Morgunblaðið - 07.11.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
Afmæliskveðja:
Oskar Olason
y firlögregluþj ónn
í dag, 7. nóvember 1986, verður
Óskar Olason, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, 70 ára. Þeim er til
þekkja finnst þetta með ólíkindum
enda maðurinn vel á sig kominn
og unglegur og fullgildur starfs-
maður. Ég tek því undir þá umræðu
sem nú er í gangi að endurskoða
þurfí ákvæði um starfslok opinberra
starfsmanna og ekki verði eingöngu
miðað við aldur heldur einnig tekið
tillit til andlegs og líkamlegs
ástands manna þegar slík tímamót
nálgast. íslenskt þjóðfélag hefur
ekki efni á að leggja til hliðar starfs-
menn með fullt starfsþrek og
ómetanlega starfsreynslu eingöngu
vegna þess að þeir hafi náð vissum
aldri. Þetta er ein af mörgum eft-
iröpunum sem við höfum tekið upp
eftir þjóðum sem búa við mikið at-
vinnuleysi og tugir og hundruð
manna bíða eftir hveiju starfi sem
losnar. Sem betur fer eigum við
ekki við þennan vanda að stríða,
því við þurfum að nýta hveija vinn-
andi hönd sem fús er til starfa.
Því miður verður þessu ekki kom-
ið við með þig, Óskar minn, og því
vildi ég nota þetta tækifæri til að
óska þér til hamingju með daginn
og langa framtíð. Þú átt orðið lang-
an og farsælan starfsferil að baki
eða frá 1. apríl 1943 er þú hófst
störf í lögreglunni í Reykjavík í
miðri síðari heimsstyijöldinni. Það
veit ég að voru erfíð ár en þú og
þínir starfsfélagar leystuð þau störf
vel af hendi. í starfí þínu hefur þú
notið trausts þinna yfírmanna og
verið falin mörg trúnaðar- og
ábyrgðarstörf. Umferðarmálin hafa
þó öðru fremur orðið þinn starfs-
vettvangur allt frá því þú fórst til
rannsóknarlögreglunnar í rann-
sóknir umferðarslysa. Árið 1963 er
.
.
11
sssgssggssgrtE*--'
'Si lLö&. *>***£& steíf
ís*»r2? > *&&•££>&***
LdsV^-
.
■■
rnmmmm
SlllIÍfiÍIÍÍii
þú varðst aðalvarðstjóri við lög-
reglustjóraembættið um líkt lejrti
og við Guðmundur Hermannsson
hófust okkar nánu kynni og sam-
starf sem nú hefur staðið í aldar-
Qórðung. Árið 1966 þegar þú ert
skipaður yfírlögregluþjónn umferð-
armála verður mikil breyting á
skipulagi umferðarlöggæslunnar og
annasamur tími fór í hönd við undir-
búning og síðan breytinguna í
hægri umferð 1968. Þar fékkst þú
þína eldskím ásamt mörgum öðrum
en ég held að 26. maí 1968 þegar
hægri umferð tók gildi verði sá
dagur sem markað hefur dýpst spor
í íslensk umferðarmál. Á starfsferli
þínum hefur þú með þrotlausu starfí
þínu að umferðaröryggismálum
unnið ómetanlegt starf og öðlast
mikla reynslu og fengið mikla yfir-
sýn yfír þessi mál, og reynst
ráðhollur og átt þátt í að bæta úr
ýmsu er miður hefur farið. Það
verður því skarð fyrir skildi er þú
nú lætur af starfi. Á starfsferli
þínum hefur þú með kennslu í Lög-
regluskólanum, á námskeiðum fyrir
bifreiðastjóra og á ýmsan annan
hátt unnið að bættri umferðar-
fræðslu og með' setu í umferðar-
nefnd og Umferðarráði komið ýmsu
góðu til leiðar með þekkingu þinni
og reynslu í þessum málum. Við
sem starfað höfum með þér í lög-
reglunni í Reylqavík viljum á
þessum degi þakka þér langt og
ánægjulegt samstarf og færa þér
og þínum hugheilar hamingjuóskir.
Heill þér sjötugum.
Bjarki Eiíasson
Óskar og kona hans, Ásta Ein-
arsdóttir, ætla að taka á móti
gestum sínum í dag í Iðnaðar-
mannahúsinu við Hallveigarstíg
milli kl. 17 og 19.
Magnús Óskarsson
Alíslensk
fyndni
Úr úrklippusafni
borgarlögmanns
BÓKAKLÚBBUR Arnar og Ör-
lygs hefur gefið út bókina Alís-
lensk fyndni — hollur hlátur
lengir lífið — sem Magnús
Óskarsson borgarlögmaður hef-
ur safnað efni i og sett saman.
Bókin verður einnig sett á al-
mennan markað.
Á bókarkápu segir m.a.: „Það
gerist ekki á hveijum degi að hátt-
settur embættismaður varpar af sér
alvöruskikkjunni og dregur fram
sannar og ótrúlega skemmtilegar
myndir úr hversdagslífinu í kring-
um okkur, í þeim tilgangi einum
að skemmta fólki. Magnús Óskars-
son, borgarlögmaður, hefur árum
saman safnað drepfyndnum setn-
ingum, fyrirsögnum og greinabrot-
um úr íslenskum dagblöðum.
Yfirleitt er þessi fyndni óviljaverk,
sem fáir veita athygli, allra síst
höfúndamir sjálfir, en verður alveg
óborganleg, þegar hún er dregin
fram í dagsljósið. Úr þessu safni
Magnúsar hefur hann valið hátt á
annað hundrað úrklippur, sem hér
birtast í upprunalegri mynd. Þá
segir Magnús sannar, íslenskar
gamansögur, sem flestar hafa
hvorki birst né heyrst áður og inn
á milli eru limrur, smáskrítlur og
„spakmæli", allt saman dýrlegur,
alíslenskur húmor.
Alíslensk fyndni er sett og prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar
en bundin hjá Amarfelli hf. Brian
Pilkington teiknaði kápumynd.