Morgunblaðið - 24.10.1986, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjörnuspekingur. Mig
langar að biðja þig að segja
mér allt um stjömukortið
mitt. Ég er fædd 9. aprfl
1966 kl. 6.05 f.h. í Reykjavík.
Með fyrirfram þökk. Hrútur.
(Rísandi Vatnsberi?)."
Svar:
Þú hefur Sól og Mars saman
í Hrút, Tungl og Miðhimin í
Bogmanni, Merkúr og Venus
í Fiskum og Vatnsbera
Rfsandi.
Kraftmikil
~~ Það að hafa Sól og Mars
saman í Hrút táknar að þú
ert kraftmikil og drífandi.
Þú þarft að hreyfa þig mikið
og fá líkamlega útrás. Ef
slíkt gerist ekki er hætt við
að þú verðir óþolinmóð, leið
og þreytt. Hrúturinn end-
umjjar lífsorku sína með
nýjum athöfnum og hreyf-
ingu. Hann þolir ekki kyrr-
stöðu og vanabindingu.
Sjálfstæð
Það að vera Hrútur með
Tungl í Bogmanni táknar að
þú þarft að vera sjálfstæð
og ftjáls til að hreyfa þig og
ferðast. Þú verður þvi t.d.
að vera sjálfstæð I hjóna-
bandi, vera gift manni sem
gefur þér svigrúm og er ekki
sffellt að skipta sér af þér.
Feröalög
Tungl í Bogmanni og Júpiter
á IC bendir eindregið til
ferðalaga eða búsetu erlend-
is. Það táknar einnig að þú
ert eirðarlaus og forvitin og
hefur þörf fyrir íjölbreyti-
leika sem lfkast til er ekki
hægt að fá útrás fyrir með
því að dvelja á sama staðnum
alla ævi. Starf sem felur í sér
ferðalög gæti átt ágætlega
við þig.
Hress
Bogmannstungi táknar einn-
ig að þú ert hress og glað-
lynd. Þú ert bjartsýn og lftið
fyrir að búa til vandamál, ert
jákvæð í viðhorfum til lífsins
og því lfkast til heppin.
Fljótfœr
Þú getur þurft að varast að
vera fljótfær og óþolinmóð
ef mál ganga ekki strax upp
eftir þínu höfði. Þú þarft
einnig að varast tilhneigingu
til að fara úr einu í annað
og hlaupa frá hálfnuðu verki.
Slíkt getur komið f veg fyrir
að þú náir að þroska hæfi-
leika þfna.
Myndrœn hugsun
Merkúr í Fiskum í samstöðu
við Satúmus táknar að þú
hefur sterkt ímyndunarafl og
myndræna, draumlynda
hugsun. Hugsun þín er litræn
en jafnframt það sem er dul-
ast í fari þínu. Satúmus
bendir til að þú eigir stundum
erfitt með að tjá þig og út-
skýra fyrir öðrum hvað þú
ert að hugsa. Á hinn bóginn
ert þú samviskusöm og dug-
* leg og ættir að geta agað
hugsun þína og náð valdi á
þessum þætti. Vegna áhuga
á ferðalögum gæti verið
ágætt fyrir þig að leggja
stund á tungumálanám.
NcerÖ tilallra
Vatnsberi Rísandi og Venus
í Fiskum í 1. húsi táknar að
þú ert félagslynd og vilt
starfa með öðru fólki. Fram-
koma þín er yflrveguð en
jafnframt ljúf og vingjamleg.
Þú átt auðvelt með að ná til
allra, ert skilningsrík og
umburðarlynd. Að lokum: Þú
ert jákvæð, hress og kraft-
mikil persóna, ert drífandi
og lítillega óþolinmóð. Það
sem þú tekur þér fyrir hend-
ur þarf því að vera lifandi,
flölbreytilegt og skemmtilegt
og fela í sér hreyfingu og
ferðalög.
GRETTIR
TOMMI
OG JENNI
iiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiinii.iniDmnMiiiiiimnimimniiiiJiimiiiiiiiiiiiiTnmimiiiiiiiiiniiiiTnniiniiiiiDiiiiiiin ■ 1 . 1 ——— —
SMÁFÓLK
I W0K1PER IF l'M
60ING TO BE
CRABBY TOPAY..
Skyldi ég verða geðfúl í
dag?
I TMINR MAYBE I AM..
I TMINK l'M G0IN6
TO BE REAL CRABBY...
Ég held ég sé það______ég
held að ég verði virkilega
geðfúl____
MOU) 500N
BEFORE
YOU KNOU)?
IN TME MEANTIME,
PON'T GO AU)AY.'
Hvað er langt Jjangað til
þú veizt það? Eg er ekki
viss.
En farðu ekki burt á með-
an!
Ron Andersen, einn af kunn-
ustu atvinnuspilurum Banda-
ríkjanna, segir farir sínar ekki
sléttar gegn tveimur „að því er
virtist glæsilegum, greindum,
ungum og aðlaðandi spilurum
af veikara kyninu," eins og þær
Sabine Zenkel og Daniela Vam-
im komu honum fyrir sjónir,
þegar hann mætti þeim í
tvímenningskeppninni á HM. En
þegar til kom reyndust þær vera
„hættulegar, sókndjarfar, ör-
uggar og svo sterkar í íþróttinni,
að þær ættu með réttu að vara
andstæðingana við,“ bætir And-
ersen við.
Þær Zenkel og Daniela eru
reyndar eitt sterkasta par Þjóð-
veija um þessar mundir, og svo
sem ráða má af orðum Andersen
fóru þær illa með hann í
tvímenningnum. í fyrra spilinu
gegn honum og félaga hans
fundu þær einu vömina til að
bana þremur gröndum. Og svo
kom þetta:
Vestur
♦ KD4
VD54
♦ 843
♦ KG43
Norður
♦ 987632
¥92
♦ DG
♦ 875
Austur
♦ G105
¥ G7
♦ 96
♦ ÁD10962
Suður
♦ Á
¥ ÁK10863
♦ ÁK10752
♦
Þýsku stúlkumar héldu á spil-
um NS og létu ekki hindrunar-
opnun austurs aftra sér frá að
segja alslemmu í tígli.
Vestur Norður Austur Suður
— — 3 lauf 4 lauf
5 lauf Pass Pass 5 grönd
Pass 6 lauf Pass 7 lauf
Pass 7 tíglar Allir pass
Andersen bað um skýringar á
sögnum NS og fékk þessan
1) Fjögur lauf: sterk tvílita
hönd.
2) Fimm grönd: tígull og
hjarta, nánar tiltekið.
3) Sex lauf: sama lengd í tígli
og hjarta.
4) Sjö lauf: „veldu skárri lit-
inn!“
5) Sjö tíglar: „allt í Iagi“.
Það þarf ekki að taka það
fram að slemman vannst auð-
veldlega, þar sem báðir rauðu
litimir féllu 3—2.
Í sjöttu umferð haustmóts
Taflfélags Reykjavíkur, sem nú
stendur yfir, kom þessi staða
upp í skák þeirra Davíðs Ólafs-
sonar og Hannesar Hlífars
Stefánssonar, sem hafði svart
og átti leik.
30. - Hxf2! 31. Kxf2 - Df4+,
32. Ke2 - Rd4+, 33. Kd3
(Hvítur vonast nú eftir 33. —
Dxcl, 34. Rxd6, en svartur á
sterkari leik:)
33. - Rb3+! 34. Rxd6 - Rxd6!
35. Hc7 - Rxcl+, 36. Kc2 -
b3+, 37. Kdl - Dfl og hvítur
gafst upp, því hann er mát í
öðrum leik.
Eftir fimm umferðir á mótinu
var Björgvin Jónsson efstur með
fimm vinninga og Hannes Hlífar
í öðru sæti með fjóran og hálfan
vinning, en hann hafði teflt einni
skák fleira en Björgvin.