Morgunblaðið - 24.10.1986, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986
Lech Walesa
fengi ekki að
snúa heim
Getur því ekki tekið við
verðlaunum í Bandaríkjunum
Varsjá, AP.
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, hinna óháðu verkalýðs-
samtaka í Póllandi, hefur skýrt svo frá, að hann muni
ekki fara til Bandaríkjanna i þessari viku til þess að taka
við svonefndum „heiðarleika-verðlaunum", nema því aðeins
að pólska stjórnin ábyrgist, að hann fái leyfi til að snúa
heim aftur auk þess að láta honum i té vegabréf.
Walesa kvaðst fyrr í vikunni
vera „99,9% viss“ um, að stjóm-
völd myndu neita að láta honum
í té slíka ábyrgðaryfírlýsingu, en
bætti við: „Örlítill möguleiki er
þó fyrir hendi.“ í gær var það
ljóst, að hann fengi ekki að fara,
því að þá var neitað að endumýja
vegabréf hans.
Er Jerzy Urban, taismaður
pólsku stjómarinnar, var spurður
að því á fíindi með fréttamönnum,
hvort Walesa fengi að snúa heim
aftur, þá svaraði hann: „Það hefur
aldrei gerzt, að pólsk yfírvöld
hafí gefíð þess konar tryggingu.“
Svonefnd John-Roger-stofnun í
Santa Monica í Kalifomíu veitir
framangreind verðlaun og er Wa-
lesa einn af þremur mönnum, sem
fær þau í ár. Hefur stofnunin
boðið Walesa til Bandaríkjanna til
að taka þar við verðlaununum að
fjárhæð 10.000 dollarar, sem
Walesa hefur þegar sagt, að hann
myndi gefa franskri hjálparstofn-
un, sem verið hefur virk í Póliandi.
Walesa hlaut friðarverðlaun
Nóbels 1983 fyrir baráttu sína
sem leiðtogi Samstöðu, fyrstu
óháðu verkalýðssamtakanna í
Austur-Evrópu. Hann sendi þá
konu sína, Danutu og son sinn,
Bogdan, til Osló til að taka þar
við verðlaununum fyrir sína hönd.
Samstaða var bönnuð 1982, er
herlög ríktu í Póllandi.
Þyrlunni lyft upp úr Hudson-á eftir slysið á miðvikudag.
New York:
„ Við lendum í vatninu
við lendum í vatninu“
- hrópaði fréttakonan um leið og
þyrlan hrapaði í Hudson-ána
New York, AP.
UM það miUjón manns heyrði fréttakonuna hrópa „við lendum í
vatninu, við lendum í vatninu" um leið og þyrlan, sem hún var
i, hrapaði niður i Hudson-ána í New York. Hafði fréttakonan
verið að lýsa umferðinni á mesta annatímanum. Beið hún bana
I slysinu en flugmaðurinn komst lífs af mikið slasaður.
Fréttakonan, Jane Domacker
að nafni, vann fyrir WNBC-
útvarpsstöðina og var þetta í
annað sinn á árinu, sem hún hrap-
ar til jarðar með þyrlu. Fyrra
slysið átti sér stað f apríl sl. þeg-
ar hún steyptist með þyrlu ofan
í Hackensack-ána í New Jersey
en þá tókst henni að synda í land
ásamt flugmanninum. Björgunar-
menn náðu Domacker og flug-
manninum úr Hudson-ánni tíu
mínútum eftir að þyrlan hrapaði
en þrátt fyrir miklar lífgunartil-
raunir var hún látin áður en komið
var með hana á sjúkrahús.
Domacker, sem m.a. hafði get-
ið sér gott orð fyrir gamanleik
og farið með minniháttar hlutverk
í kvikmyndum, fékkst ekki til að
stíga upp í flugvél í nokkra mán-
uði eftir slysið í apríl en var nú
búin að vinna bug á ótta sínum.
Hún var að gefa venjulega lýsingu
á umferðinni við Lincoln-göngin
undir Hudson-á þegar hún þagn-
aði allt í einu og hrópaði svo „við
lendum í vatninu, við lendum í
vatninu". Þyrlan lenti hins vegar
á árbakkanum, á gangstétt og
girðingu, áður en hún féll í ána.
Könnun á fylgi breskra stj órnmálaflokka:
Höfuðandstæðingarnir
standa nú jafnir að vígi
Lech Walesa
Vinsældir Margaret Thatcher fara vaxandi
London, AP.
SAMKVÆMT skoðanakönnun sem Gallup-stofnunin birti í gær er
fylgi breska íhaldsflokksins nú jafnt fylgi Verkamannaflokksins. í
öllum þeim könnunum sem gerðar hafa verið á fylgi breskra stjóm-
málaflokka í ár hefur íhaldsflokkurinn reynst njóta minna fylgis
en Verkamannaflokkurinn.
þeir myndu kjósa íhaldsflokkinn og
fylgi Verkamannaflokksins reyndist
vera hið sama. Þetta er í fyrsta
skipti frá því í janúar sem flokkam-
Almennt er talið að Margaret
Thatcher boði til kosninga á næsta
ári. Kjörtímabili hennar lýkur hins
vegar ekki fyrr en árið 1988.
Fylgi íhaldfsflokksins jókst um
5% í þessum mánuði samkvæmt
könnuninni. Svo virðist sem íhalds-
flokkurinn njóti góðs af ágreiningi
innan Bandalags jafnaðarmanna
(SDPj um stefnu Breta í vamarmál-
um. I könnuninni kom einnig fram
að persónulegt fylgi Margaret
Thatcher, forsætisráðherra, fer
vaxandi. 36% aðspurðra kváðust
vera ánægðir með störf hennar. í
ágústmánuði svöruðu 28% að-
spurðra þeirri spumingu játandi.
Gallup-könunin náði til alls
landsins og vom 952 kjósendur
spurðir: „Ef þingkosningar fæm
fram á morgun hvaða flokk myndir
þú þá kjósa." 37,5% svömðu að
Míkki Mús legg-
ur land undir fót
Peking', AP.
MIKKI Mús og félagar munu senn teljast fjölskyldu-
vinir í Kina. Disney-fyrirtækið tilkynnti i gær að
kínverska sjónvarpið myndi hefja útsendingar á
þáttum með þeim félögum á sunnudaginn.
Teiknimyndimar verða sýndar næstu tvö árin til
reynslu. Forráðamenn Disney-fyrirtækisins vonast til
þess að vinsældir þeirra verði þá orðnar svipaðar þar
eystra og í Evrópu og Bandaríkjunum. Talið er að 300
milljónir Kínveija eigi sjónvaipstæki.
Disney-fyrirtækið vonast til þess að hagnaður af
samningi þess og kínverska sjónvarpsins verði veruleg-
ur. Ef Mikki Mús slær í gegn verður unnt að hefja sölu
á alls kyns vamingi frá fyrirtækinu.
Að sjálfsögðu mun músin, sem og önnur þau kvik-
indi sem Walt Disney skapaði, tísta á kínversku.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands.
ir standa jafnir að vígi. í könnunum
síðustu tveggja ára hefur traust
kjósenda á Bandalagi jafnaðar-
manna aldrei verið minna en nú.
Fylgi Verkamannaflokksins hefur
hins vegar verið stöðugt.
Þrír flýja
til Vestur-
Þýzka-
lands
MUnchen, AP.
ÞRÍR Austur-Þjóðveijar flýðu
yfir landamærin til Vestur-
Þýzkalands á miðvikudag. Er
fjöldi þeirra, sem flúið hafa vest-
ur yfir orðinn 26 á einum mánuði
Haft var eftir lögreglunni í Múnc-
hen, að tveimur þeirra, sem flýðu
nú, hefði tekizt að komast óséðir
framhjá landamæravörðum og
klifra heilu og höldnu yfír málm-
girðingar á landamærunum og
komast þannig til Bæjaralands.
Þriðja manninum tókst að læðast
óséður yfír landamærin í Neðra
Saxlandi, ekki fjarri Goslar.
Flóttatilraunir að austan hafa
verið tiðar að undanfömu. Á sunnu-
dag synti tvítugur Austur-Þjóðveiji
vestur yfír Elbu í Neðra Saxlandi.
Komst hann yfír heill á húfí, þrátt
fyrir það að fljótið sé mjög kalt á
þessum árstíma.