Morgunblaðið - 24.10.1986, Page 23
:ÓKTÓBER 1986
m
Erfðadeflur eftir
lát frú Picasso
DEILUR hafa komið upp um það
hver eigi að erfa 61 listaverk
eftir Pablo Picasso, er ekkja hans
Jacqueline, lét eftir sig. Nokkr-
um mínútum áður en hún framdi
sjálfsmorð 15. okt. sl. hringdi frú
Picasso i yfirmann spænska nútí-
malistarsafnsins í Madrid og
ítrekaði að hún vildi gefa safninu
einkasafn sitt.
Verkin 61 eru þegar komin til
Madrid þar sem opna á sýningu á
þeim á morgun, fæðingardegi Pablo
Picasso, en franskir embættismenn
vilja að verkin verði flutt aftur til
Frakklands þar sem það brjóti í
bága við lög að gefa slík verk og
flytja úr landi án vitneskju yfir-
valda. Ekki er vitað til þess að frú
Picasso hafi staðfest þennan vilja
sinn skriflega, en Miguel Satru-
stegui, deildarstjóri í Menningar-
málaráðuneyti Spánar segir að
Jacqueline Picasso, hafí margoft
sagt að hún vildi að verk Picasso
höfnuðu í landinu þar sem hann
fæddist, Spáni. Erfðaskrá frúarinn-
ar mun væntanlega skýra málið.
Ekkjan hafði áður tjáð Auelio
Torrentes, yfírmanni nýlistasafns-
ins að safnið mætti halda verkunum
eftir sýninguna og hafði hann látið
útbúa sérstakt skjal þessu til stað-
festingar og ætlaði að fljúga til
Frakklands til að fá undirskrif frú
Picasso daginn sem honum barst
andlátsfregnin. Við opnun sýning-
arinnar í Madrid, sem Jóhann Karl
Spánarkonungur ætlaði að vera við-
staddur átti á formlegan hátt að
gera Jacqueline Picasso að spönsk-
um ríkisborgara, en þess hafði hún
óskað um langt skeið.
Johan Jörgen Holst, varnarmálaráð-
herra Noregs, um Skotlandsfundinn:
„Niðurstaðan er mik-
ill sigur fyrir ein-
ingu Nato-ríkjanna“
Ösló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara
Morjjunblaðsins.
MIKIL ánægja ríkir meðal flestra
stjórnmálamanna í Noregi með
að varnarmálaráðherrann, Johan
Jörgen Holst, lét það ógert að
hafa fyrirvara á eða koma inn
sérstakri athugasemd í yfirlýsing-
una, sem gefin var út að loknum
fundi vamarmálaráðherra Atl-
antshafsbandalagsins í Skotlandi.
Búast má þó við, að vinstriarmur-
inn í Verkamannaflokknum láti i
ijós óánægju sina með, að Norð-
menn skuli ekki hafa tekið
afstöðu gegn geimvarnaáætlun-
inni bandarisku.
Eftir miklar viðræður milli Holst
og Richard Perle, aðstoðarvamar-
málaráðherra Bandarikjanna, náðist
samkomulag um orðalag yfírlýsing-
arinnar. í henni er veittur fullur
stuðningur við afstöðu Bandaríkja-
manna í Genfarviðræðunum auk þess
sem Norðmenn fallast á skilyrtan
stuðning við geimvamaáætlunina. Á
þetta orðalag, sem Norðmenn fengu
nú inn í yfírlýsinguna, var ekki fall-
ist á fundi vamarmálaráðherra Nato
í maí sl. en síðan hafa Norðmenn og
Bandaríkjamenn rætt málið með sér
í Brussel og vestanhafs einnig þar
sem Holst hefur verið í heimsókn.
„Ég er mjög ánægður með niður-
stöðu fundarins og það er ekki um
Svíþjóð:
Kona dæmd
fyrir nauðgun
Stokkhólmi, AP.
ÞRÍTUG sænsk kona hefur verið
dæmd fyrir að nauðga annarri
konu að því er haft var eftir
ónafngreindum starfsmanni
sænskra dómstóla i gær.
Dómurinn var felldur í héraðs-
rétti bæjarins Orebro og er þetta
fyrsta sinni, sem kona er dæmd
fyrir nauðgun í sænskri réttarsögu.
Konan og fertugur maður, sem
bjó með henni, voru dæmd til
tveggja ára fangelsisvistar fyrir að
þvinga tæplega fertuga vinkonu
sína til samfara og sambærilegra
athafna í september.
Hin ákærðu neituðu öllum sakar-
giftum og sögðu að konan hefði
kært til lögreglu vegna afbrýði-
semi, að sögn starfsmannsins.
Lágmarksrefsing fyrir nauðgun
er tvö ár samkvæmt sænskum lög-
um.
Johan Jörge Holst, varnarmála-
ráðherra Noregs.
það að ræða, að einn hafi borið af
öðrum. Niðurstaðan er mikill sigur
fyrir einingu Nato-ríkjanna,“ sagði
Holst. Norðmenn reyndu að fá Dani
til að falla frá sínum vanalegu at-
hugasemdum en það tókst ekki.
Danski vamarmálaráðherrann var
bundinn í báða skó af meirihluta
danska þingsins og fyrirvarinn um
geimvamaáætlunina var ítrekaður af
þeirra hálfu.
Jens Stoltenberg, formaður í æsku-
lýðssamtökum Verkamannaflokks-
ins, hefur gagnrýnt stjóm síns eigin
flokks fyrir að hafa ekki komið að
gagnrýni á geimvamaáætlunina og
búist er við, að aðrir frammámenn í
vinstiarmi flokksins muni láta í sér
heyra.
Þingflokki Verkamannaflokksins
var gerð gfrein fyrir niðurstöðu Nato-
fundarins seint I fyrrakvöld og hefur
varaformaður flokksins, Einar Förde,
hana nú til athugunar. Norðmenn
leggja mikla áherslu á að fylgja eftir
árangri Reykjavíkurfundarins og
Förde vitnar til ummæla leiðtoga
stórveldanna um, að þeir hafi ekki
staðið nær kjamorkuafvopnun í tíu
ár. „Það skulum við hafa í huga og
til að stuðla að samningum verðum
við að efla eininguna innan Nato,“
sagði Förde.
I Hægriflokknum, Miðflokknum og
Kristilega þjóðarflokknum ríkir mikil
ánægja með, að Norðmenn skyldu
komast hjá því að gerast „fyrirvara-
þjóð“ rétt einu sinni enn. Forystu-
menn þessara flokka leggja áherslu
á, að með tilliti til árangursins í
Reykjavík sé Atlantshafsbandalags-
þjóðunum nauðsynlegt að standa
einhuga saman.
Persónulegur still
i góðum klæðnaði
AUGLST. BJARNA D.