Morgunblaðið - 07.11.1986, Page 10
MÖRGuNbLAÐIÐ, FÖSTUDAGÖr 7.'NÓVÉÍMBÖR' i986
*
Arsþing Landssambands hestamannafélaga:
Tillagan um tvo Lands-
mótsstaði ekki samþykkt
Á LAUGARDAGINN sl. lauk á Egilsstöðum tveggja daga ársþingi
hestamanna sem var hið þrítugasta og sjötta í röðinni. Ýmis mál
voru tekin þar til meðferðar á þinginu og ber þar hæst tillaga sljórn-
arinnar um svokallaðar Landsmótsreglur en samþykkt var að vísa
lið 2.-9. til millinefndarþingar sem skila á áliti á næsta ársþingi sem
væntanlega verður haldið á Selfossi að ári liðnu. Fyrsti liður tillög-
unnar var ekki samþykktur en þar var gert ráð fyrir að þingið
veldi tvo staði þar sem Landsmót framtíðarinnar yrðu haldin.
Þingið var að þessu sinni helgað
ferðamálum og héldu þar erindi
þeir Kristján Guðmundsson, Birgir
Þorgilsson framkvæmdastjóri
ferðamálaráðs og Þóroddur F. Þór-
oddsson frá Náttúruverndarráði.
Ræddu þeir um ferðalög á hestum
og ýmislegt því viðkomandi hver frá
sínu sjónarhomi. Var nokkur um-
ræða í framhaldi af erindum þeirra
og lýstu menn sig fylgjandi sam-
starfi við Náttúruvemdarráð og
fleiri aðila í skipulagningu á hesta-
ferðum framtíðarinnar. Var í
framhaldi af þessari umræðu sam-
þykkt tillaga þess efnis að stjóm
LH hlutist til um að skipaður verði
vinnuhópur til að vinna að þessum
málum. Lagt var til að í honum
yrðu aðilar frá Búnaðarfélagi ís-
lands, Félagi íslenskra ferðaskrif-
stofa, Ferðamálaráði, Ferðaþjón-
ustu bænda, Ferðamálasamtökum
landshluta, Landssambandi hesta-
mannafélaga og Náttúruvemdar-
ráði. Gert er ráð fyrir að vinnuhópur
þessi skili tillögum fyrir næsta árs-
þing LH.
I erindi Kristjáns Guðmundsson-
ar kom fram að í sjóði þeim sem
svokallaður áningar- og beitar-
skattur hefur mnnið í munu nú
vera um fjögur hundmð þúsund
krónur. Var hugmyndin að þessum
fjármunum skyldi varið til upp-
byggingar aðstöðu í áningarstöðum
víðsvegar um landið. Lýsti Kristján
undmn sinni yfír því að ekki væri
búið að nota þessa fjármuni þar sem
gert var ráð fyrir að fmmkvæðið
að framkvæmd kæmi frá hesta-
mannafélögunum sem síðan fengju
veitt úr þessum sjóði.
Vitað var fyrir þingið að Stefán
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Frá ársþinginu á Egilsstöðum.
Pálsson gæfí ekki kost á sér til
endurkjörs sem formaður og var í
hans stað kjörinn Leifur K. Jóhann-
esson, Mosfellssveit, sem áður
gegndi stöðu varaformanns. í stöðu
varaformanns var kjörinn Skúli
Kristjónsson, Svignaskarði og
Kristbjörg Eyvindsdóttir, Reykjavík
sem er ný í aðalstjóm. Aðrir í stjóm
em Guðrún Gunnarsdóttir, Egill
Bjamason, Sauðárkróki, Kári Am-
órsson, Kópavogi og Gunnar B.
Gunnarsson, Amarstöðum. í vara-
stjóm vom kjömir Guðmundur
Jónsson, Reykjum, Sigfús Guð-
mundsson, V-Geldingaholti, Sig-
bjöm Bjömsson, Lundum, Ármann
Gunnarsson, Laugsteini og Sveinn
Jónsson, Hafnarfirði.
Menn vom almennt sammála um
að þingstörfín hafí gengið vel fyrir
sig og taldi einn þingfulltrúa það
deginum ljósara að ekki væri mál-
efnaleg þörf á þinghaldi árlega en
þess má geta að á þinginu sem
haldið var á Akureyri í fyrra kom
fram tillaga þess efnis að þingin
yrðu haldin annað hvert ár en hún
náði ekki fram að ganga.
Söngur og
sölumennska
fara vel saman
Kristín S. Sigtryggsdóttir
sópransöngkona er með fyrstu
sjálfstæðu tónleika sína í Gamla
bíói á morgun, laugardag, og
hefjast þeir kl. 16. Söngskráin
er yfirgripsmikil og á henni eru
lög eftir Pál ísólfsson, Þórarin
Jónsson, Jórunni Viðar,
Brahms, Granados og Sibelius
meðal annarra. Kristín lauk
prófi úr kennaradeild Söngskól-
ans í Reykjavík fyrir rúmu ári
en kennari hennar þar var
Þuríður Pálsdóttir. Kristin hef-
ur farið með hlutverk í Meyjar-
skemmunni í Þjóðleikhúsinu og
í Töfraflautunni i íslenzku óper-
unni og margoft komið fram á
óperusviði þess utan, auk þess
sem hún hefur sungið við ýmis
tækifæri á vegum Söngskólans
og á eigin vegum. Undirleikari
Kristínar á tónleikunum á morg-
un er Catherine Williams
æfingastjóri í íslenzku ópe-
runni.
— Ég söng reyndar fyrst opin-
berlega þegar ég var sex ára en
ég mun hafa verið eitt þeirra bama
sem byija að syngja áður en þau
fara að tala. Ég átti heima í
Keflavík og var látin syngja „Ó
faðir gjör mig lítið ljós“ á jólagleði
í skólanum. Það var alltaf verið
Rætt við
Kristínu S.
Sigtryggsdótt-
ur sópran
að fá mig til að syngja, t.d. var
kaupmaður sem rak verzlun rétt
þar hjá sem ég átti heima og hann
fékk mig til að syngja fyrir krónu
eða sælgæti. Þegar ég var orðin
fjórtán ára stóð til að halda skóla-
skemmtun og þá byrjuðum við að
syngja saman þjóðlög, þrír strákar
og ég. Það var mjög skemmtilegt
og eftir þessa skemmtun vorum
við fengin til að skemmta mjög
víða. Þetta hefur sennilega verið
árið 1967 og einhvem veginn frétti
Savannatríóið, sem þá var með
fasta skemmtiþætti { sjónvarpinu,
af okkur og fékk okkur til að koma
fram í þættinum. Okkur þótti ekki
lítið varið í þetta en svo flosnaði
þessi sönghópur upp skömmu
síðar, einfaldlega af því að strák-
amir vom allir á kafí í poppi. Einn
þeirra var reyndar Magnús Kjart-
ansson. En þetta var gaman meðan
á því stóð.
Kristín S. Sigtryggsdóttir
Hvenær fórstu svo að læra að
syngja?
— Ég hóf söngnám þegar ég
var rétt um tvítugt. Fyrst var ég
hjá Guðrúnu Á. Símonar en þegar
ég fór svo í Söngskólann varð ég
nemandi hjá Þuríði Pálsdóttur. Nú
er ég búin að ráða mig sem kenn-
ara í Söngskólanum í vetur og
kenni þar í undirbúningsdeild. Mér
fínnst yndislegt og mjög gaman
að kenna og ég held raunar að það
sé bæði gott og hollt fyrir söngv-
ara að kenna söng.
Lifírðu á þvi að þjóna sönglist-
inni?
— Nei, það er nú svo langt í
frá. Þeir em mjög fáir sem geta
það. Ég er sjúkraliði og vann í
sjúkrahúsi í mörg ár með náminu
en nú er ég í hálfsdagsstarfi sem
sölumaður hjá Globus þar sem ég
sel sjúkravömr. Þetta er afar
skemmtilegt og lifandi starf, fyrir
utanjjað að það er ágætlega borg-
að. Ég hef þó alltaf saknað þess
að vinna í sjúkrahúsi því að það
var gott starf og gefandi. Það sam-
ræmdist náminu þó illa og launa-
lega gekk það dæmi alls ekki upp.
Enginn getur lifað á því að vera
sjúkraliði eins og dæmin sanna.
Én sölumennskan er ljómandi starf
og í sambandi við það ferðast ég
töluvert um landið. Ekki alls fyrir
löngu var ég á Húsavík og þar er
læknir sem hefur mikinn áhuga á
tónlist. Honum fannst tilvalið að
ég tæki lagið fyrst ég var á ferð-
inni en mér leizt nú ekki meir en
svo á það, fannst það ekki fara
saman að syngja og selja. Samt
féllst ég á þetta og komst að raun
um að þetta tvennt fer einmitt
ágætlega saman.
Hvemig gengur fjölskyldu-
manneskju að samræma þetta allt,
einkalíf, söng og sölumennsku?
— Það hefur gengið prýðilega,
fyrst og fremst af því að ég á
mann sem hefur alltaf stutt mig
með ráðum og dáð. Hann heitir
Hallur A. Baldursson og við eigum
tvær dætur, 16 og 6 ára gamlar.
Hann sá t.d. alveg. um heimilið
þegar ég fór til náms í Lundúnum
í vetur leið. Sigríður Ella Magnús-
dóttir kom mér þar í samband við
frábæran kennara, sem heitir Va-
lerie Heath Davies. Hjá henni sótti
ég tíma flórum til fímm sinnum í
viku. Ég fór líka í nokkra tíma hjá
Eric Vietier í Trinity College. Hann
er mjög þekktur og vinsæll kenn-
ari enda hafði ég bæði gagn og
gaman af því að fá tilsögn hjá
honum. Ég tel þó að það hafí ekki
sízt gert mér gott að vera í Lon-
don þennan tíma og drekka í mig
það sem um er að vera í stórkost-
legu tónlistarlífi í þeirri borg. Ég
var svo heppin að komast í kynni
við Kolbrúnu Hjaltadóttur fyrir til-
stilli Diddú, en Kolbrún er afbragðs
fíðluleikari og hefur verið fastráðin
í óperuhljómsveitinni í Covent
Garden sl. sex ár. Fyrir atbeina
hennar fékk ég að sækja æfíngar
í Covent Garden að vild. Það vill
líka svo til að kennarinn minn,
Valerie Heath Davies, syngur í
English National Opera, og þar
fékk ég líka að sækja æfíngar. Á
báðum stöðum fékk ég líka oft
frímiða á sýningar. Auk þess sótti
ég alla tónleika sem ég gat, þann-
ig að þessi dvöl varð mér að
ómetanlegu gagni.
Efnisskráin á morgun er stór í
sniðum. Þér hefur ekki vaxið í
augum að ráðast í svo mikið verk-
efni í fyrsta sinn sem þú heldur
sjálfstæða tónleika?
— Eiginlega ekki. Ég vissi frá
upphafi að hveiju ég gekk en það
er mjög algengt að á fyrstu tón-
leikum sé efnisskrá Qölbreytt
þannig að gott tækifæri gefíst til
að sýna hvað maður getur.
— Hver eru eftirlætistónskáld-
in?
— Þau eru mörg en nú er ég í
fyrsta sinn að syngja verk eftir
Sibelius og Granados. Bæði þessi
tónskáld eru mér kær, einkum þó
Granados. Hins vegar hefur
Brahms lengi verið það ljóðatón-
skáld sem ég hef haft einna mestar
mætur á, enda henta söngvar hans
röddinni vel.
- Á.R.
.HAPPDRÆTTI
HAUST-
. SJALFSTÆÐISFLOKKSBNS
VERÐMÆTIR VINMNGAR
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
HRINGIÐ í SÍMA 82900
Skrifstofan Háaleitisbraut 1 er opin virka dapa
frá kl. 9-22 og um helgar kl. 10-17.
Sjálfstæðismenn, eflum flokksstarfið,
gerum skil á heimsendum happdrættismiðum
Ný bók eftir
Andrés Indriðason
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Með stjömur í augum
eftir Andrés Indriðason.
„í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Með stjömur í augum er saga um
ungt fólk fyrir ungt fólk. Hún seg-
ir frá Sif sem er sautján ára í fjórða
bekk MR og verður heiftarlega ást-
fangin í skólabróður sínum, Arnari,
sem er ári eldri. Hún er stillt og
skynsöm stelpa en hefur litla
reynslu, hann er fallegur og
lífsglaður strákur — en kannski
ekki allur þar sem hann er séður.
Þetta er saga um tilfinningar,
fyrstu ástina sem getur verið bæði
sætari og sárari en allar aðrar til-
finningar á lífsleiðinni, og lýsir
átökum um það sem máli skiptir."
Bókin er 164 síður, unnin í prent-
smiðjunni Odda hf. Páll Stefánsson
Andrés Indriöason
tók mynd á kápu en Teikn hannaði
kápuna.