Morgunblaðið - 15.11.1986, Page 7
MORGUNBLABIÐ, LAUGARDAGtTR Í5. NÓVÉMRÉR’ lð8G
ÍTJ
Ný skáldsaga eftir
Thor Vilhjálmsson
SVART Á HVÍTU hf. hefur gefíð
út nýja skáldsögn eftir Thor Vil-
hjálmsson er heitir Grámosinn
gióir.
í fréttatilkynning frá útgefanda
segir „Grámosinn glóir eftir Thor
Vilhjálmsson gerist á Islandi um
síðustu aldamót. Hún byggir á raun-
verulegum sakamálum og hefur
höfundur m.a. notfært sér málskjöl
og aðrar heimildir auk þess sem
hann skírskotar víða til sígildrar
íslenskrar frásagnarlistar. En þar
sem um skáldsögu er að ræða hefur
Thor sviðsett atburði og yfirheyrslur
eftir lögmálum skáldsögunnar en
sem varpar nokkru Ijósi á það saka-
mál sem bíður sýslumanns.
Með skáldsögunni Grámosinn gló-
ir kemur Thor Vilhjálmsson mörgum
eflaust skemmtiiega á óvart. Sem
fyrr sagði sækir hann efnivið sinn
nú til sakamála á 19. öld og nýtir
sér að nokkru tækni spennusagna.
Að auki er sagan epískari en flestar
sögur hans aðrar á seinni árum, á
sér dýpri rætur í íslenskri sagnahefð
en þær og snýst meira um sérleika
íslenskrar vitundar og veru.“
Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni
Eddu og Pétur Halldórsson gerði
kápumynd.
Steinunn Sigurðardóttir.
Tímaþjófurinn eftir
Steinunni Sigurðardóttur
ÚT ER KOMIN hjá Iðunni ný
bók eftir Steinunni Sigurðard-
óttur. Steinunn er löngu kunn
fyrir smásögur sínar, yóð og
sjónvarpsleikrit, en hér er á
ferðinni fyrsta skáldsaga henn-
ar, Tímaþjófurinn, sem er
tvímælalaust viðamesta verk
hennar til þessa, segir í frétt
frá Bókaútgáfunni Iðunni.
A baksíðu bókarinnar segir:
„Alda er glæsileg nútímakona,
tungumálakennari við Menntaskól-
ann í Reykjavík. Hún er af góðum
ættum og býr einhleyp við ágætan
efnahag á heimili sem hún hefur
erft eftir foreldra sína. Líf hennar
virðist í traustum skorðum, þar til
ástir takast með henni og einum
samkennara hennar. Samband
þeirra gerbreytir lífí hennar og
verður að lokum sá tímaþjófur sem
ekkert fær við ráðið.
Til að lýsa þessu ástarsambandi
beitir höfundurinn tungumáli og
stíl á markvissan og sérstæðan
hátt. Lesandinn er dreginn inn í
hugarheim aðalpersónunnar og
ljósi varpað á einsemd hennar og
vanmátt gagnvart ástríðum sínum.
Pínleg kaldhæðni höfundar setur
ríkan svip á alla frásögn, og er
hér samofín ljóðrænni tjáningu á
djarfan og áhrifamikinn hátt.“
Thor Vilhjálmsson.
ekki sagnfræðinnar — þetta er þann-
ig ekki heimildarsaga eins og slíkar
sögur hafa tíðkast. í þeim skilningi
eru allar persónur bókarinnar tilbún-
ingur höfundar, jafnt þær sem eiga
sér einhveijar fyrirmyndir sem hinar
sem fæðst hafa í hugskoti höfundar.
Þetta er sakamálasaga og ástar-
saga. Ungt höfðingsefni hefur dvalið
í Kaupmannahöfn við laganám og
glasaglaum, skáldskap og andans
mennt — og ástir. Þegar hann kem-
ur heim til Islands á ný verður hans
fyrsta verkefni að leysa af föður sinn
sem sýslumaður og dómari norður í
landi. Og hann hefur feril sinn með
því að kljást við mál sem á eftir að
setja óafmáanleg spor á allan hans
æviferil: kvisast hefur um óhæfileg-
an samdrátt hálfsystkina á prestsetri
sýslunnar og jafnvel enn skugga-
legri glæpi í kjölfarið. Hinn nýbakaði
valdsmaður ákveður að bregðast
hart við og kveða niður ósómann
með myndugum hætti... Samhliða
þessum söguþræði er rakið óhugn-
anlegt mál Jóns nokkurs morðingja
Guðmundur Eiriksson þjóðréttar-
fræðingur
Guðmundur
Eiríksson
í þjóðréttar-
nefnd Sþ.
GUÐMUNDUR Eiríkisson þjóð-
réttarfræðingur var í gær kjörinn
til 5 ára í þjóðréttamefnd Samein-
uðu þjóðanna. Hann var fulltrúi
Norðuriandanna við kjör í nefnd-
ina.
Guðmundur hlaut við kosninguna
atkvæði Vestur-Evrópuþjóða,
Bandaríkjanna, Kanada og Nýja-
Sjálands. Alls voru 12 manns í kjöri
og voru 8 kjömir. Guðmundur er
einn 6 fulltrúa Vestur-Evrópu í
nefndinni. Hann hefur verið þjóðrétt-
arfræðingur utanríkisráðuneytisins
frá 1980.
.Hin
eina
sanna
IBMPC
ein sem stendur alltaf
fyrir sínu.
Góðir íslendingar:
Við viljum vekja athygli ykkar á hinni einu sönnu einkatölvu.
Það merkilega er að hún kostar lítið meira en misjafnlega
góðar eftirlíkingar og er jafnvel ódýrari ef tillit er
tekið til alls þess sem fylgir í kaupunum.
Tímabundið tilboð til skóla - kennara - nemenda.
Dæmi:
IBM PC hentar vel tyrir rityinnslu
með: 256K, 1x360Kb,'diskettudnfi,
mono skjá, Dos 3.2 stýrikerfi. lykia-
borði, prentaratengi. basic hand-
bók, Dos handbók, Guide to
operation handbók. grunnnám-
skeiði. stýrikerfisnámskeiði, sam-
tals 2 dagar í tölvuskóla Gísla J.
Johnsen sf.
Allt þetta aðeins kr.
49.900.-
IBM PC
með 20Mb seguldiski
hentar vel fyrir
bókhald fyrirtækja
Aðeins kr.
79.900.-
VII,IIÐ
TRAUSTAN
SAMSTARFSAÐILA
m\
GÍSLI J. JOHNSEN
Nýbýlavegi 16. Sími 641222.
Glerárgötu 20 Akureyri. Sími 96-25004