Morgunblaðið - 15.11.1986, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
Verslunarskóli íslands:
5. bekkur V rekinn heim
vegna lélegrar mætingar
ÞEGAR kennsla átti að hefjast í
gærmorgun hjá 5. bekk V í Versl-
unarskóla Islands, kom í ljós að
aðeins sjö nemendur af 25 voru
mættir. Skólastjórinn, Þorvarður
Elíasson, brá þá á það ráð að fella
kennslu niður hjá bekknum um
ótiltekinn tíma.
„Ég sagði þeim að kennsla yrði
felld niður hjá þeim fyrst um sinn,
en ég yrði til viðtals á mánudaginn
ef þau hefðu áhuga á áframhaldandi
kennslu í skólanum." Þorvarður
sagði að kennsla hjá þessum nem-
endum hafi ekki verið felld niður
áður vegna slæmrar mætingar.
Máni Svavarsson var eini strákur-
inn í V-inu, sem mætti í skólann í
gærmorgun. „Þetta var eins og
vatnsgusa í andlitið. Mér dauðbrá
auðvitað þegar mér og hinum sem
þarna sátu var allt í einu vikið úr
námi um óákveðinn tíma. Við höfð-
um ekkert gert af okkur, búin að
borga skólagjöldin, allt í góðu lagi
og við höfum ekki staðið okkur iila,“
sagði Máni. Hann sagði að haldinn
hefði verið nemendadansleikur
kvöldið áður sem væntanlega hefði
að einhveiju leyti haft áhrif á mæt-
ingu, en þó hefði verið gefið fri í tvo
fyrstu tímana. „Rétt er að mæting
hefur verið slæm í bekknum, en það
eru alltaf sömu manneskjurnar sem
mæta illa og nú erum við hin látin
gjalda þess“.
Máni sagði að bekkurinn ætlaði
að hittast í dag með umsjónarkenn-
ara sínum og ráða ráðum sínum.
Ríkisstjórnin:
Morgunblaðið/J.T.
Tunnuskortur hefur verið hjá síldarsaltendum á Eskifirði undanfama daga, söltun því legið niðri,
en unnið m.a. við að pækla.
Sjötíu þúsund tunnur til landsins
SÍLDARSÖLTUN hefur gengið vel að undan-
fömu, en skortur á tunnum hefur sett strik í
reikninginn, og er tunnuskortur nú orðinn nær
alger á landinu öllu. Um 70 þúsund tunnur koma
til landsins í dag og er búist við að söltun geti
hafist að nýju um helgina. Mikið af síldinni hef-
ur farið til Vestmannaeyja og á hafnir á Reykja-
nesi, þar sem bæði hefur verið til meira af tunnum
og afkastageta í frystingu meiri. Talsvert hefur
verið saltað á Austfjörðum, og lætur nærri að
saltað hafí verið í fjórðu hveija tunnu á landinu
á Eskifírði.
Arnarflug hf. fær 2,5 mill-
jón dollara ríkisábyrgð
Bankaeftirlitið kannaði viðskipti Lands-
banka og Búnaðarhanka fyrr á árinu:
Engar athugasemd-
ir voru gerðar
FYRR á árinu framkvæmdi bankaeftirlit Seðlabankans athugun á við-
skiptum Landsbanka og Búnaðarbanka við stærstu skuldunauta þeirra,
og að sögn þeirra Jónasar Haralz bankastjóra Landsbankans og Jóns
Adolfs Guðjónssonar bankastjóra Búnaðarbankans voru engar athuga-
semdir gerðar við þau viðskipti.
Þórður Ólafsson forstöðumaður
bankaeftirlitsins sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að það
væri náttúrlega í verkahring banka-
! eftirlitsins að skoða stærstu lánþega
bankanna og fylgjast með yfirliti
yfir stöðu bankanna. Hann vildi ekki
tjá sig um niðurstöðu þessarar at-
hugunar að öðru leyti.
Jón Adolf Guðjónsson sagðist vera
ánægður með það hvemig Búnaðar-
bankinn kom út úr þessari könnun,
og hann hefði engar athugasemdir
fengið, vegna skulda stærstu skuld-
aranna. „Við fengum ágætis útkomu
í þessari athugun," sagði Jón Adolf,
og benti jafnframt á, að hér hefði
verið um reglulega skoðun eftirlits-
ins að ræða, sem framkvæmdi hana
alltaf á nokkurra ára fresti.
Sömu sögu hafði Jónas Haralz að
segja, því hann sagði að ekki hefði
komið fram nokkrar athugasemdir
frá bankaeftirlitinu, vegna viðskipta
bankans við stærstu skuldunauta
sína. „Að því er ég best veit, þá
hafa engar athugasemdir komið
fram af hálfu bankaeftirlitsins,"
sagði Jónas.
að bíða eftir svona afgreiðslu," legan drátt að ræða á afgreiðslu ábyrgðina afgreidda eigi síðar en
sagði Hörður, er hann var spurður ríkisábyrgðarinnar. Hann kvaðst um næstu mánaðamót.
hvort honum fyndist vera um óeðli- reikna með að Amarflug fengi ríkis-
Hraðfrystihús Keflavíkur hf.:
100 manns sagt upp
störfum í desember
Jón Sigurðsson
fram í 1. sætið
JÓN Sigurðsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar ákvað í gær að
bjóða sig fram i prófkjöri Al-
þýðuflokksins i Reykjavik, og
býður hann sig fram i fyrsta
sæti listans.
„Ég hef sent kjörstjóminni í próf-
kjörinu bréf, þar sem ég segi frá
því að ég hafi ákveðið að gefa kost
á mér til þess að vera í fyrsta sæti
á listanum," sagði Jón í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði
að með bréfi þessu hefði hann sent
lista 50 alþýðuflokksmanna í
Reykjavík, sem væru meðmælendur
þessa framboðs, eins og tilskilið
væri.
RÍKISSTJÓRNIN gekk í fyrra-
dag á fundi sinum frá þvi að
Amarflug fengi 2,5 milljón doll-
ara ríkisábyrgð, samkvæmt
heimild Alþingis. Það verður
Útvegsbankinn sem hefur milli-
göngu um útvegun láns erlendis
frá til handa Amarflugi.
Amarflug hefur að undanfömu
safnað nýju hlutafé, sem var skil-
yrði þess að ríkisábyrgð þessi yrði
veitt. Hörður Einarsson stjómar-
formaður Amarflugs sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins að
nú væri nokkuð brýnt að fyrirtækið
fengi ríkisábyrgðina, þar sem bið
væri talsvert kostnaðarsöm fyrir
fyrirtækið. „Ég tel nú að afgreiðsla
þessa máls verði með eðlilegum og
hefðbundnum hætti, en vissulega
er talsverður kostnaður þvi samfara
UM 100 manns hefur verið sagt
upp störfum í Hraðfrystihúsi
Keflavíkur hf. Uppsagnimar taka
gUdi 1. desember nk. Fiskvinnslu-
fólkið var aUt fastráðið með
fjögurra vikna uppsagnarfresti.
Því var sagt upp störfum þann
3. nóvember sl., en verður endur-
ráðið i byrjun janúar.
Helgi Jónatansson, framkvæmda-
stjóri fiystihússins, sagði í samtali
við Morgunblaðið að um væri að
ræða 70 heilsdagsstörf og legðist
öll starfsemi fiystihússins af í des-
ember utan skrifstofureksturs, auk
þess sem nokkrir starfsmenn yrðu
starfandi til að undirbúa vinnslu á
ný í janúar. „Þetta stopp hjá okkur
má heita árviss viðburður. Við erum
með bæði skipin okkar, Aðalvík og
Bergvík, á sóknarmarki og eiga þau
eftir að stoppa í 20 daga þannig að
útséð er með að þau verða frá veið-
um mest allan desember. Bergvík
er jafnframt að fara í slipp og þar
af leiðandi höfum við ekki físk til
að vinna.“
Helgi sagði að fólki hefði einnig
verið sagt upp störfum í desember
í fyrra. Þá voru skip frystihússins
reyndar á aflamarki, en allur kvóti
þá búinn. „Við stefnum á að byija
aftur í janúar og geri ég ráð fyrir
að allt starfsfólkið verði þá endur-
ráðið. Mitt mat er að sársaukaminnst
sé að stöðva reksturinn í desember
þar sem stærstur hluti vinnuaflsins
eru húsmæður og gefur stoppið þeim
þá tækifæri á að sinna sínum heimil-
um betur nú fyrir jólin heldur en
þær annars hefðu getað," sagði
Helgi.
Torvelda gamlir samningar við
Dani framsal skemmdarvarganna?
fslendingar hafa enn ekki óskað framsals frá Bandaríkjunum
Frá Jóni Ásg-eiri Sigurðssyni, fréttaritara
HUGSANLEGT er að gamlir
samningar milli Bandaríkjanna
og Danmerkur torveldi framsal
á þeim Bandarikjamönnum sem
kunna að vera eftirlýstir vegna
skemmdarverka í Hvalfirði og
Reykjavík síðastliðinn sunnu-
dag. Samningar sem Banda-
ríkin hafa á síðari árum gert
um framsal afbrotamanna,
miða einfaldlega við að af-
brotið geti haft árs fangelsi eða
meira í för með sér.
Framsalssamningur Danmerk-
Morgunblaðains i BandaríVjunum
ur og Bandaríkjanna var undirrit-
aður árið 1902 og viðbótarsamn-
ingur sem tekur til íslands var
undirritaður 1905. Þar eru til-
greind þau afbrot sem geta verið
ástæður þess að óska eftir fram-
sali.
Embættismönnum í bandaríska
dómsmálaráðuneytinu þykir óljóst
hvaða ákvæði gætu átt við um
skemmdarverkin frá síðustu helgi.
Bentu þeir á að þessi gamli fram-
salssamningur geti orðið til
trafala, þar eð framsalsbeiðni
verður að byggja á ákvæðum
hans.
í framsalssamningnum geta
skemmdir á húseignum verið
ástæða fyrir framsali, ef sýnt
þykir að verknaðurinn hafi stofn-
að mannslífum í hættu. Þá getur
innbrot verið ástæða fyrir fram-
sali. Loks getur sá sem í heimild-
arleysi sökkvir skipi á rúmsjó eða
skemmir það, eða gerir tilraun til
þess, átt á hættu að verða fram-
seldur. Á hinn bóginn er ákvæði
í samningnum frá 1902 um það
að hvorugum aðila sé skylt að
framselja eigin þegna. Bandaríkin
hafa þó yfírleitt ekki skirrst við
að framselja Bandaríkjamenn.
ísland hefur enn ekki óskað
eftir framsali Rodney Coronado,
sem sagður er hafa átt aðild að
áðumefndum skemmdarverkum,
en ef það væri gert, þarf að finna
hann, handtaka og draga fyrir
dómara sem úrskurðar hvort
framsal skuli fara fram.