Morgunblaðið - 24.10.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.10.1986, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986 38 fclk í fréttum Drottningar Norðurlanda samankomnar Það er ekki á hverjum degi sem hinar þijár drottningar Norðurlanda koma saman, en hendir þó öðru hveiju. Síðast henti það í síðustu viku þegar þær voru viðstaddar opnuð var yfírlitssýn- ing á verkum sænskra listamanna í Danmörku á árunum 1880 til 1930. Á myndinni eru frá vinstri Silvía Svíadrottning, Margrét Danadrottning og Ingiríður drottningarmóðir, sem enn ber titil Danadrottningar. Opnan úr Elite. íslensk hárgreiðsla og módel vekja athygli Utlendingar hafa gjaman gert að umræðuefni hversu vel ís- lendingar tolli í tískunni og íslend- ingar gjama svarað því til að hingað berist hið besta beggja vegna Atl- antshafs. Nú er hinsvegar svo komið að íslendingar em ekki ein- vörðungu þiggjendur í þessum efnum, því langt er síðan að íslensk- ir hárgreiðslumeistarar hófu að vekja athygli fyrir fmmleika og smekkvísi á erlendri gmnd og íslenskir fatahönnuðir hafa einnig gert vart við sig, þótt í smærri mæli sé. Fyrir skömmu birtust í hinu vel þekkta hártískutímariti Elite mynd- ir af tveimur íslenskum tískusýn- ingarstúlkum, sem Torfí Geirmundsson greiddi. Að fá birtar myndir í Elite er töluverður virðing- arvottur, því í blaðinu birtast einungis myndir af því sem best þykir hveiju sinni og er bæði hár- greiðslumeisturum og módelum akkur í því að vera á síðum þess. Myndimar tók Ragnar Th. Sig- urðsson og módelin em þær Ragna Sæmundsdóttir og Elísabet Auður. Elite, sem er litprentað og í sama broti og Morgunblaðið, er mjög út- breytt og hafa greiðslur í því jafnan haft mikil áhrif á tískuna. Sankti Pétur tilkynnir framkvæmdastjóra nokkrum að hann sleppi ekki inn i Himnaríki vegna vanvisku i stjómun fyrirtækja. Hlutverk Sankti Péturs við Gullna hliðið er hreint öldungis sniðið fyrir John Cleese, sem best er þekktur fyrir leik sinn með Monty Python-\eik- hópnum auk þess sem hann lék hinn ráðvillta/ ráðsnjalla hótelstjóra Hótel Tindastóls, sem fslenskir sjónvarjjsáhorfendum er vafalaust enn í fersku minni. I nýrri mynd, sem kallast „Hinn óskipulagði framkvæmdastjóri", sendir Sankti Pétur framkvæmdastjóra nokkum aftur til jarðar, svo hann megi leiðrétta hinar „ellefu dauðasyndir framkvæmdastjórans". Sumum kann að virðast myndin enn einn ærslaleikur John Cleese, en myndin hefur æðri boðskap. Áhorfendur þeir sem myndin er gerð fyrir em nefnilega framkvæmda- og deildarstjórar stórfyrirtækja og beittu háðinu er ætlað að benda áhorfendum á eftirfarandi: Fram- kvæmdastjórar geta ekki unnið sómasamlega, eða ætlast til þess að undirmenn þeirra geri það, skipuleggi þeir ekki tíma sinn, raði hlutum í forgangsröð og geri kröfur til sjálfra sín, sem undirmanna. Myndin er ein af ríflega 70 myndum ætlaðar til þjálfunar skrifker- um stórfyrirtækja, sem breska fyrirtækið Video Arts hefur gert, en Cleese var einn stofnenda þess árið 1972. Undanfarin ár hefur Cleese ráðlagt yfirmönnum fyrirtækja hvemig haga skuli fundahöld- um, flytja áróður fyrir fyrirtæki sín, taka umsækjendur tali og margt fleira, sem lýtur stjórnunarstörfum. Hlutverk hans hafa verið marg- vísleg. Hann lék Elísabetu I., þegar hann sagði mönnum til við ákvarðanatöku og hann kom fram sem viðskiptajöfurinn ívan grimmi, en sá var allt of yfírþyrmandi í samtölum við aðra. Vegna vinsælda Cleese hafa myndimar verið eftirsóttar, enda myndimar töluvert skemmtilegri en flestar þeirra starfsþjálfunar- mynda, sem eru á markaðnum. Myndimar hafa verið þýddar á fjölda tungumála, allt frá portúgölsku í kantónsku. Stórfyrirtæki á við Lloyd’s, Barclay-banka, General Motors, Hilton- og Sheraton-hótelin nota myndir hans reglulega. Annaðhvort leigja þau myndimar fyrir 7.200 ísl. krónur á viku, eða þau kaupa þær fyrir u.þ.b. 26.000 krón- ur hveija. „Gamansemin er árangursrík. Fólk getur hlegið og lært á samatíma", segir Iain Hall, simenntunarfulltrúi Hilton-hótelanna. í einni mynda Cleese, Meetings, Bloody Meetings, eða „Bannsett- ir fundimir“, leikur Cleese skrifstofustjóra sem segir konunni sinni að hann verði að koma með, verkefni heim á kvöldi hveiju, vegna þess að hann eyði vinnudeginum í fundahöld. En hann bætir við: „Ef við gætum ekki sofið á fundunum, þá gætum við aldrei unnið jafnlengi og raun ber vitni“. Áhorfendur fá síðan að vita hversvegna fundir hans taka engan enda. Hann undirbýr sig ekki, undirmenn hans vita aldrei hvað er á dagskrá, hann gleymir að bjóða þeim sem máii skipta og síðan gleymir hann að punkta hjá sér þær ákvarðan- ir, sem gerðar eru á fundunum. Þúsundþjalasmiðurinn John Cleese las lög við Cambridge og skrif- aði sálfræðibók í félagi við annan sem hét „Fjölskyldur og hvemig ber að lifa þær af“. Hann hefur í nógu að snúast og var á dögunum verið að fmmsýna mynd hans Clockwise, sem á íslensku nefnist „Stundvísi" og verið er að sýna í Háskóiabíói. Hann segist þó vera hreykinn af og leggja áherslu á verkefni Video Arts. „Það er vissulega erfíðara að gera þjálfunarmyndir en að skrifa hálftíma gamanefni í sjónvarpi, en það er miklu athyglis- verðara. Ég hef hugleitt hvað gerist þegar ég nálgast Gullna hliðið og Pétur spyr mig: „Hvað gerðir þú?“ og ég svaraði: „Ég var gaman- leikari". Það yrði löng þögn. En nú get ég bætt við „Ég gerði góðar starfsþjálfunarmyndir!" 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.