Morgunblaðið - 24.10.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.10.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986 Útsynningur Enn og aftur vitna ég í Velvak- anda þennan ágæta skoðana- vettvang okkar íslendinga. Gunnar hringdi miðvikudaginn 22. október og hafði þetta að segja um ljósvaka- fjölmiðlana: Ég vil taka undir þær áskoranir sem fram hafa komið um að selja Rás 2. Ég tel alveg ástæðu- laust að ríkið sé að standa í útvarps- rekstri sem einstaklingar geta eins tekið að sér. Þar að auki mætti lækka afnotagjöldin með þessu móti. Það fer líka að vera spuming, sérstaklega eftir að Stöð 2 tók til starfa, hvort það sé réttlætanlegt að krefjast þess að allir útvarps- og sjónvarpseigendur borgi afnotagjald. Hvað um þá sem hlusta aðeins á Bylgjuna og horfa aðeins á Stöð 2, fyrir hvað eru þeir að borga? Þessi mál þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar nú þegar aðstæður hafa gerbreyst frá því sem áður var. Sjálfur hlusta ég mest á Bylgjuna og hika ekki við að fullyrða að Stöð 2 hefur miklu betri dagskrá en „gamla sjónvarpið". Skjótt skipast veður... Skjótt skipast veður í lofti hér á eykrílinu. Fyrir ekki alls löngu heimt- uðu menn „létta útvarpsrás" eins og það var kallað og svo tók Rás 2 til starfa án þess þó að afnotagjald Ríkisútvarpsins hækkaði um krónu. Nú vilja menn selja Rás 2 og væntan- lega dreifikerfið er varpar rásinni til 95% allra landsmanna en bara dreifi- kerfi rásarinnar kostar hátt í 100 milljónir. Nú en hann Gunnar vill ekki bara selja Rás 2 heldur afnema afnotagjald Ríkisútvarps/sjónvarps. Ja nú er ég bara orðlaus þó ein lítil sakteysisleg spuming skjóti upp koll- inum. Setjum sem svo Gunnar að þú festir kaup á talstöð hjá einkafyrir- tæki og í gleði þinni yfir hinu nýja tæki hættir þú um stundarsakir að nota símann. Er ekki sjálfsagt að þú sleppir þar með við að greiða afnota- gjaldið af símanum? Það skyldi þó aldrei vera að Ríkisútvarpið/sjónvarp þjóni áþekku hlutverki og landsiminn er tengir íslendinga saman í eitt menningarsamfélag og eflir einnig tengsl þeirra við umheiminn. Svo fremi sem afnotagjöldum Pósts- og síma er stillt í hóf og þjónustan er í lagi þá sé ég ekki ástæðu til að selja fyrirtækið og hið sama gildir um ríkisútvarpið þótt þar sé málið að vísu flóknara. Ég vil taka fram að ég er enginn sérstakur málsvari ríkis- rekinna stofnana en er þó á þeirri skoðun að vel reknar ríkisstofnanir verði að njóta sannmælis og einnig er ég persónulega mótfallinn því að íslenskir ljósvakafjölmiðlar séu alfar- ið undirorpnir duttlungum auglýs- ingamarkaðarins eins og Gunnar leggur til í sínum pistli. ViÖhorfHrafns Og enn vitna ég í miðvikudagsblað Moggans en þar er á blaðsíðu 16 hið ágætasta viðtal við Hrafn Gunnlaugs- son yfirmann innlendrar dagskrár- gerðar ríkissjónvarps. í viðtalinu gerir Hrafn grein fyrir skoðun sinni á því hvaða hlutverki ríkissjónvarpið eigi að gegna í framtíðinni: Ef við lítum á rekstur sjónvarpsins sem slíkan, þá má líkja því við bókasafn. Bókasafnið hefur það að markmiði að bjóða fólki góðar bækur, bók- menntir, en bókasafnsverðimir gera lítið af því að skrifa bækur... Við höfum valið ríkinu það hlutskipti að það mennti fólk og reki skóla, en við ætlumst ekki til_ að ríkið reki Dans- skóla Heiðars Ástvaldssonar. Erum við ekki komin hér að kjama málsins hinu sérstæða menningarhlutverki ríkisfjiilmiðlanna sem ég held að þeir ræki ekki til frambúðar með sóma nema losna af klafa auglýsinganna. Ólafiir M. Jóhannesson. ÚTVARP / SJÓNVARP Ríkisúvarpið: Irinn Geldof kynntur • 30 í þætti sínum, Frjálsar hendur, mun Illugi Jök- Illugi Jökulsson. ulsson leitast við að kynna írska popparann Bob Gel- dof, en sá er líklegast þekktastur fyrir að hafa hmndið af stað hjálpar- starfi poppara við hungr- aða í Afríku, líkt og íslenskir popparar gerðu með Hjálpum þeim, auk þess sem hann hefur ekki fengið Friðarverðlaun Nób- els. Þátturinn í kvöld verður aðallega helgaður æsku og uppvexti átrúnaðargoðs- ins, en einnig verður greint frá vem hans í hljómsveit- inni Boomtown Rats, risi þeirrar hljómsveitar og Bob Geldof. hnignun. í lok þáttarins verður svo skýrt frá því hvemig það bar til að hungursneyðin í Eþíópíu var uppgötvuð af Geldof og til hvaða ráða hann greip. Illugi mun leika ýmsa tónlist tengda viðfangsefn- inu, þar á meðal nokkur lög með Boomtown Rats, og ekki er ólíklegt að ein- hveijir söngvar um hung- ursneyðar verði leiknir. Stöð tvö Victor, Victoria ■■■■ Á dagskrá 00 20 Stöðvar tvö í “ö kvöld er banda- ríska gamanmyndin Victor, Victoria, en hún gerist í París á fjórða áratugnum. Julie Andrews leikur fá- tæka stúlku, sem erfiðlega gengur að fá vinnu sem söngkona. Tekur hún því það ráð að klæðast karl- mannsfötum og þykjast vera kynhverfur pólskur greifi og vekur hún mikla athygli meðal homma Parísar. Málin taka þó fyrst að flækjast þegar þeir taka að játa ást sína fyrir henni. UTVARP FOSTUDAGUR 24. október 6.45 Veðurtregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 7.20 Daglegt mál. Erlingur Sigurðarson flytur þáttinn. (Frá Akureyri). 9.00 Fréttir 9.03 Morgunstund barn- anna: „Fljúgandi stjarna" eftir Ursulu Wölfel. Kristin Steinsdóttir lýkur lestri þýð- ingar sinnar (8). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. 9.45 Pingfréttir 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir 10.30 Ljáðu mér eyra. Um- sjón: Málmfríður Sigurðar- dóttir. (Frá Akureyri.) 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Sigurður Einarsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 Miðdegissagan: „Undir- búningsárin", sjálfsaevisaga séra Friðriks Friðrikssonar. Þorsteinn Hannesson les (14). 14.30 Nýtt undir nálinni. Elín Kristinsdóttir kynnir lög af nýútkomnum hljómplötum. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Lesiðúr forustugreinum landsmála- blaða. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. Stjórn- endur: Kristin Helgadóttir og Vernharður Linnet. 17.00 Fréttir. 17.03 Siðdegistónleikar a. „Elísabet Englands- drottning", forleikur eftir Gioacchino Rossini. Sin- fóniuhljómsveit Lundúna leikur; Claudio Abbado stjórnar. b. Spænsk rapsódía eftir Maurice Ravel. Sinfóniu- hljómsveitin i Fíladelfiu leikur; Ricardo Muti stjórn- ar. c. „Carmen-svíta" nr. 1 eftir George Bizet. Sinfóniu- hljómsveit Lundúna leikur; Neville Marriner stjórnar. 17.40 Torgiö — Menningar- mál. Siðdegisþáttur um samfélagsmál. Umsjón: Óðinn Jónsson. 18.00 Þingmál. Umsjón. Atli Rúnar Halldórsson. Tilkynn- ingar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá morgni sem Erlingur Sigurðarson flytur. (Frá Akureyri). 19.40 Létt tónlist. 20.00 Lög unga fólksins Valtýr Björn Valtýsson kynn- SJÓNVARP FOSTUDAGUR 24. október 17.55 Fréttaágrip á táknmáli 18.00 Litlu Prúðuleikararnir. 14. þáttur. Teiknimynda- flokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeins- son. 18.25 Horfðu á mig. Lítil saga um heyrnarskertan dreng og samskipti hans við aðra. Þýðandi Baldur Hólmgeirs- son. 18.50 Auglýsingarogdagskrá 19.00 Spítalalíf (M*A*S*H) Fjórði þáttur. Bandariskur gamanmyndaflokkur. Aðal- hlutverk: Alan Alda. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 19.30 Fréttir og veöur 20.00 Auglýsingar 20.10 Sá gamli (Der Alte) 20. þáttur. Mánudagur til mæðu. Þýskur sakamála- myndaflokkur. Aðalhlutverk Siegfried Lowitz. Þýðandi Veturliði Guðnason. 21.10 Unglingarnir í frumskóg- inum. Umsjón: Sigurður Jónasson. 21.40 Sameinuðu þjóðirnar. Upplýsinga- og umraeöu- þáttur í tilefni af degi Sameinuöu þjóðanna. Um- sjónarmaður Guðni Braga- son. 22.20 Á döfinni 22.25 Seinni fréttir 22.30 Moby-Dick. Bresk- bandarisk bíómynd frá 1956, gerð eftir samnefndri skáldsögu Herman Melvil- les. Leikstjóri John Huston. Aðalhlutverk. Gregory Peck, Richard Basehart, Friedrich Ledebur, Leo Genn, Orson Welles og James Robertson Justice. Hvalveiðiskipstjóri einn leggur ofurkapp á að finna hvítan risahval, sem gerði hann að örkumla- manni endur fyrir löngu, og stefnir bæði skipi og áhöfn i háska til að koma fram hefndum. Þýðandi Sigurgeir Steingrímsson. 00.20 Dagskrárlok STÖDTVÖ FOSTUDAGUR 24. október 17.30 Myndrokk. 17.55 Teiknimyndir. 18.26 Sweeney. Reagan handtekur þorpara sem bendlaður er við mál lögregluþjóns er varð fyrir skoti og bæklast. Þeir finna limlaust lik á ánni af manni sem ekki er vitað hver er. 19.25 Fréttir. 19.45 Undirheimar Miami. (Miami Vice). Tubbs og Crockett verða að finna arg- entínska leynimorðingjann sem er í tengslum við Cald- erone, dreifiaöila kókains, áður en Crockett verður næsta fórnarlamb. 20.35 Teiknimynd. Vofan Casper. 20.45 Hin konan. (The Other Woman). Ró- mantisk gamanmynd um eldri mann sem giftist u ngri konu aðeins til að upp- götva að þegar hann hittir þroskaðri konu mun hann verða hann sjálfur. Hal Línd- en leikur ráðvillta eigin- manninn og Anne Meare leikur konuna. 22.50 Benny Hill. Breskur grínþáttur. 23.20 Victor Victoria. Bandarísk gamanmynd. Stórmynd með Julie Andrews, James Garner, Robert Preston, Lesley Ann Warren o.fl. Árið er 1935. Victora Grant er bláfátæk í París. Lengi hefur hún reynt að fá vinnu sem söngkona, en án árangurs. Hinn kyn- hverfi Caroll Todd veitir því eftirtekt hversu aðframkom- in hún er og telur sig sjá í henni hæfileika. 01.35 Myndrokk. 05.00 Dagskrárlok. 20.40 Kvöldvaka. a. Rauðamyrkur. Hannes Pétursson les söguþátt sinn, fjórða lestur. b. Ljóöarabb. Sveinn Skorri Höskuldsson flytur. c. Vísur um veturinn. Ragn- ar Ágústsson fer með stökur eftir ýmsa höfunda. 21.30 Sígild dægurlög. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. Þor- 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Hljómpföturabb steins Hannessonar. 23.00 Frjálsar hendur. Þáttur í umsjá llluga Jökulssonar. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturstund í dúr og moll með Knúti R. Magnús- syni. 1.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á rás 2 til kl. 3.00. ill FÖSTUDAGUR 26. október 9.00 Morgunþáttur i umsjá Kolbrúnar Halldórs- dóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. 12.00 Létt tónlist 13.00 Bót i máli Margrét Blöndal les bréf frá hlustendum og kynniróskalög þeirra. 16.00 Endasprettur Þorsteinn G. Gunnarsson kynnir tónlist úr ýmsum áttum og kannar hvað er á seyði um helgina. 18.00 Hlé. 20.00 Kvöldvaktin Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir. 23.00 Á næturvakt með Vigni Sveinssyni og Þor- geiri Ástvaldssyni. 3.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr ir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 18.00—19.00 Svæðisútvarp fyr- ir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. Má ég spyrja? Umsjón Finnur Magnús Gunnlaugsson. M.a. er leitað svara við áleitnum spurning- um hlustenda og efnt til markaðar á markaöstorgi svæðisútvarpsins. 989 FOSTUDAGUR 24. október 06.00—07.00 Tónlist i morg- unsárið. Fréttir kl. 7.00. 07.00—09.00 Á fætur með Siguröi G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur öll uppáhaldslögin og ræðir við hlustendur til há- degis. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Haröar- dóttur. Jóhanna leikur létta tónlist, spjallar um neytendamál og stýrirflóamarkaði kl. 13.20. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Péturspil- ar og spjallar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrimur Thorsteinsson í Reykjavík siðdegis. Hallgrimur leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00 og 19.00. 19.00—22.00 Þorsteinn J. Vil- hjálmsson i kvöld. Þorsteinn leikur tónlist og kannar hvað næturlífið hefur upp á að bjóða. 22.00—04.00 Jón Axel Ólafs- son. Nátthrafn Bylgjunnar leikur létta tónlist úr ýmsum áttum og spjallar við hlust- endur. 04.00—08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist fyrir þá sem fara seint i háttinn og hina sem fara snemma á fætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.