Morgunblaðið - 24.10.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986
17
Magnús Brynjólfsson, fulltrúi
þeirra sem lagt hafa hönd að
verki en hann hefur unnið við
kirkjusmíðina allt frá upphafi.
Vegfna fjarveru hans á frétta-
mannafundi í fyrradag veitti
Albert Finnbogason bygginga-
meistari viðtöku fyrir hans hönd
líkani af Hallgrímskirkju.
unnar, kom fram að sú spuming
hefði vaknað hvað þyrfti til að
Hallgrímskirkja væri vígsluhæf.
Hefði það verið mat margra manna
að á þessu stigi væri hún einmitt
svo langt komin en þó væri margt
ógert, einkum varðandi lokafrá-
gang og fegmn, utan dyra og
innan. M.a. vantaði enn prédikun-
arstól, skímarfont og aðalhurð, svo
og sjötíu radda orgel sem hæfir
hinu mikla húsi. Unnið er að fjár-
söfnun til kaupa á hljóðfærinu,
prédikunarstóll verður kostaður af
sjóði, sem stofnaður var af vinum
Hanna Hope (t.v.), ekkja séra Haralds Hope, en við vígsluna kemur
hún fram fyrir hönd erlendra velunnara sem styrkt hafa kirkjubygg-
inguna með rausnarlegum gjöfum. Fyrir fé það sem safnað hefur
verið í Noregi fyrir forgöngu séra Haralds Hope hafa m.a. öll gólf
í kirkjunni verið skifulögð.
Margrét Einarsdóttir (t.h.) sem á sínum tíma var ráðskona föður
Guðjóns Samúelssonar húsameistara og síðar hans sjálfs sem teikn-
aði kirkjuna. Hún varð vitni að þvi er frumdrættir að kirkjunni
voru lagðir á borðstofuborðið á heimili feðganna á Skólavörðustíg 35.
Allar götur siðan hefur hún unnið að kirkjubyggingunni, ásamt
öðru starfi i þágu kirkjunnar, af lifi og sál. „Það er fólk eins og
Margrét sem á drýgstan þátt í því að Hallgrimskirkja er orðin að
veruleika, einstaklingar, nafnkunnir og um fram allt óþekktir, innan
safnaðarins og um land allt, sem með kærleika sínum og fórnfýsi
hafa lagt fram fjármuni og krafta svo það verður með sannleika
sagt að Hallgrimskirkja er þjóðarhelgidómur sem þjóðin — fólkið —
reisti,“ segir sr. Karl Sigurbjörnsson.
dr. Sigurbjöms Einarssonar bisk-
ups á sjötugsafmæli hans, og
skímarfontur, sem koma mun í
náinni framtíð, er kostaður af gjöf
Asbjamar heitins Ólafssoriar stór-
kaupmanns og af skímarfontssjóði
Kvenfélags Hallgrímskirkju. Minn-
ingargjöf um Eggert Kristjánsson
stórkaupmann fer til smíða á
kirkjuhurðinni sem gerð verður í
tengslum við frágang kirkjulóðar-
innar.
Sóknarprestamir, sr. Ragnar
Fjalar Lárusson og sr. Karl Sigur-
bjömsson, sem nú taka formlega
við kirkjunni fyrir hönd safnaðar-
ins, tóku til máls á fréttamanna-
fundinum. Sr. Ragnar Fjalar gat
þess að á ferli sínum hefði hann
bæði þjónað í minnstu og stærstu
kirkju landsins. Sú minnsta væri í
Gröf á Höfðaströnd og tæki hún
12—14 manns í sæti, en talið væri
að Hallgrímur Pétursson hefði ein-
mitt fæðzt á þeim stað. Eitt væri
víst og það væri það að andi
Hallgríms ríkti í báðum þessum
guðshúsum þrátt fyrir ólíkt yfir-
bragð þeirra. Hann kvaðst á 18
ára starfsferli sínum í Hallgríms-
kirkju jafnan hafa horft fram til
þeirrar stundar, sem nú væri upp-
mnnin, en ávallt virzt hún óralangt
framundan. Sr. Karl kvað helzta
vandann nú í því fólginn að þakka
bæri öllum þeim einstaklingum,
sem saman skipuðu þá fjöldahreyf-
ingu sem borið hefði uppi byggingu
helgidómsins, ekki einungis Reyk-
víkingum heldur velunnurum um
land allt og jafnvel í öðrum lönd-
um. Stuðningur hefði verið svo
margvíslegur og komið svo víða
frá að engin leið væri að þakka
hveijum og einum. Hefði stuðning-
urinn t.d. verið fólginn í hvatningu,
fyrirbænum, fómfysi og gjöfum,
en til þess að láta í ljós þakkir
hefði verið valin sú leið að skipa
þrjá fulltrúa mismunandi hópa, svo
sem fyrr er frá greint.
Sagnfræði-
ráðstefna
um „Iðn-
byltingu
á íslandi“
Sagnfræðingafélag Is-
lands efnir til ráðstefnu
um efnið: „Iðnbylting á
Islandi — Umsköpun at-
vinnulifs um 1880 til 1940“
á morgun, laugardaginn
25. október .
Ráðstefnan verður haidin
í Odda, húsi Háskóla ís-
lands, kl. 1-6 eftir hádegi.
Hún er öllum opin og áhuga-
fólk um efnið velkomið, bæði
til að hlýða á erindi og taka
þátt í umræðum.
Fimm sagnfræðingar
flytja stutt erindi um eftirtal-
in efni: Gísli Gunnarsson:
Kenningar sem útskýra út-
breiðslu þróaðs hagkerfís;
Guðmundur Hálfdanarson:
Aðdragandi iðnbyltingar á
19. öld; Jón Þ. Þór: Vélvæð-
ing í íslenskum atvinnuveg-
um í upphafi 20. aldar;
Magnús S. Magnússon:
Stéttagerð nýs tíma; Þor-
steinn Helgason: Skilyxði
hraðþróunar á íslandi og í
þróunarlöndum samtímans.
Ms
ste1
• ÓDÝRA LAMBAKJÖTIÐ
Lambalæri ..............
....................... 259,00 kr.
Lambahryggur ....................... 250,40 kr.
Lambaframhryggur ................... 283,40 kr.
Lambagrillsneiðar .................. 198,00 kr.
Lambasúpukjöt ...................... 198,00 kr.
Lambaslög ............................ 38,00 kr.
Lambasaltkjöt, valið ............... 288,00 kr.
Lambakótilettur ..................... 250,40 kr.
Úrbeinað lambalæri .................. 438,00 kr.
Úrbeinaðirlambahryggir .............. 443,00 kr.
Úrbeinaðirlambabógar ............... 185,00 kr.
Lambahnakk ......................... 185,00 kr.
Kindahakk .......................... 175,00 kr.
• GOTT VERÐ Á REYKTU SVÍNAKJÖTI
Hamborgar reykt svínalæri ...v...... 290,00 kr.
Hamborgarreyktirsvínabógar ......... 285,00 kr.
Hamborgar reyktir svínahryggir ..... 490,00 kr.
Hamborgar reyktir svínahnakkar'
úrbeinaðir .......................... 477,00 kr.
Bajon skinka (úrbeinað læri) ....... 351,00 kr.
Sænsk skinka (eftir pöntun) ......... 290,00 kr.
Úrbeinað hamborgarhryggur
(samkv. danskri aðferð) ............. 830,00 kr.
• ÚRVALS NAUTAKJÖT
Fillet ............................ 760,00 kr.
Mörbráð ............................. 845,00 kr.
Gullasch ........................... 550,00 kr.
Ensktbuff ........................... 640,00 kr.
Schnitzel ........................... 595,00 kr.
Innlæri ............................. 640,00 kr.
Hakk ................................ 298,00 kr.
10kghakk ............................ 268,00 kr.
Bógsteikur .......................... 275,00 kr.
T-bonesteikur ...................... 430,00 kr.
Grillsteikur ........................ 430,00 kr.
KJÖTMIÐSTÖÐIN Sími 686511 I °Pið alla föstudaga til kl. 20 og laugardaga 07 — 16.
1/2 NAUT 249,- KR/KG
— úrbeinað/pakkað/merkt
— flokkur U.N.I.
1/2 SVÍN 249,- KR/KG
— nýtt eða reykt
— úrbeinað/pakkað/merkt
1/1 LAMB 179,- KR/KG
— rúllupylsa fyrir slög
VERIÐ VELKOMIN í BESTA KJÖTVERÐIÐ.