Morgunblaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
19
Háskólinn VI:
Um helmingnr lögfræðinga vinn-
ur störf sem krefjast lagaprófs
eftir Þórð Kristínsson
Árið 1920 var sú samþykkt gerð
í háskólaráði að í kennsluskrám og
annarsstaðar skyldu deildir háskól-
ans taldar í röð eftir aldri og þá
miðað við aldur skólanna sem voru
fyrirrennarar þeirra. Þessari reglu
hefur verið fylgt síðan og verður
að nokkru fylgt hér. Guðfræðideild-
in er þannig elst deilda eftir þessari
skilgreiningu, með því að presta-
skólinn var stofnaður 1847, þá
læknadeildin frá upphafí lækna-
skólans 1876, lagadeildin frá 1908
og heimspekideildin sem stofnuð
var með háskólanum 1911.
Þessar fjórar háskóladeildir hafa
allar tekið miklum breytingum frá
því til þeirra var stofnað, lækna-
deildin og heimspekideildin þó sýnu
mesta, en víkjum að þeim síðar.
Guðfræðideildin og lagadeildin eru
það sem kalla má embættismanna-
deildir, í þeim menntast fólk til
ákveðinna starfa, þar hljóta prestar
og lögfræðingar menntun sína og
sumir orðið biskupar, þingmenn og
ráðherrar. Svona innan sviga má
nefna að á tímabilinu frá 1904, er
Hannes Hafstein var skipaður ráð-
herra, og til ársins 1983, hafa alls
102 verið skipaðir ráðherrar og þar
af eru 39 lögfræðingar; í núverandi
ríkisstjóm eru 3 af 10 ráðherrum
lögfræðingar og af 60 þingmönnum
eru 15 lögfræðingar.
í Prestaféiagi Islands eru nú 116
prestar og fjöldi prestsembætta í
landinu nálægt 130. Hins vegar eru
um 260 menntaðir guðfræðingar á
Islandi, þannig að ljóst er að þeir
hafa haslað sér völl í ýmsum öðmm
starfsgreinum; þó er enginn guð-
fræðingur nú á Alþingi.
1. október 1983 vom íslenskir
lögfræðingar samtals 769 og þar
af störfuðu 497 við lögfræðileg
störf sem þó em vísast ekki öll
helguð löglærðum mönnum, en ætla
má að um helmingur lögfræðinga
vinni nú störf sem krefjast laga-
prófs; lagamenntunin nýtist hins
vegar til fleiri starfa en krefjast
lagamenntunar, eins og reyndar er
um flesta menntun. Þess er vert
að geta að lagadeildin er sérstök
að því leyti að hún er eina háskóla-
deildin í veröldinni þar sem unnt
er að nema og ljúka lagaprófí í
íslenskum lögum og fyrir þær sakir
em skyldur hennar miklar og
ábyrgðin vandmeðfarin, bæði gagn-
vart nemendum og þjóðinni.
í gegnum tíðina hefur kennsla
og nám í þessum deildum breyst
nokkuð, námsgreinum fjölgað og
ýmsar skipulagsbreytingar verið
gerðar á náminu sem ekki verða
raktar hér. Báðar hafa deildimar
húsnæði fyrir starfsemi sína á ein-
um stað, þar sem er bæði aðsetur
kennara og kennslu; guðfræðideild-
in á annarri og þriðju hæð aðal-
byggingar háskólans og lagadeildin
í Lögbergi, húsi lagadeildar, sem
tekið var í notkun 1972 — með
þeirri undantekningu þó að vegna
plássleysis hefur fyrsta árs nemum
í lögfræði verið kennt í leigusal útí
bæ, m.a. í samkomuhúsinu Tónabæ,
en nú í gamla Verslunarskólanum
við Grundarstíg. í guðfræðideild eru
skráðir 75 nemendur og fastir kenn-
arar era 8; í lagadeild era 413
nemendur og 9 fastir kennarar.
Hvor deildin um sig hefur orðið
miðstöð rannsókna á sínu sviði og
ráðgefandi um fjölmörg málefni
kirkju og laga í landinu. Reglugerð-
ir um Guðfræðistofnun og Laga-
stofnun hlutu báðar staðfestingu
árið 1975 og era starfsmenn þeirra
kennarar viðkomandi deilda sem
gegna fullu starfí; annað samkenni
þeirra er að þeim hefur báðum mjög
verið sparað féð á fjárlögum sem
skiljanlega hefur staðið þeim fyrir
þrifum. A vegum Guðfræðistofnun-
ar er nú m.a. unnið að könnun á
trúarlífí og trúarlegum viðhorfum
íslendinga, auk þess sem innlendum
heimildum og gögnum um guðfræði
er safnað saman og i undirbúningi
er ritröð Guðfræðistofnunar. Helsta
verkefni Lagastofnunar undanfarið
hefur verið gerð Lagasafns til að
auðvelda aðgang að lögum og
reglugerðum. Texti Lagasafns er
nú kominn í í tölvu Skýrsluvéla
ríkisins og Reykjavíkurborgar og
er unnið að því að fella breytingar
og nýmæli í lögum inn í textann.
Höfundur er prófstjórí við HÁ-
skóla íslands.
Gamalt akkeri kom
í nótina hjá
Björgu Jónsdóttur
Húsavik.
SÍLDVEIÐISKIPIÐ Björg Jónsdóttir ÞH 321 frá Húsavik, sldp-
stjóri Aðalgeir Bjarnason, fékk mjög gamalt akkeri í nótina
þegar kastað var fyrir síld í Reyðarfirði fyrir skömmu.
Skipveijar höfðu ekki áður séð flrði, en skipstjórinn á Björgu
slíkt akkeri og eftir athugun gam- Jónsdóttur hyggst flytja akkerið
alla teikninga álíta þeir að meira til Húsavíkur og prýða garð sinn
en 100 ár séu síðan slík undur með því.
vora notuð. Akkerið er nú á Eski- Fréttaritari
Heimilissjóður tauga-
veiklaðra barna
LRDR
Matthías Jónasson
Samkvæmt fréttatiikynningu,
sem birtist nýlega í Morgunblaðinu,
hefír Bamaverndarfélag Reykjavík-
ur (BR) hætt starfsemi sinni. Meðal
verkefna sem BR vann að er stofn-
un og efling Heimilissjóðs tauga-
veiklaðra barna. Forseti íslands
staðfesti skipulagsskrá sjóðsins 28.
febrúar 1961 og óx sjóðurinn smám
saman bæði af árlegum greiðslum
BR og af gjöfum einstaklinga og
fyrirtækja. Arið 1974 gekkst sjóð-
stjóm fyrir stofnun Kleifarvegs-
heimilisins í samvinnu við
Hvítabandið og Borgarstjórn
Reykjavíkur. Þar hafa taugaveikluð
böm notið sérfræðilegrar meðferð-
ar síðan og njóta enn. En þröng
húsakynni kreppa mjög að starf-
seminni, svo að hún fær engan
veginn annað brýnustu þörf.
Undirritaður vill vekja athygli á
því, að Heimilissjóður taugaveikl-
aðra bama er ennþá til, og markmið
hans er skv. skipulagsskrá „að
hrinda í framkvæmd byggingu
dvalarheimilis handa taugaveikluð-
um bömum sem njóta sérfræðilegr-
ar meðferðar og þarfnast í því
sambandi slíkrar dvalar um skeið".
í Heimilissjóði vora í árslok ’85 3
milljónir og 920 þúsundir króna,
geymdar í skuldabréfum ríkissjóðs
og í vörzlu biskupsstofu, Suðurgötu
22.
Vegna róttækra samfélagsbreyt-
inga, sem valdið hafa röskun á
stöðu foreldraheimilisins, benda
sterkar líkur til vaxandi taugaveikl-
unar meðal bama. Því eykst þörfín
fyrir viðeigandi faglega meðferð.
Vel menntaðir sérfræðingar era al-
búnir til að veita hana. En hentugt
og fullnægjandi húsnæði vantar.
Hér væri því kjörið tækifæri fyrir
góðviljað fólk að veita Heimilissjóði
fyárhagslegan stuðning svo og fyrir
félög, sem vinna að skyldum líknar-
málum, að sameinast Heimilissjóði
um farsællega framkvæmd.
Jónas Hallgrímsson lýsti kostum
slíkrar samvinnu í alkunnu ljóði:
„Sterkur fór um veg,
þá var steini þungum
lokuð leið fyrir.
Ráð at hann kunni,
þó ríkur sé
og hefðu þrír um þokað."
Höfundur er fyrrverandi prófessor.
NÝTT SÍMANÚMER
69-11-00
5 gíra ............. 249.090,-
4 gíra ............. 246.953,-
Góð greiðslukjör
Til afgreiðslu strax
Opið 10—16
Skiftiborð Verslun
38600 39230
Verkstæði Söludeild
39760 31236
Bif reiöar & Landbúnaöarvélar hf
Suöurlandsbraut 14