Morgunblaðið - 24.10.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986
27
Frumvarpsdrög að
frídegi sjómanna
Allir fiskimenn í fríi á sjómannadaginn,
aðrar reglur fyrir fyrir aðra sjófarendur
Morgunblaðið/Þorkell
Frá þingi Sjómannasambands íslands. Óskar Vigfússon, formaður sambandsins í ræðustóli
15. þing Sjómannasambands íslands:
Afnám kostnaðarhlutdeildar
eitt af stærstu málum þingsins
Hlutaskiptakjör sjómanna verði leiðrétt áður en
ríkið fer að innheimta ávinninginn af lækkun olíuverðs
KJARAMÁL sjómanna er eitt
helzta mál 15. þings Sjómanna-
sambands íslands, sem hófst í
gær. Sjómenn telja að veiga-
mesta atriðið í næstu kjara-
samningum verði afnám
kostnaðarhlutdeildar í ljósi
síminnkandi olíukostnaðar út-
gerðarinnar. í drögum að
ályktun um kjaramál segir að
framkvæmdsljórn Sjómanna-
sambandsins krefjist þess, af
stjórnvöldum að hlutaskipta-
kjör sjómanna verði leiðrétt
áður en þau fari innheimta til
sín þann ávinning, sem orðið
hafi af olíuverðslækkuninni.
Óskar Vigfússon, formaður
Endurskoðun
hf. endurskoð-
ar Byggung
STJÓRN Byggung sf., Reykja-
vík, og fulltrúar úr 5. bygfgingar-
áfanga hafa gert samkomulag
við Endurskoðun hf., Suður-
Iandsbraut 18, Reykjavík, um að
athugun fari fram á tilteknum
atriðum er varða uppgjör við
félagsmenn í 5. byggingarflokki
hjá félaginu.
Lögð er áhersla á að athuguninni
verði hraðað. Rétt er að það komi
fram, að Endurskoðun hf. er eina
endurskoðunarskrifstofan, sem leit-
að var til um þetta mál, segir í frétt
frá Byggung.
sambandsins flutti skýrslu stjórn- stefnu, sem höfð verður að leiðar-
ar og sagði þá meðal annars: „Á ljósi í þessum efnum í komandi
þessu ári hefur hagur útgerðar samningum
vænkazt mjög vegna verulegrar
lækkunar á olíuverði. Einnig hefur
fjármagnskostnaður útgerðarinn-
ar lækkað nokkuð vegna þróunar
Bandaríkjadollars og lækkunar
vaxta. Einnig hefur rekstrarijár-
staða útgerðar lagazt verulega
vegna skuldbreytinga hjá útgerð-
arfyrirtækjum. Á árinu 1983 setti
ríkisstjómin bráðabirgðalög um
sérstakan kostnaðarhlut útgerðar
framhjá skiptum vegna slæmrar
stöðu útgerðar á þeim tíma. Nú
hefur dæmið snúizt við. Gasolíu-
verð til fískiskipa hefur lækkað
verulega á þessu ári og nemur
lækkunin um 42% frá því í lok
febrúar til dagsins í dag. Verð á
svartolíu hefur einnig lækkað
verulega eða um 46% frá því í
byrjun nóvember 1985. Sem dæmi
um hvaða þýðingu olíuverðslækk-
unin hefur fyrir útgerðina má
segja að kostnaðarlækkun botn-
fískveiðiflotans sé um 740 milljón-
ir króna vegna lækkunarinnar.
Olíukostnaður botnfískveiðiflot-
ans sem hlutfall af tekjum hefur
lækkað úr 18,7% á árinu 1985 .....—____________________________________________
niður í tæp 10% miðað við rekstr- .
arskiiyrði nú í september. Hiutfaii Felag Samemuðu þj ooainia:
olíukostnaðar af tekjum hefur ---------------sö----------------------------------------
ekki verið svo lágt síðustu 10 ár-
in, enda sýna afkomutölur útgerð-
ar nú, að afkoman hefur ekki
verið jafngóð um árabil.
í sjávarútvegsráðuneytinu eru
nú tilbúin drög að frumvarpi til
laga um frídag sjómanna. Halld-
ór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, lagði frumvarpsdrögin
fram á þingi Sjómannasambands
íslands og sagðist vænta þess,
að þingfulltrúar myndu gera við
þau athugasemdir og bentu á
það, sem betur mætti fara.
Halldór sagðist lengi hafa verið
þeirra skoðunar að sjómannadagur-
inn ætti að vera allshetjar frídagur
sjómanna með sem minnstum und-
anþágum. Bið hefði orðið á því að
frumvarp um þetta efni yrði flutt á
Alþingi, einkum vegna þess, að
ekki hefði náðst góð samstaða um
málið. Það, sem staðið hefði í vegi
fyrir því, að menn gætu orðið sam-
mála um að lögfesta frídag sjó-
manna, væri aðallega þrennt. „I
fyrsta lagi verður að líta til þess,
að sjómannadagurinn er dagur allra
sjómanna, ekki eingöngu físki-
manna, heldur einnig þeirra, sem
vinna á farskipum, varðskipum og
hafrannsóknaskipum, en erfítt er
að stöðva þau í landi einn ákveðinn
dag,“ sagði Halldór. „Í öðru lagi
fylgir frídegi röskun á úthaldi skipa.
sem selja á erlendum markaði. í
þriðja lagi hafa ýmsir talið að sjó-
mannadagurinn gæti orðið þess
valdandi í sumum byggðarlögum,
að al!t of mikill afli bærist á land
rétt fyrir frídaginn."
Halldór sagði, að í frumvarps-
drögunum væri gert ráð fyrir að
allir fískimenn yrðu í fríi þennan
dag og undantekningum frá því
yrðu settar þröngar skorður. Þann-
ig yrði það að mestu leyti á valdi
stéttarfélaga sjómanna, hvort und-
antekningar yrðu veittar. Þá væri'
gert ráð fyrir því, að aðrar reglur
yrðu látnar gilda um skipveija á
farskipum, varðskipum, hafrann-
sókna- og strandferðaskipum, enda
væri vandséð að hægt yrði að kom-
ast hjá því.
Kynningarfundur
hjá Málfreyjum
KYNNINGARFUNDUR II Ráðs
Málfreyja verður haldinn í Safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli
Garðabæ á morgun, laugardag-
inn 25. október, og hefst kl.
15.00.
15. þing Sjómannasambands
íslands hófst klukkan 10 á
fimmtudagsmorgun með þing-
setningu, skýrslu formanns og
ávörpum geta, Halldórs Ásgríms-
sonar, sjávarútvegsráðherra,
Ásmundar Stefánssonar, forseta
ASÍ og Haralds Holsvik, fram-
kvæmdastjóra Farmanna- og
fískimannasabands íslands.
Síðdegis voru umræður um
skýrslu formanns, reikninga sam-
bandsins, öryggis- og trygginga-
mál, atvinnu- og kjaramál,
fijálsan fískmarkað og viðhorf til
Ríkismats sjávarafurða og hug-
myndir um breytingar. í dag
flytur Jón Sigurðsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, erindi og Jón
Kr. Olsen fyrir hönd vérlstjórafé-
lags Suðumesja. Loks verður
stjómarkjör á föstudag. Þá verður
einnig síðari umræða um atvinnu-
og kjaramál. Á laugardag verður
áfram rætt um öryggis- og trygg-
ingamál, fjárhagsáætlun næsta
kjörtímabils og ályktanir af-
greiddar.
Dómsmálaráðuneyti:
Astæðulaust að rann-
saka starfsemi Vara
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu
að ekki séu efni til að láta fara
fram opinbera rannsókn á starf-
semi vaktþjónustunnar Vara í
Reykjavík.
I lok ágústmánaðar sl. skrifuðu
15 starfsmenn öryggisgæslufyrir-
tækisins Securitas sf. bréf þar sem
þess er krafíst af Jóni Helgasyni,
dómsmálaráðherra, að hann láti
fara fram opinbera rannsókn á
starfsemi Vara, en ráðuneytið hafði
viðurkennt starfsemi fyrirtækisins
skömmu áður. í bréfínu sögðu
fimmtánmenningamir að þeim hafi
verið „misboðið herfílega sem stétt
með þessari opinberu viðurkenn-
ingu á starfsemi Vara“ og töldu
ástæðu til að rannsaka hvort Vari
hefði „blekkt viðskiptavini sína með
skipulögðum loddaraskap eða
ekki.“ I bréfínu vom síðan talin upp
þau atriði sem Securitas-menn töldu
þurfa athugunar við, s.s. hvort brot-
ist hafi verið inn í stjómstöð Vara,
hvort fyrirtækið hafí smyglað til
landsins fjarskiptatækjum, hvort
dæmdur eiturlyfjasali starfaði hjá
fyrirtækinu, hvort öryggismiðstöð
Vara stæðist þær kröftir sem gerð-
ar eru o.s.frv.
í bréfi sem dómsmálaráðuneytið
sendi hlutaðeigandi mönnum í gær
segir að af hálfu ráðuneytisins hafí
verið hlutast til um könnun á þess-
um atriðum. Að lokinni þessari
könnun telji ráðuneytið ekki tilefni
til þess að hlutast til um að öpinber
rannsókn fari fram.
Broddur og
rófur í Aust-
urstræti í dag
Selfossi:
I dag klukkan 14,00 ætlar Sam-
kórsfólk frá Selfossi að bjóða
Reykvikingum og öðrum sem
fara um Austurstræti ýmsan
varning úr Flóanum, þar á meðal
brodd og rófur.
Samkórsfólkið er vel minnugt sams
konar ferðar í júni en þá seldist
allt upp á 10 mínútum þrátt fyrir
að slagveður væri. Þá var broddur-
inn sérlega vinsæll og fengu færri
en vildu.
Rófumar em úr Samkórsakrin-
um f Sandvíkurhreppi og nýupp-
teknar. Auk broddsins og rófanna
verða á boðstólum kökur, heima-
bakað brauð, sultur og úrval af
öðm kaffíbrauði.
Sig Jóns.
Af þeim kostnaðarhlut, sem
tekinn var framhjá skiptum á ár-
inu 1983 hefur litlum hluta verið
skilað til baka inn í hlutaskiptin.
Nú í dag em 13% af brúttóverði
enn tekin framhjá skiptum af þeim
kostnaðarhlut, sem tekinn var
með lögum árið 1983.
í ljósi breyttra aðstæðna hlýtur
því aðalkrafa komandi samninga
að vera að sjómenn fái hlutdeild
í batnandi afkomu útgerðar með
því að endurheimta hluta af því,
sem áður hefur verið af þeim tek-
ið. Þetta þing hlýtur að móta þá
Ráðstefna o g hátíðardag-
skrá í tilefni friðarárs SÞ
40 ár liðin frá því ísland gekk í SÞ
0
INNLENT
! tilefni af friðarári Sameinuðu
þjóðanna 1986 gengst Félag
Sameinuðu þjóðanna hér á landi
fyrir ráðstefnu að Hótel Sögu
nk. sunnudag, 26. október. í dag
er stofndagur Sameinuðu þjóð-
anna og þann 19. nóv. nk. eru
40 ár liðin síðan ísland gerðist
aðili að SÞ. Ráðstefnan verður
haldin milli kl. 13.30 og 15.30 og
ber hún yfirskriftina „Ófriðar-
og hættusvæði í heiminum".
Stuttar framsöguræður flytja:
Gunnar Gunnarsson starfsmaður
Öryggismálanefndar, Hannes Hei-
misson blaðamaður, Magnús Torfí
Ólafsson blaðafulltrúi ríkisstjómar-
innar, og Margrét Heinreksdóttir
fréttamaður. Síðan verða pallborðs-
umræður og í þeim verða þátttak-
endur Ámi Bergmann ritstjóri,
Eyjólfur Konráð Jónsson formaður
utanríkismálanefndar, Guðrún
Agnarsdóttir alþingismaður og
Þórður Ægir Óskarsson stjóm-
málafræðingur. Ráðstefnustjóri
verður Ásgeir Pétursson og pall-
borðsumiæðum stjómar Gunnar G.
Schram.
I frétt frá félaginu segir að ráð-
stefnan sé einskonar framhald af
umræðum í tilefni leiðtogafundarins
f Reykjavík. Sérstaklega verður
rætt um þau svæði í heiminum þar
sem ófriðarblikur eru á lofti og þar
sem hætta er á að geti orðið að
víðtæku ófriðarbáli.
Þá verður hátíðarsamkoma í
Þjóðleikhúsinu í tilefhi af friðarár-
inu 22. nóv. nk. Þar mun Jan
Martensson frá Svíþjóð flytja er-
indi, en hann er forstöðumaður
Afvopnunarstofnunar SÞ í New
York. Einnig verður flutt leikritið
„Friðurinn" eftir Aristofanes og
bamakór mun m.a. syngja söng SÞ
eftir Pablo Casals.
Um næstu helgi kemur út bækl-
ingur á vegum félagsins um
Sameinuðu þjóðimar og fríðarmál-
in. Stjómmálamenn og stjómmála-
fræðingar rita greinar í bæklinginn
og verður honum dreift í skólum
og til almennings. íslendingar, sem
setið hafa Allsheijarþing SÞ hafa
verið beðnir um að sækja heim
framhaldsskóla og kynna þar SÞ
með sérstöku tilliti til friðarársins.
Öllum þingflokkum hefur verið
skrifað og hafa þeir allir samþykkt
að leggja til ræðumenn af þessu
tilefni.
Kynningarþáttur um Sameinuðu
þjóðimar verður á dagskrá ríkis-
sjónvarpsins í kvöld í umsjá Guðna
Bragasonar fréttamanns, en hann
hefur einmitt sjálfur starfað við
útvarp SÞ í New York. Þá verður
einnig þáttur í hljóðvarpi um SÞ í
dag í umsjá Ama Gunnarssonar.