Morgunblaðið - 15.11.1986, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
Hofsjökull:
Áhöfnin elsk
að talstöðvum
SMYGL fannst um borð í Hofs-
jökli í Hafnarfjarðarhöfn sl.
föstudag. Skipið var þá nýkomið
frá Bandaríkjunum.
Toilverðir fundu átta talstöðvar
og 156 flöskur af vodka. Vamingur-
inn var falinn undir gólfi í málning-
argeymslu fremst í skipinu og víðar.
Fjórir skipveijar hafa játað að eiga
vaminginn, sem er metinn á um
185 þúsund krónur.
Föstudaginn 26. september
fundu tollverðir 12 talstöðvar um
borð í skipinu, auk vodka, sem að
magni var 558 flöskur. Verðmæti
vamingsins sem fannst þá var um
550 þúsund krónur.
Vegnafjölda
áskorana höfum
viðformlega haf-
iðsölu áglugga-
tjöldum og
áklæðumfrá
hinum heims-
þekktu og viður-
kenndu
vefnaðarverk-
smiðjum
Creation Baumann
SEM ER 100 ÁRA GAMALGRÓIÐ FYRIRTÆKI EN ÁVALLT Á UNDAN TÍSKUNNI
Baumann er í fararbroddi í hönnun, gæðum og framleiðslu gluggatjalda og ofinna áklæða
og veggefna. Úrvalið skiptir hundruðum lita. Um nokkurt skeið höfum við boðið
sérpantanaþjónustu fyrir arkitekta, hönnuði og einstaklinga, sem hafa haft
spurnir af Creation Baumann. Okkur finnst sjálfsagt að allir geti skoð-
að og keypt sér Baumann-gluggatjöld. Við tökum því áskorun
fjöímargra ánægðra viðskiptavina og bjóðum Baumann-
HJA OKKUR NA GÆÐIN I GEGN! gluggatjöld í Teppalandi. Sýnishorn liggja frammi
til skoðunar. Guðrún Sigurðardóttir og aðrir
sölumenn Teppalands aðstoða við
valið. Veljið saman glugga-
tjöld og gólfteppi.
njM UKKUK IVAI GÆOIIM I GEGN!
Teppa/and
GRENSÁSVEGI 13, 108 R., SÍMAR 83577 OG 83430
Gullbrúðkaupskveðja
Opið til kl. 16 á
laugardögum
Jakob og Justa Mortens eiga
gullbrúðkaup um þessar mundir.
Þessi ágætu brúðhjón eiga svo
sannarlega skilið að þeirra sé getið
og minnst í dag.
Þau eru búin að eiga heima á
íslandi dijúgan hluta ævi sinnar og
hafa lagt gjörva hönd að mörgu
góðu verki í þágu samborgara
sinna.
Jacob hefur ávallt verið mikill
verkmaður og aldrei látið sitt eftir
liggja. Sama má um Justu segja.
Félagsmálum sóknar sinnar hafa
þau sinnt af fómfúsri trúmenhsku.
Hefur Justa gefið ómældan tíma
við viðhald og umhirðu fermingar-
kirtla kirkju sinnar um margra ára
skeið, auk þess hefur hún gefið
ótalda handavinnumuni og kökur á
basara kirkjunnar, kristniboðsfé-
laga og til Færeyska sjómanna-
heimilisins. Þau Jacob og Justa
hafa einnig átt hvað drýgstan þátt
í öllu því starfi sem fylgir happ-
drættinu í þágu þessa málefnis. Þar
hafa þau unnið ótrúlegt þrekvirki
við að reisa hið giæsilega hús sem
þau dreymir um að eigi eftir að
mynda ramma um kristilegt og
menningarlegt starf meðal landa
þeirra, búsettum og á ferð hér.
Hef ég oft undrast þá elju og
kjark sem þau ásamt fámennum
hópi samlanda sinna og vina, hafa
sýnt. Þar má sjá hversu stór hugur
og trú á málefni geta til leiðar kom-
ið. Sem eitt einstætt dæmi um
dugnað Jacobs, vil ég nefna að
hann kom einn fyrir öllu því gleri
í því stóra húsi.
Þessi ágætu hjón höfum við
þekkt í um 30 ár og átt með þeim
margar indælar stundir, í þeirra
hlýlega og fallega heimili sem ber
ríkan vott um iðni þeirra. Fegrað
með fallegum málverkum Jacobs
og handavinnu Justu. Ber það vitni
um samvinnu þeirra og kærleika
hvors til annars. Ein mesta ánægja
þeirra hefur ávallt verið að hafa
hjá sér góða vini og fá tækifæri til
að auðsýna þeim ómælda gestrisni.
Megi góður Guð blessa þau á
þessum tímamótum og ókomna
tíma.
Clara og Steinar
Hætt við að
margir gefist
UPP því lítið
má framleiða
Breiðavikurhreppi.
ÞANN 20. október snjóaði tals-
vert hér, siyódýpt var um 20 cm,
þessi snjór hélst tíl mánaðarmóta
október-nóvember. í þessum
kuldakafla mynduðust mikil svell
á vegum og urðu erfiðleikar í
umferðinni útaf hálku.
Nú er snjórinn farinn af lág-
lendi. Sauðfé er komið í hús. Eftir
einmuna gott sumar eiga bændur
nú mikil og góð hey, sem gaman
er að gefa, en á skyggir að ekki
má framleiða nema takmarkað og
er hætt við að margir gefist upp.
Nú eru aðeins 2 bátar sem stunda
veiðar frá Amarstapa, ein trilla og
einn þilfarsbátur, 9 tonna, þeir róa
með línu, gæftir hafa verið mjög
slæmar og hefur ekki gefið á sjó nú
í hálfan mánuð, þegar víðast var
róið var kropp á línuna sem sjó-
menn kalla svo. Bjami Einarsson
tekur fiskinn og hann er verkaður
í salt.
Samgöngur eru með sama móti
og áður. Póstur kemur tvisvar í
viku með mjójkurflutningabíl.
Gámabílar fara Útnesveg þegar
hann er fær. Brýn nauðsyn er að
bæta hann og halda honum opnum.
Nú er búið að lagfæra stikumar
meðfram veginum og er það ómet-
anleg bót fyrir vegfarendur, sér-
staklega í vondum veðrom og
snjóblindu.
Vegaverkstjóri sagði mér að
hann hefði ætlað að keyra ofaní
verstu kaflana á Útnesvegi í haust,
en snjórinn kom fyrr en hann varði
og sagðist hann ætla að keyra ofan
í veginn snemma næsta sumar. Ero
það gleðitíðindi fyrir vegfarendur
því marga fysir að fara hér fram
undir jökul til að skoða þá stór-
brotnu náttúrofegurð sem hér er
víða undir jökli.
í Djúpalón og Dritvík sækja
dánumenn og huldufólk. Oft er
mergð ökutækja þar, þótt hvorki
sé þar bar né mjólk.
Finnbogi L.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháasemlága!