Morgunblaðið - 07.11.1986, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1986
f
ffl Electrolux H Electrolux a Electrolux
Ryksugur
í úrvali
át
lánað til allt að
11 mánaða með
ÍEURQ
KRI=DIT samningi
Til
handhafa
E
1UHOCAWD
Mikill sogkraftur
Frábær ending
m
Electrolux
©
Vörumarkaðurinn hf.
Eiöistorgi 11 - simi 622200
Minning:
OlafurF. Gunnlaugs-
son afgreiðslustjóri
Fæddur 23.júní 1921
Dáinn 31. október 1986
Síðla kvölds hringir síminn. I
símanum er Guðlaug dóttir Ólafs
og tilkynnir að faðir sinn sé dáinn.
Eftir það sem á undan var gengið
kom fregnin ekki á óvart. Spurning-
in var hvenær lyki margra mánaða
stríði við þann sjúkdóm sem
læknavísindin hafa ekki enn unnið
bug á. Eftir situr söknuður og tregi
og þó ekki síst þakklæti fyrir að
hafa átt vináttu Ólafs. Ólafur lést
á Landakotsspítala aðfaranótt 31.
október síðastliðinn og verður lagð-
ur til hinstu hvíldar í dag frá
Neskirkju.
Ólafur Gunnlaugsson fæddist í
Ólafsvík á Snæfellsnesi þann 23.
júní 1921 og var því 65 ára er hann
lést. Ég mun ekki rekja ættir Ólafs
hér, en að loknu námi við Verslun-
arskólann réðst hann til starfa hjá
Landsbanka Islands og starfaði
óslitið í 42 ár. Á svo löngum starfs-
ferli verða samstarfsmennimir
margir, félagar sem unnu að sama
markmiði, það er að vinna stofnun
sinni vel, og ekki síst að berjast
fyrir framgangi og vexti síns starfs-
mannafélags sem að vissu leyti
hefur mótast og dafnað í takt við
þær breytingar sem stofnun sem
Landsbanki Islands hefur gengið í
gegnum tíðina.
Okkar kynni voru ekki löng og
finnst mér það miður, því þeir sem
þekktu Ólaf vel og störfuðu með
honum Iýsa honum sem skilnings-
ríkum og traustum félaga, félaga
sem þeir gátu leitað til ef eitthvað
maður komi í manns stað hlýtur
að myndast skarð og félag okkar
verður fátækara þegar félagi fellur
frá, sem var fram á síðustu stund
með hugann hjá vinnufélögum
sínum.
Ólafur starfaði mikð að félags-
málum innan sjns starfsmannafé-
lags. Hann var í stjóm FSLÍ til
margra ára og sat í nefndum á
vegum félagsins. Hann var formað-
ur starfsárið 1974—75. Hans störf
verða seint fullþökkuð, störf sem
hann vann að með elju og dugnaði.
Félagar í FSLÍ drúpa höfði í þögn
og þakka af alhug að hafa átt tæki-
færi til að eiga samleið með Ólafi
í gegnum tíðina.
Stjóm FSLÍ vottar eiginkonu
Ólafs, Sigríði Einarsdóttur, bömum
og ættingjum, hugleilar samúðar-
kveðjur á þungbærri stund.
Gunnar H. Helgason
Á aldraða leggst sú kvöð að „sá
með ljáinn" boðar nálægð sína með
þeim hætti að vini og samferða-
menn fellir hann, marga um aldur
fram.
Svo fór hinn 31. október síðast-
liðinn er Ólafur Gunnlaugsson lést
í Landakotsspítala eftir langa og
erfiða glímu við þann er alla sigrar
að lokum.
Ólafur fæddist í Ólafsvík á Jóns-
messu 1921. Bernsku- og unglings-
ár hans em því tengd hinum hörðu
kreppuárum. Varla hafa verið
birgðir í búi en það var barist hörð-
um höndum þar sem á öðrum
alþýðuheimilum. Unglingar sem
aðrir urðu að nota krafta sína til
hins ítrasta. Enda fór Ólafur að
stunda sjó og var ekki fráhverfur
því að gerast sjómaður.
En svo fór að eitthvert afl dró
hann til náms, fyrst í Reykholts-
skóla og síðar í Verslunarskóla
íslands. Að námi loknu gerðist hann
starfamaður Landsbanka ísiands,
og þar varð lífsstarf hans til ævi-
loka.
Annars var það ekki ætlunin að
rekja æviferil Ólafs. Heldur hitt að
riQa upp kynni okkar í þau nær-
fellt 40 ár sem við Nana nutum
samvista við þau hjón, Óla og
Siggu. Það var skuggalaus samfelld
vinátta, þó milli okkar væri nær
20 ára aldursmunur, og sífellt nöld-
ur og nagg okkar gömlu hjónanna.
Allt slíkt létu þau Öli og Sigga sem
vind um eyru þjóta.
Þrátt fyrir glaðlegt viðmót var
Ólafur alvörumaður. Margar sam-
verustundirnar stóðum við í ströngu
Vatasþéttír, loðfóðraðír
KULDASKÓR
Nr. 28-36 kr. 1495,- Nr. 35-41 kr. 1995,- Nr. 40-46 kr. 2495,-
TORGIÐ, DOMUS, MIKLIGARÐUR,
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA,
SAMKAUP KEFLAVÍK,
OG M.H.LYNGDAL AKUREYRI
AUKhf. 3.157/SlA