Morgunblaðið - 24.10.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.10.1986, Blaðsíða 48
STERKTKORT SEGÐU RmRHÓLL ÞEGAR W EERÐ ÚT AÐ BORÐA -----SÍMI18833----- FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Urðu að lenda í Hvalfirði - áleiðúrsundi í Húsafelli ÞRJÁR litlar flugvélar á leið úr Borgarfirði og af Mýrum til Reykjavíkur þurftu að snúa við yfir Hvalfirði síðdegis í gær vegna snjókomu f Reykjavík. Flugmenn tveggja flugvélanna lentu þeim á þjóðveginum við Ferstiklu en flugmaður þriðju vélarinnar lenti á túni við Akra- nes. „Við vorum í skemmtiferð, fór- _jim Qórir að tveimur flugvélum upp í Húsafell til að fara í sund en þriðja vélin flaug vestur á Mýrar. Við fórum frá Reykjavík í góðu veðri en veðrið breyttist það mikið á tveimur tímum, að við komust ekki suður aftur," sagði Ásgeir Guðmundsson flug- maður annarrar vélarinnar í samtali við Morgunblaðið f gær. Ásgeir sagði að ágætis flugveð- ur hefði verið suður á Hvalfjörð, 'jmn þar hefði verið farið að þykkna upp og snjóa í Reykjavík þannig að flugumferðarstjóramir hefðu ráðlagt þeim að snúa við. Ágætis aðstæður hefðu verið á veginum við Ferstiklu og þeir því brugðið á það ráð að lenda þar. Bundu þeir vélamir niður við veitinga- skálann og ætla að reyna að fljúga þeim suður í dag. SUMRI hallar, og á morgun er fyrsti vetr- ardagur. Að sögn Öddu Báru Sigfúsdóttur veðurfræðings var sumarið heitara en í meðlári og úrkoma nokkru minni. Mánuð- urnir júlí, ágúst og september voru fádæma þurrir og sólrikir. í Reykjavík þarf að leita aftur til ársins 1974 til að finna hliðstæðu. Um júnímánuð gegnir öðru máli, færri sólskinsstundir hafa ekki talist í höfuðborginni í þeim mánuði frá upphafi mælinga árið 1923. Þær reyndust aðeins 80 talsins. Október hefur verið heldur svalur að sögn Öddu Báru, ef frá eru taldir fyrstu fjórir dagar mánaðarins. Hún sagði að tíðarfarið virtist í eðlilegu horfi, október væri úrkomu- samasti mánuður ársins og því ekki við góðu að búast. Sólskinstundir frá júlíbyrjun til september- loka mældust 589 í Reykjavík, tæplega 30% meira en í meðalári. í júní var úrkoman 65 mm, 50% meiri en í meðalári. Hina mánuðina þijá mældist rigningin samtals 128 mm, sem er fjórðungi minna en í meðalári. Morgunblaðið/Sigurgeir Saltad af kappi í V estmannaeyj um. Söltunlýkur nú um helgina - náist engir samningar við Sovétmenn MJÖG góð síldveiði hefur verið undanfarna daga og aflinn er kominn yfir 4.000 lestir. Saltað hefur verið I um 30.000 tunnur og með sama áframhaldi iýkur söltun um helgina, náist engir samningar við Sovétmenn. SUdin veiðist aðallega á Seyðis- firði og Mjóafirði. Síðustu daga lönduðu Steinunn SF 25 lestum og Ágúst Guð- mundsson GK 134 lestum á Höfn, Sif SH landaði þrívegis á Breið- dalsvík, samtals 207 lestum, Haukafell SF landaði tvívegis, samtals 185 lestum á Stöðvar- fírði, Sólborg SU landaði tvívegis, samtals 108 lestum á Fáskrúðs- firði og Snæfari RE 150 lestum eftir tvær veiðiferðir, Heiðrún EA landaði fjórum sinnum á Seyðis- firði, samtals 295 lestum og Guðrún GK einu sinni, 27 lestum. Gandf VE landaði tvívegis, sam- tals 164 lestum á Reyðarfirði, Sæljón SU þrívegis, samtals 220 lestum á Eskifírði, Geiri Péturs ÞH tvívegis, samtals 80 lestum og Björg Jónsdóttir ÞH fjórum sinnum, samtals 281 lest. Loks landaði Hringur GK 60 lestum á Eskifírði. Amþór landaði tvívegis á Norðfirði, sam tals 160 lestum. Bátunum fer nú fjölgandi á mið- unum. Fyrsta síldin, rúmlega 300 lestir, barst til Vestmannaeyja á fimmtudag af Suðurey VE og Valdimar Sveinssyni VE. Sviptingar í framboðsmálum Alþýðubandalagsins: Guðmundur J. ákveður að hætta þingmennsku Talið að Ásmundur Stefánsson og Þröstur Ölafsson muni bítast um þingsæti hans GUÐMUNDUR J. Guðmunds- son greindi stjórn Dagsbrúnar frá þvi á fundi í gær, að hann hefði ákveðið að taka ekki þátt í forvali Alþýðubandalagsins i Reykjavík fyrir næstu alþingis- kosningar og að hann myndi hætta þingmennsku, að loknu þessu þingi. Guðmundur stað- festi þetta í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins í gær. Ýmsar blikur eru á lofti, hvað varðar framboðsmál alþýðu- bandalagsmanna. Til dæmis er taiið hugsanlegt að Geir Gunnars- son, þingmaður flokksins í Reykjaneskjördæmi ákveði að hætta þingmennsku, og að Ólafur Ragnar Grímsson verði fenginn til þess að taka þátt í forvali flokksins í því kjördæmi. Þá hefur Garðar Sigurðsson þingmaður flokksins í Suðurlandskjördæmi ákveðið að hætta þingmennsku að þessu þingi loknu, og sagði hann í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að ástæður þess væru þær að hann væri búinn að vera nógu Iengi á þingi, eða sam- tals 16 ár, að þessu þingi loknu. Talið er að Svavar Gestsson formaður flokksins muni stefna að því að ná fyrsta sæti í forval- inu hér í Reykjavík, en hann upplýsti blaðamann Morgunblaðs- ins um það í gær, að alþýðubanda- lagsmenn úr öðrum kjördæmum hefðu farið þess á leit við sig að hann færi í framboð í þeirra kjör- dæmum. Ólíklegt er talið að formaðurinn verði við þeim ósk- um. Þá er talið að Ásmundur Stef- ánsson, forseti Alþýðusambands íslands og Þröstur Ölafsson fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar muni beijast um þingsæti Guðmundar, sem ávallt hefur verið litið á sem þingsæti verkalýðsarms Alþýðu- bandalagsins. Laklegt er talið að Ásmundur muni hafa betur í slíkum slag, þó að Guðmundur J. Guðmundsson styðji Þröst. Því er ekki útilokað að Þröstur muni fara í framboð í einhveiju kjör- dæminu úti á landi. Sjá nánari fregnir af fram- boðsmálum Alþýðubanda- lagsins á bls. 2 og 4. Ríkisútvarpið - sjónvarp: 25% hækkun auglýsinga AUGLÝSINGAR hækka um 25% í ríkissjónvarpinu frá 1. nóvember og gildir sú hækkun fram til 1. janúar 1987. Frá 1. janúar 1987 hækka aug- lýsingar í ríkisútvarpi og í sjón- varpi um 10% miðað við núgildandi verð. Að sögn Harðar Vilhjálmssonar íjármálstjóra út- varpsins verða miklar breytingar á gjaldskránni um áramótin auk þess, sem nýjum auglýsingatím- um verður bætt inn í dagskrána.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.