Morgunblaðið - 07.11.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
17
Sigur - og svo hvað?
eftir Kristján Jónsson
Við jafnaðarmenn erum sigur-
vissir þessa dagana. Allt bendir til
stórsigurs Alþýðuflokksins í næstu
þingkosningum. 1978 náðist stór-
kostlegur árangur í kosningunum
en rúmu ári síðar var búið að glutra
sigrinum niður.
Sporin hræða.
Hvemig getum við lært af reynsl-
unni og undirbúið okkur betur.
Lítum fyrst á líklegt stjómarmynst-
ur. Samstjóm verkalýðsflokkanna
tveggja, Alþýðuflokksins og Al-
þýðubandalagsins, með Sjálfstæðis-
flokknum er líklegasti og að mörgu
leyti heppilegasti kosturinn. Við
verðum að ákveða sem fyrst hvaða
atriði við eigum að leggja þyngsta
áherslu á í samningum um stjómar-
samstarf.
1. Innleiðum staðgreiðsiukerfi
Flórualmanak
Snerruútgáfan sf. hefur gefið
út tólf siðna litprentað flórualm-
anak með villtum, íslenskum
jurtum. Ljósmyndað hefur
Snorri Snorrason. Snerruút-
gáfan gefur jafnfamt út tvö
litprentuð landslagsalmanaök.
skatta og útsvara. Stór hluti
íslendinga, einkum sjómenn og
fiskvinnslufólk, býr við sveiflu-
kenndar tekjur sem valda
sífelldu öryggisleysi um afkom-
una. Ovissan um síldarsamning-
ana fram á síðustu daga hefur
undirstrikað hversu biýnt er að
kippa þessum málum í liðinn
strax.
2. Tekjuskattinn á mslahaugana.
Tökum upp virðisaukaskatt og
skattleggjum fyrst og fremst
eyðsluna en ekki dugnaðinn.
Best væri að hafa virðisauka-
skatt undanþágulausan og
bæta launafólki aukin útgjöld
með auknum almannabótum.
3. Herðum viðurlög við skattsvik-
um. Sagt er að erfitt sé að fá
endurskoðendur til að vinna að
þessum málum vegna sultar-
kjara opinberra starfsmanna.
Launakjör allra ríkisstarfs-
manna verða vist ekki bætt í
einni svipan en réttlætistilfínn-
ing okkar heimtar að ráðist verði
gegn skattsvikum nú þegar!
Hættum að beija höfðinu við
stein og greiðum skattasérfræð-
ingum það sem til þarf. Hann
skilar okkur margfaldri þeirri
upphæð aftur með starfi sínu.
4. Risavaxið verkefni bíður okkar
og þolir ekki lengri bið; end-
umýjun fiskiskipaflotans. Eihn-
ig þarf að leiðrétta hlutaskipta-
reglur sjómanna og afnema
ákvæðin frá 1983 um 19% afla-
verðmætis fram hjá skiptum.
Kjör sjómanna verða að vera
svo góð að hæfustu mennimir
gefi kost á sér.
5. Endurbætur á húsnæðislána-
kerfinu og kaupleigukerfi
(Búsetaíbúðir) eins og tíðkast í
siðmenntuðum löndum!
Vegna atvinnuhátta okkar er
nauðsynlegt að auðvelt sé fyrir fólk
að flytja búferlum með stuttum
fyrirvara og sem minnstu um-
Kristján Jónsson
„Einn helsti dragbítur
á framfarir í atvinnu-
málum okkar er sú
f irra að skammta hluta
þjóðarinnar smánar-
laun úr hnefa.“
stangi. Kaupleigukerfið myndi gera
fólki þetta kleift þar sem fjármála-
umsvifm í tengslum við íbúðaskipti
yrðu sáralítil í hvert sinn.
Láglaunastef nan
Einn helsti dragbítur á framfarir
í atvinnumálum okkar er sú firra
að skammta hluta þjóðarinnar
smánarlaun úr hnefa.
Að undanfömu hafa sumir for-
ystumanna launþega velt fyrir sér
möguleikanum á að framlengja
síðustu kjarasamninga óbreytta um
næstu áramót.
Þessir forkólfar eru á villigötum.
Launþogar á lægstu töxtum hafa
sýnt biðlund nógu lengi — Alþýðu-
sambandsfoiystan verður að sýna
hugrekki og afnema lægstu taxtana
í næstu samningum! Við sem höfum
hærri grunnlaun en 30—35 þúsund
krónur á mánuði verðum ef til vill
að sætta okkur við litlar hækkanir
í bili en það er fyllilega þess virði.
Við mejgum aldrei sætta okkur
við að á Islandi verði til stétt um-
komulauss tötralýðs eins og í
milljónaþjóðfélögum erlendis.
Ríkisvaldið —
þjónn, en ekki herra
Jafnaðarmenn hafa um langa
hríð notað ríkisvaldið til að bæta
kjör lítilmagnans í þjóðfélaginu.
Reynslan á hinum Norðurlöndunum
sýnir að þessi stefna á sér takmörk
og við þurfum að spoma við of-
vexti ríkisvaldsins og forsjárfyllirís
áður en í óefni er komið.
Aukin umsvif ríkisins þurfa ekki
að vera sönnun þess að hagur laun-
þega sé betur tryggður en áður.
Okkur dugar að virða fyrir okkur
paradísarríki kommúnismans til að
sannfærast um þetta.
Fleiri lög og reglugerðir þurfa
heldur ekki að vera merki um aukna
velferð, reglugerðarskógurinn er
allt of oft venjulegu launafólki til
ama og óþæginda. Þennan skóg
þarf að grisja.
Hlutverk jafnaðarmanna í næstu
ríkisstjóm verður tvíþætt. í fyrsta
lagi að gæta hagsmuna launþega
gagnvart ábyrgðarlausum oflát-
ungum til hægri og vinstri, hvort
sem þeir vappa um á ruslahaugum
sögunnar og tína sér þar steina i
sarpinn eða sitja á valdastólum. í
öðru lagi að koma efnahag þjóðar-
innar á tryggan gmndvöll.
Höfundur er kennari íÞorláks■
höfn.
Sjón (Sigurjón B. Sigurðsson)
Ljóðasafn
eftir Sjón
ÚT er komin hjá Máli og menn-
ingu ljóðabókin Drengurinn með
röntgenaugun eftir Sjón (Siguijón
B. Sigurðsson).
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Sjón hefur gefíð bækur sínar út
sjálfur og þær eru ófáanlegar. I
Drengurinn með röntgenaugun hef-
ur hann safnað saman úrvali ljóða
úr elstu bókum sínum, en frá og
með Reiðhjóli blinda mannsins
(1982) eru bækumar birtar heilar,
auk ljóða úr blöðum og tímaritum.
Ekki er algengt að skáld gefi út
heildarsöfn af þessu tagi svona
ung, (Sjón er fæddur 1962), en
bæði er að Sjón er athyglisverður
fulltrúi nýrrar íslenskrar ljóðlistar
og Ijóðabækur hans ekki aðgengi-
legar almenningi fyrr en með þessu
safni. Listaverk eftir kanadíska
súrrealistann Jean Benoit skreytir
bók og kápu, en myndina af Sjón
inni i bókinni tók Robert Guille-
mette. Teikn hannaði kápuna."
Bókin er 127 bls., unnin í prent-
smiðjunni Odda hf.
Caupsfaðarkolckurínn:
London lamb
með sykurbrúnuðum kartöflum
rjómasveppasósu, rauðkáli
og grænmeti
1/i skammtur (
aðeins.......kr. & i50ill>
Kjúklingavængir .... kr.
Fr. kartöflur 1/i sk. ... kr.
15.-
40.-
Kokkteilsósa
Hrásalat ...
kr.29>-
kr. 29.-
Salatbarínn í sérflokki.
Þú velur úr völdu grænmeti,
semertilbúiðáborðið.
Heitar, Ijúffengar stórsteikur,
föstudag og laugardag.
Ávextir og grænmeti í úrvali.
I Kynningarhomið:
Z Snakk og laukídýfa frá MS.
Konsúm súkkulaði frá Síríusi og Nóa.
Frosið grænmeti frá Sól hf.
Pizzurfrá El Sombrero.
Kaupstaðarsprengjan:
London lamb
kr.kg. 398.“
Nautapottsteik
UN1, tilbúin til steikingar
kr.kg.348«"
Dilkasvið aq
áaðáns kr.kg.
Úrvals
nautahakk UN.1
298.- kr.kg.
á
8
Opið
virka daga kl. 9:00-18:30
föstudaga kl. 9:00-20:00
laugardaga kl. 10:00-16:00
Sími: 73900