Morgunblaðið - 06.11.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
31
AKUREYRI
Verk Hlyns Helga
sonar kynnt í
Alþýðubankanum
# Morgunblaðið/Guðmundur
Frá æfingu hjá Kammerhljómsveit Akureyrar, t.v. Roar Kvam stjómandi hljómsveitarinnar og Waclaw
Lazarz flautuleikari frá PóUandi.
Kammerhljómsveit Akureyrar
heldur tónleika í kirkjunni
LISTKYNNING Menningar-
samtaka Norðlendinga og
Alþýðubankans kynnir að þessu
sinni fimm verk eftir ungan
myndlistarmann, Hlyn Helga-
son. Verk hans eru kynnt í
afgreiðslu Alþýðubankans,
Skipagötu 14 á Akureyri.
Hlynur fæddist 1961, stundaði
nám við University of Kansas
School of arkitecture 1981-1982.
Síðan nam hann við Myndlista-
BLÁSARASVEIT TónUstarskól-
ans á Akureyri hefur verið boðin
þátttaka í „Janetsjar-festivalen"
í Hammer í Noregi, sem halda á
20. júní á næsta ári. Á móti þessu
koma fram hljómsveitir frá flest-
um löndum Evrópu, með sex til
sjö þúsund þátttakendum. Mótið
stendur í viku. Að því loknu mun
sveitin halda til vinarbæja Akur-
eyrar á hinum Norðurlöndunum
og halda þar tónleika.
og handíðaskóla íslands, málunar-
deild, 1982-1986. Hlynur er
nýfluttur til Akureyrar og kennir
við Bröttuhlíðarskóla og í kvöld-
skóla Myndlistarskólans á Akur-
eyri. Á listkynningunni eru 5 verk
sem öll eru unnin á þessu ári. Þau
eru unnin í akrýl, málningu og
viðarkol á spónaplötu. Kynningin
hófst 3. nóvember og stendur til
9. janúar.
Blásarasveit Tónlistarskólans á
Akureyri sem skipuð er 45 til 50
nemendum á aldrinum 10 til 18
ára, mun kynna íslenska tónlist í
ferðinni og stuðla að vinarbæjar-
tengslum við vinarbæi Akureyrar.
Frá Hammer í Noregi mun sveit-
in halda í tónleikaferð til Vesterás
í Svíþjóð, Mariehamn á Álandseyj-
um, Turku, Lahti og Helsinki í
Finnlandi, til baka um Svíþjóð og
heim frá Kaupmannahöfn en ferðin
NÝSTOFNUÐ Kammerhljóm-
sveit á Akureyri heldur sína
fyrstu tónleika í Akureyrar-
kirkju næstkomandi sunnudag
mun taka þijár vikur.
Blásarasveit frá Tónlistarskólan-
um á Akureyri tók þátt í „Janet-
sjar-festivalen“ í Hammer sumarið
1981 og vann þar til silfurverðlauna
undir stjóm Roars Kvam. Roar
verður einnig stjómandi í væntan-
legri ferð. Tilgangur ferðarinnar er
sem áður segir að kynna íslenska
tónlist, efla vinarbæjatengsl og ekki
síst að víkka sjóndeildarhring nem-
enda.
kl. 18.00. Einleikari á tónleikun-
um verður pólski flautuleikar-
inn Waclaw Lazarz, en
stjórnandi hljómsveitarinnar er
Roar Kvam.
Hljómsveitin, sem skipuð er
strengjaleikumm og blásurum,
flytur forleik eftir Rossini, konsert
fyrir þverflautu og hljómsveit í
G-dúr eftir Stamitz, tónverk eftir
Mozart og Clementi og Sinfóníu í
D-dúr eftir Johan Christian Bach.
Pólski flautuleikarinn Waclaw
Lazarz hefur hlotið verðlaun og
viðurkenningu fyrir framúrskar-
andi tök á þverflautunni. Hann var
1. flautuleikari um 12 ára skeið í
Útvarps- og sjónvarps- Sinfóníu-
hljómsveitinni í Katowice. Frá
árinu 1974 lék hann í tríói pólska
útvarpsins. Hann hefur m.a. leikið
á tónleikum í Póllandi, Hollandi,
Bretlandi, Rússlandi og Þýska-
landi. Hann starfar í vetur sem
kennari við Tónlistarskónn á
Dalvík.
Roar Kvam hefur starfað sem
tónlistarkennari, hljómsveitar- og
kórstjóri á Akureyri um 15 ára
skeið.
Hin nýstofnaða kammerhljóm-
sveit markar viss þáttaskil í tónlist-
arlífi á Akureyri og Norðurlandi.
Hún á að veita tónleikagestum á
Akureyri tækifæri til að njóta
reglulega fjölbreytts og skemmti-
legs hljómsveitarflutnings, en
fyrirhugað er að hljómsveitin leiki
5 mismunandi efnisskrár á vetrin-
um og fái til liðs við sig viður-
kennda einleikara og einsöngvara.
Hljómsveitinni er ætlað að skapa
tónlistarmönnum búsettum á Ak-
ureyri og nágrenni betri starfsskil-
yrði og að veita þeim hljóðfæra-
nemendum sem lengst eru komnir
tækifæri til þátttöku. Hljómsveit-
inni bætist að þessu sinni liðsstyrk-
ur tónlistamemenda í framhalds-
námi við Tónslistarskólann {
Reykjavík. Alls taka 26 manns
þátt í tónleikunum.
FYamhald á starfi Kammer-
hljómsveitar Akureyrar ræðst af
aðsókn og móttökum tónleikagesta
í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag,—
Blásarasveit Tónlistarskólans:
Boðin þátttaka í „ Janetsjar-
festivalen“ í Noregi í sumar
Smásagna- og ljóða-
samkeppni MENOR
og svæðisútvarpsins
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna
til smásagna- og Ijóðasam-
keppni á Norðurlandi. Það eru
Menningarsamtök Norðlend-
inga, MENOR, sem standa að
þvi og verða að minnsta kosti
fimm smásögur og ljóð lesin
upp í svæðisútvarpinu með við-
tölum við höfunda.
Á aðalfundi Menningarsamtak-
anna á dögunum var samþykkt
tillaga að beina því til Emu Ind-
riðadóttur forstöðumanns svæðis-
útvarpsins að efna til samkeppn-
innar og hún tók því vel.
Bréf hafa verið send til þeirra
rithöfunda og ljóðskálda á Norð-
urlandi, sem eru á skrá MENOR,
en áðrir höfundar era engan veg-
inn útilokaðir frá því að taka þátt
í samkeppninni, heldur ákveðið
hvattir til þess að senda inn sögur
og ljóð.
Sögur og Ijóð, sem send verða
í samkeppnina, eiga að vera áður
óbirt verk. Efnisval er að öllu í
höndum höfunda. Þriggja manna
dómnefnd verður skipuð til þess
að velja vinningssögur og ljóð.
Ekki hefur verið gengið frá því í
hvaða formi viðurkenning fyrir
bestu sögur og ljóð verður. Skila-
frestur á að vera til 20. nóvember
og skal senda verkin undir dul-
nefni til Ríkisútvarpsins á Akur-
eyri, svæðisútvarps, Fjölnisgötu
3a, 600 Akureyri. Nafn og heimil-
isfang höfundar á að fylgja í
lokuðu umslagi, sem merkt er
hlutaðeigandi dulnefni.
(Úr fréttatilkynningu.)
Starfsmenn Slippstöðvarinnar í skemmtisiglingu
STARFSMANNAFÉLAG Slipp-
stöðvarinnar efndi til skemmti-
siglingar fyrir starfsmenn,
maka, börn og ættingja á laug-
ardaginn. Farið var með
Grímseynni, hinu nýja skipi
Kaupskipa hf. og var siglt um
fjörðinn.
Lagt var af stað frá „Sigöldu",
Eimskipsbryggjunni, og siglt út
að Hrísey og til baka. Veitingar
voru bomar fram um borð og stig-
inn dans á neðra þilfari. Nokkur J
kuldi var á laugardaginn en Slipp-
arar létu það ekki á sig fá og
skemmtu sér konunglega að sögn.
Myndin var tekin skömmu áður
en lagt var af stað í ferðina.
Morgunblaðið/Guðmundur
Starfsfólk Slippstöðvarinar og fjölskyldur
í
siglingu
um Eyjarfjörð.
Hjón arfleiddu Sel o g Kristnes ad
öllum eignum sínum:
Höfðingleg gjöf
HINN 2. nóvember 1985 lést
Jónína Ásgerður Jakobsdóttir
og hinn 9. febrúar 1986 eigin-
maður hennar, Grímur Valdi-
marsson. Þau hjón létu eftir sig
arfleiðsluskrá, þar sem Seli,
hjúkrunarheimili aldraðra á
Akureyri, og Kristnesspítala
voru ánafnaðar allar eignir
þeirra hjóna, að hálfu hvorri
stofnun.
Grímur starfaði sem bifreiða-
smiður um árabil á Akureyri.
Meðal eigna búsins var húseignin
Geislagata 12 ásamt verkstæðis-
húsi.
Þessi gjöf er stórhöfðingleg og
kemur sér afar vel fyrir báðar
stofnanimar, en miklar endurbæt-
ur era nú unnar á Kristnesspítala
og sem kunnugt er er nú unnið
að stækkun Sels, vegna brýnnrar
þarfar.
Stofnanirnar vilja með fréttatil-
kynningu þessari kunngjöra
gjöfína og votta minningu þeirra
hjóna virðingu og þakklæti fyrir
hlýhug þann, sem þessi ákvörðun
ber vott um.
(Úr fréttatilkynningu.)