Morgunblaðið - 18.09.1986, Síða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
*
I
í
í
I
Evrópuúrslit
Þessi lið léku saman í Evrópukeppni meistaraliða í gærkvöldi.
Heimaliðið er nefnt á undan:
PSV Eindhoven — Bayern Munchen 0:2
FC Portó - Rabat AJax, Möltu 9:0
Avenir Beggen Luxemburg — Austria Vin 0:3
Juventus — Valur 7:0
Apoel Nicosia Kýpur — HJK Hejsinki
Rosenborg Noregi — Linfield N*irlandi 1:0
Örgryte Svíþjóó — Dynamo Berlin A-Þýskalandi 2:2
Shamrock Rovers írlandi — Cettic 0:1
Paris SQ — Vitkovice Tékkóslóvakíu
Red Star Júgósiavíu — Panathinaikos Grikklandi 3:0
Bröndby Danmörku — Honved Ungverjalandi 4:1
Beroe Búlgaríu — Dinamo Kiev 1:1
Young Boys Sviss — Real Madrid 1:0
Anderlecht — Gornik Zabrze Póllandi 2:0
Besitkas Tyrklandi — Dynamo Albaníu
Evrópumeistararnir Steaua Búkarest sitja yfir í fyrstu umferö.
Þessi lið léku saman í gærkvöldi í fyrstu umferð Evrópukeppni
bikarhafa:
Rapid Vín — FC Brugga 4:3
Roma — Real Zaragosa 2:0
Benfica — Lilieström Noregi 2:0
Nentori Tirana Albanfu — Dynamo Búkarest 1:0
Aberdeen — Sion Sviss 2:1
Waterford Utd. íriandi — Bordeaux 1:2
Malmö FF — Limassol Kýpur 6:0
Wrexham — Zurrieg Möltu 3:0
Haka Finnlandi — Torpedo Moskvu 1:1
Fram — Katowice 0:3
B1903 Danmörku — Vitocha Búlgaríu 1:0
Glentoran N-irlandi — Lokomotlv Leipzig A-Þýskal. 1:1
Vasas Ungverjal. — Vales Mostar Júgóslavíu 2:2
Stuttgart — Spartak Tmva 1:0
Ol. Pierus Grikklandl — US Luxemborg 3:0
Þessi lið léku saman í UEFA-keppninni:
Bayer Uerdingen — Carf Zeiss Jena 3:0
Linz Austurriki — Widzew Lodz Póliandi 1:1
Neauchtael Xamax Sviss - Lyngby Danmörku 2:0
Severn Beigiu — Valerengen Noregi
Ofi Krít Grikklandi — Hadjuk Split Júgóslavíu
Flamurtari Albaníu — Barcelona Spáni 1:1
Floria Nicosia Kýpur — Sportual Studentec Rúmeníu
Rijeka Júgóslaviu — Standard Liege Belgiu 0:1
Napoli Ítaiíu — Toulouse Frakklandi 1:0
Spartak Moskva — Luzern Svíss 0:0
Lens Frakklandi — Dundee Utd. Skotlandi
Groningen Hollandi — Giaway Utd. írlandi 5:1
ÍA — Sporting Lissabon 9:0
Fiorentina italía — Boavista Portúgal 1:0
Atletico Bilbao — Magdeburg A-Pýskalandi 2:0
Atletico Madrid — Werder Bremen 2:0
Jeunesse Esch Luxemborg - Gehnt Belgiu 1:2
Pecs Ungverjalandi — Feyenoord 1:0
Sparta Prag Tókkóslóvakíu — Vitora Guimaraes 1:1
Nantes — Torino 0:4
Kalmar — Bayer Leverkusen 1:4
Dynamo Minsk Sovótrikjunum — Raba Eto Ungverjalandi 2:4
Olumuc Tókkóslóvakiu — Gautaborg 1:1
Coleraine N-irlandi - Stahl Brandenburg A-Þýskalandi 1:1
Legia Varsjá Póliandi — Dnyeproproitovsk Sovótrikjunum 0:0
Rangers Skotlandi — Tampere Finnlandi 4:0
Mönchengladbach - Partizan Belgrad Júgóslaviu 1:0
Trakia Plovdiv Tékkóslóvakiu — Hibs Malta 2:0
FC Tyrol Austurrikl — Sredets Búlgaríu frestaö
Hearts Skotlandi - Dukla Prag 3:2
Inter Milanó italiu — Rek Athens Grikklandl 2:0
LEXAN'I
"IHrRMD
:®
ISHEET
> Lexan Thermoclear plastið er ákjósanlegt í
gróðurhús, sólstofur, skjólvegg fyrir blómahom,
- þak yfir blóm eða skjól á svalir.
Lexan Thermoclear tvöfalt eða þrefalt er
hagstætt í innkaupum — auðvelt í meðförum og
brotnar ekki. Komið við hjá okkur í Ármúlanum...
Lexan Thermoclear gefur ykkur tækifæri til að
vera á meðal blómanna allt árið um kring. Lexan
Thermoclear er framleitt af General Electric
Plastics.
ÍÓlftRPlflJT
H
Morgunblaöið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
• Arnór Guðjohnsen sem hér er á fullri ferð í leik með Anderlecht skoraði gott mark í Evrópukeppninni
í gærkvöldi.
Hefði orðið draumamark
ef ég hefði hitt markið, segir Arnór um fallegan
skalla sinn rétt framhjá
„ÞETTA VAR hörkuleikur hjá okk-
ur í kvöld. Við vorum betri í
þessum leik og ætluðum okkur
að vinna seinni ieikinn líka þann-
ig að við komumst í 2. umferð,"
sagði Arnór Guðjohnsen í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi
en Anderlecht vann Gornik
Zabrze frá Póllandi í Evrópu-
keppni meistaraliða með tveimur
mörkum gegn engu og skoraði
Arnór fyrra markið fyrir And-
erlecht.
„Pólska liðið er nokkuð gott en
við vorum betri í þessum leik og
hefðum átt að skora fleiri mörk.
Ég var óheppinn að skora ekki með
skalla í fyrri hálfleik. Það hefði orð-
ið draumamark ef það hefði farið
inn. Ég henti mér fram og skallaði
rétt framhjá. Síðan skoraði ég eft-
ir skot frá varnarmanni okkar.
Boltinn hefði farið framhjá en ég
var á réttum stað og skoraði.
Scifo skoraði síðan annað mark-
ið okkar úr vítaspyrnu í síðari
hálfleik. Pólverjarnir sóttu dálítið
eftir þetta en markvörðurinn hjá
okkur bjargaði því að þeir skoruðu
ekki undir lokin með góðri mark-
vörslu," sagði Arnór.
Anderlecht á að leika á laugar-
daginn í deildinni og eftir þann leik
mun Arnór halda heim á leið til
að leika með íslenska landsliðinu
í Evrópukeppni landsliða gegn
Sovétmönnum næsta miðvikudag
á Laugardalsvelli. Já, það er í nógu
að snúast hjá honum þessa dag-
ana. Leikur á laugardegi, miðviku-
degi, laugardegi og loks landsleik-
ur á miðvikudegi.
w
Islendingaliðin íÞyskalandi:
Unnu á heimavelli
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaðsins í Vestur-Þýskalandi.
BAYER Uerdingen sýndi mjög
góðan leik í UEFA-keppninni í
gærkvöldi og vann stórsigur á
Carl Zeiss Jena frá Austur-Þýska-
landi, 3:0. Þetta var langbesti
leikur Uerdingen á keppnistíma-
bilinu og svo virðist sem þeir leiki
Góður
útisigur
Bayern
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni.
BAYERN Múnchen vann mikil-
vægan 0:2-sigur á PSV Eindhoven
á útivelli í gærkvöldi f „stórleik"
fyrstu umferðar, því bæði þessi
lið voru talin koma til greina sem
Evrópumeistarar. Bayern skoraði
tvö mörk undir lok leiksins og
hefur seinni leikinn með yfir-
burðastöðu.
í liö PSV vantaði Ruud Gullit og
munar um minna, því hann er lang-
besti leikmaður hoilensku knatt-
spyrnunnar og af mörgum talinn
einn besti knattspyrnumaður
heims um þessar mundir. Það var
Ronald Mathy sem gerði bæði
mörk Bayern.
Werder Bremen gengur hins-
vegar ávallt illa í Evrópukeppni og
tapaði með tveimur mörkum gegn
engu fyrir Atletico Madrid í afar
slökum leik. Spánverjarnir eru
frægir fyrir góðan árangur á úti-
velli í Evrópukeppni, svo vonir
Bremen eru litlar sem engar.
ávallt betur í Evrópukeppni en í
deildinni, og sérstaklega ef leikið
er í flóðljósum, eins og þeir gerðu
í fyrsta skipti á tímabilinu í gær-
kvöldi.
Leikmenn Carl Zeiss Jena báru
greinilega mikla virðingu fyrir leik-
mönnum Uerdingen, en sú er
jafnan raunin þegar austur-þýsk
knattspyrnulið leika við félög að
vestan. Uerdingen sótti látlaust
allan leikinn, og höfðu tvö mörk
yfir í hálfleik. Bierhoff og Funkel
gerðu þau bæði eftir hornspyrnur.
I síðari hálfleik hélt sóknin áfram
og þá bætti Bommer marki við úr
vítaspyrnu. Atli Eðvaldsson átti
CARLO Longhi, dómarinn í leik
FC Tyrol og Sredets frá Búlgaríu
i UEFA-keppninni f gærkvöldi,
stöðvaði leikinn eftir aðeins 33
mínútur vegna þess að völlurinn
var kominn algjörlega undir vatn.
Fimm mínútum eftir að hann
HELGINA 3.-5. október veröur haldiö í
íþróttahúsinu Digranesi stórmót í innan-
hússknattspyrnu á vegum HK. Þetta er mót
fyrir fyrirtœkjahópa og félagahópa og verða
fjórir leikmenn í hverju liði. Fimm liö veröa
í hverjum riöli og veröur leikiö í 2x7 mínút-
mjög góðan leik, eins og félagar
hans allir, og átti m.a. skalla í
stöngina í fyrri hálfleik.
Stuttart lék einnig vel á móti
Spartak Travna frá Tékkóslóvakiu,
en liðinu gekk illa að skora. Það
var ekki fyrr en á síðustu mínútu
leiksins sem Karl Allgöwer skoraði
sigurmarkið úr vítaspyrnu. Ásgeir
átti þokkalegan leik.
Stuttgart hefur þrisvar leikið í
Evrópukeppni á undanförnum
árum en aldrei tekist að komast í
gegnum fyrstu umferðina og nú
hefur leikmönnum liðsins verið lof-
að um 200 þúsund krónum takist
þeim að bera sigurorð af Tékkun-
um í leikjunum samanlögðum.
hófst fór að rigna og eftir 25
mínútna leik kom slíkt úrhelli að
á aðeins fimm mfnútum var kom-
ið 10 sentimetra vatnslag yfir
allan völlinn. Útilokað var að leika
knattspyrnu við þær aðstæður.
Leikurinn mun fara fram í kvöld.
ur. Þátttökugjald er kr. 3.000 fyrir hvert lið
og tilkynnist þátttaka til Geirs í síma 656044,
Alberts í síma 52832 eöa Jóns Gunnars í
65455 fyrir sunnudagskvöldið 26. septem-
ber.
Regnið eyði-
lagði völlinn
Knattspyrnumót hjá HK
Armúla 30—108 Reykjavík — sími 686002
y-