar ef hugarfarið er rétt. Það er alveg ljóst að fjármagnið er í Reykjavík. Ef við á Akueryri og úti á landi fáum 30.000 krónur fá Reykvíkingar helmingi meira. Það virðist enginn heilsteyptur vilji fyrir því að breyta þessu. Vilji lands- manna á að ráða og ef hann er sá að allir búi á Suðurlandi, í kringum fjármagnið, þá verður það svo og hitt leggst í eyði. Komið hafa upp hugmyndir af og til um að færa til stofnanir, en ég er svo hrædd um að viljinn sé ekki nægur. Ráðamenn hljóta því að vera ánægðir með núverandi ástand. Það er til bóta að fá hingað norður háskóladeildir þó gagnrýnin sé töluverð, en það vom líka flestir vissir um að menntaskólinn hér á Akureyri yrði lélegasti skóli landsins þegar honum var komið af stað, en raunin hefur orðið önnur,“ sagði Guðríður. Morgu nblaðið/FP Sólrún Tómasdóttir til vinstri og Guðrún Valdi- marsdóttir til hægri fyrir framan Grillskálann á Hellu. Guðríður Vigfúsdóttir, Akureyrí: Engin hreppa- pólitíkí Reykjavík Úr annálum Borg-arabréf og borgaraeiðar Sá, sem óskaði eftir því að fá leyfi til að stunda verzl- un eða iðnað, þurfti að fá sérstakt leyfi bæjarstjórnar- innar. Ef hann fullnægði þeim skilyrðum, sem sett vom og eftir að hann fékk borgaraeið fékk hann borg- arabréf, og naut eftir það réttinda sem borgari. Borgareiðar vom færðir í borgarabókina, sem bæjar- fógeti hélt. Þar vom og færðar inn fundargerðir borgarafunda .. . Allt var skráð á dönsku; enda borgaramir flestir danskir eða þá mæltir á þá tungu. Þeir vom flestir kaup- menn eða verzlunarstjórar, nokkrir vom iðnaðarmenn og skipstjórar. (Úr væntanlegri bók Páls Líndals um sveitarstjóm í Reykjavík að fornu og nýju.) Minna frelsi í Reykjavík? Árið 1867 var lögð fyrir Alþingi bænarskrá frá 11 Reykvíkingum ... Bænarskrá þessi fól í sér ósk um, að reglum um kosn- ingarrétt og kjörgengi yrði breytt... Aðgreiningin milli tómthúsmanna og annarra skyldi afnumin ... Það kom fram hjá einum þingmanni að ekki væri mik- ið upp úr bænarskránni leggjandi, að henni stæðu aðeins tómthúsmenn. Það kom hins vegar fram úr ann- arri átt, að óeðlilegt væri, að íbúar Reykjavíkur byggju við minna frelsi en íbúar Akureyrar og ísafjarðar, sem nýlega höfðu endur- heimt kaupstaðarréttindi sín. Snautt fólk Stjórn fátækramála var með nokkuð sérstæðum hætti í Reykjavík. Sá háttur hafði verið á hafður, að þessi mál vom enn sameiginleg með kaupstaðn- um og Seltjarnameshreppi svo sem verið hafði fyrir stofnun kaupstaðarins. Þau rök vom uppi höfð þessu til rökstuðnings, að eftir að byggð tók að rísa í Reykjavík, tók fólk að sækja hingað í atvinnuleit fyrst hjá Innréttingunum og síðar hjá kaupmönnum. Hér var oft um að ræða snautt fólk, sem gat orðið bjargþrota, þegar harðnaði í ári. Sumt af þessu fólki bjó í hinni eiginlegu Reykjavík, en margt af því í kotunum umhverfis byggðina utan kaupstaðarmarka. Þótti ekki eðlilegt eins og á stóð, að Seltjarnarnes- hreppur tæki að sér fram- færslu slíks fólks, enda það talið hreppnum ofviða fjár- hagslega. Var því horfíð að því að hafa hrepp og kaup- stað eitt framfærsluhérað, og hélzt sú skipan til ársloka 1856. Prins Napoleon í heimsókn Á fundi, sem haldinn var 20. júní 1856 var lagt fram bréf stiftamtmanns, þar sem hann tilkynnir, „að hingað sé von á prins Napoleon frá Frakklandi“. Er þess óskað, að bæjarstjórnin undirbúi bæinn til að taíca á móti honum. Hér er átt við Jerome Napoleon bróðurson Napo- leons keisara, og þótt hann ferðaðist að nafninu til undir dulnefni, má telja þetta fyrstu opinbem heimsókn- ina, sem um getur í sögu Reykjavíkur. Bæjarstjórn brást vel við óskum stiftamtmanns. í fundargerðinni segir svo: „í þessu tilefni var ákveð- ið að ryðja göturnar hér í bænum og einkum frá Si- emsens-bryggju upp að bakarabrúnni, sem þörf er á hvort sem er, svo og að laga þennan veg og bera sand og smámöl ofan í hann.“ Siemsens-bryggja var nið- ur af lóðinni nr. 23 við Hafnarstræti, en bakarabrú- in er brúin, sem lá yfir lækinn, þar sem nú mætast Austurstræti og Banka- stræti. Farið var með prins- inn í skoðunarferð um Reykjavík. Mun þetta vera fyrsta ferðin af því tagi sem um getur, en ekki er vitað, hvort bæjarstjórn hefur átt nokkum hlut að henni. Allt á dönsku Framan af em fundar- gerðir bæjarstjórnar skráðar á dönsku. Fyrsta fundargerðin á íslenzku er frá 13. maí 1843, og gegnir þá Kristján Krist-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.