Morgunblaðið - 15.11.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
43
Úr horni Borgarspítalans
eftirHrefnu Birgittu
Bjarnadóttur
Sem sjúkraliði á deild A-3 (legu-
deild slysadeildar) Borgarspítalans
langar mig að rita nokkur orð um
grein þá sem ég las um rekstur
Borgarspítalans í Morgunblaðinu
6.11. 1986.
Ekki ætla ég að ræða um hvert
einstakt atriði þessarar rannsóknar
á rekstri Borgarspítalans enda
þekki ég ekki nógu vel til þeirra
mála í heild, heldur langar mig að
§alla meðal annars um gr. 2; þar
stendur: „Starfsfólkið hjálpast
ekki að sem skyldi og kröfur
þess um bætt kjör og aðstöðu
skyggja á þarfir þeirra sjúklinga,
sem ekki þarfnast bráðrar að-
hlynningar.“ Tilvitnun lýkur.
Hvaðan hafa Davíð og félagar þess-
ar upplýsingar? Eru þær skráðar í
Leiðbeiningar-
bók um kynlíf
FRJALST framtak hefur sent
frá sér bókina Leiðbeiningar um
gott kynlíf eftir bandaríska fé-
lagsfræðinginn dr. Ruth West-
heimer.
í frétt frá útgefenda segir m.a.:
„Bækur sínar byggir dr. Ruth West-
heimer á útvarps- og sjónvarps-
þáttum sínum. Hún tekur upp
spumingar sem fyrir hana eru lagð-
ar um kynlíf og leggur síðan út frá
þeim. Hún segir það staðreynd að
fjöldi fólks eigi í erfiðleikum í
kynlífí sínu, en hiki oft við að leita
ráða og leiðbeininga. í flestum til-
vikum sé hægt að gefa fólki þau
ráð sem duga og stuðla þannig að
hamingjusamara lífi þess.
Meðal þess sem dr. Ruth fjallar
sérstaklega um í bók sinni er Full-
næging í kynlífi, kynlíf unglinga,
kynlíf roskins fólks, skyndikynni
og kynlíf, getnaðarvamir, kynsjúk-
Dr. Ruth Westheimer.
dómar, samkynhneigð og áhrif
vandamála í kynlífi á sálarlíf fólks.“
Þýðandi bókarinnar er Gauti
Kristmannsson.
Leiðbeiningar um gott kynlíf er
prentunnin og bundin í Prentsmiðj-
unni Odda. Kápu hannaði Auglýs-
ingastofa Emst Bachmanns.
rekstrarskrá spftalans eða hafa
þessir herrar kannski sjálfir legið
sem sjúklingar á spítalanum og
orðið útundan í aðhlynningu? Nei,
ætli sé ekki frekar um að kenna
þekkingarleysi þessara manna og
er það gott þeirra vegna ef þeir
hafa ekki þurft að nota sjúkrarúm
spítalans, en hitt er annað mál að
svo vel gefinn maður sem Davíð
er skuli geta látið svona nokkuð frá
sér fara er ofar mínum skilningi.
Ef ekki væri vegna þeirra fjöl-
mörgu, sem ekki hafa legið á
Borgarspítalanum en bíða kannski
eftir plássi þar eða lenda þar inni
óvænt, þætti mér þetta ekki svara
vert. Þeir sjúklingar sem hafa legið
eða liggja á spítalanum vita betur,
en við þá sem ekki til þekkja vil
ég segja: „Þið þurfíð ekki að óttast
það að leggjast inn á Borgarspítal-
ann. Þar hjálpast allir að enda varla
hægt að reka heilt sjúkrahús öðm-
vfsi. Þar sem hver hlekkur — hversu
lítill sem hann er — er mikilvægur.
Þar er öllum sinnt eftir bestu getu.
Sem betur fer em ekki allir sjúkl-
ingar ósjálfbjarga en þeir sem það
em fá og þurfa skiljanlega meiri
aðhlynningu en hinir. Þetta veit ég
að hver sæmilega hugsandi maður
skilur. Ef einhver yrði útundan dytti
mér helst í hug að það yrði ef sá
hinn sami þyrfti að liggja í rúmi á
ganginum (deildin yfirfull) þar sem
ekki er gert ráð fyrir bjöllu (sem
sjúklingur hringir ef hann vanhagar
um eitthvað) eða útvarpsinnstung-
um. Að öðm leyti held ég að allir
hjálpist að til að sjúklingi líði sem
best á meðan á dvöl hans stendur.
Ég hef aldrei á mínum starfs-
ferli sem sjúkraliði orðið var við að
sjúklingi hafí ekki verið sinnt vegna
þess hve lág laun hjúkmnarfólk
hefur og ég held að þeir menn sem
Hrefna Birgitta Bjamadóttir
hafa haldið því fram í blöðum að
kröfur starfsfólks um bætt kjör
og aðstöðu skyggi á þarfir sjúkl-
inga sem ekki þurfa bráða
aðhlynningu ættu að kynna sér
málið betur.
Oft á tíðum hefur það komið
fyrir að ein vakt hefur hreinlega
ekki komist yfir öll þau verk sem
hefði þurft að vinna en þá tekur
næsta vakt við og reynir að bæta
úr. Því kæri Davíð og félagar, það
er nú einu sinni svo að við í hjúkr-
unarstéttunum emm að vinna með
fólki en ekki steinum og munurinn
þar á er sá að mannslíkaminn tekur
upp á einu og öðm sem steinamir
gera ekki. Þannig að hjá okkur er
aldrei hægt að segja, ég ætla að
klára þennan sjúkling á 10 mín.,
það em þarfír hvers sjúklings fyrir
sig sem ákveða mínútumar.
Kannski er hægt að koma á bónus
inni á deildunum, þá væri hugsan-
lega hægt að kreista örlítið meira
út úr starfsfólkinu.
En nefndin er nú með skýr svör
við þessu, bara færa starfsfólkið
milli deilda. Gott og vel, það er
ekkert að því að kynnast nýjum
deildum en allt tekur sinn tíma því
ekki em sömu þarfír á sérhæfðum
deildum. En annars, hvað segði
Davíð um að vera borgarstjóri í
Reykjavík á mánudegi, bæjarstjóri
í Kópavogi á þriðjudegi og bæjar-
stjóri á Akureyri á miðvikudegi?
í 3 gr. er sagt: „Meira er gert
úr manneklu á spítalanum en
ástæða er til.“ Þessu svara herram-
ir með tillögu um að draga úr
fastráðningu lækna og að gera
vinnusamninga við sérfræðinga og
taka upp samstarf við önnur sjúkra-
hús. Kannski skil ég þetta eitthvað
vitlaust en ég hélt að verið væri
að tala um manneklu á spítalanum
en ekki lækna eina og sér. Ég held
að þessir menn ættu að kynna sér
hjúkmnarálag á deildunum og svo
mega þeir tala um að of margt
starfsfólk sé á hvem sjúkling ef
þeim finnst ástæða til.
Ég held að Davíð megi þakka
fyrir það starfsfólk sem hann hefur
á spítalanum. Það em ekki ófáir
sem hafa flúið úr hjúkrunarlaunum
sem boðið er upp á. Og ef borin
em saman laun, t.d. sjúkraliða í
Reykjavík og í Hafnarfirði, er ég
ansi hrædd um að Davíð geti falið
sig bak við Morgunblaðið.
Annars að lokum, ef einhver hef-
ur skilið einhvem útundan þá veit
ég ekki betur en að Davíð hafí
gleymt sjúklingunum sínum á Borg-
arspítalanum á 200 ára afmæli
Reykjavfkurborgar, þvf engin terta
var á borð borin fyrir þá þann dag-
inn, en þeir máttu borða soðinn fisk
og þótti nógu gott. Eða kannski við
hefðum átt að trilla rúmunum niður
í Lækjargötu? Þau em á hjólum 0"
því vel færanleg.
Höfundur er sjúkraliði á Borg-
arspítadnnum.
^fl M M Tékkneskur kristall,
IViallA ÍU91U fagurlega skorínn.
er komín t miklti úrvalí...
Ávaxtaskálar
desertskálar,
blómaskálar.
GIös í öllum stærðum
Hinn eftirsótti
kristalslampi
Verð kr. 3.950.
Sf/örtur0 C~Ylielóen<=, k/ $
KRISTALL OG POSTULÍNSVÖRUR
TEMPLARASUNDI 3 - SIMI 19935
Sérverslun með áratuga þekkingu.
Kertastjakar
ýmsar stærðir
Blómavasar
í fleiri stærðum
Póstsendum um land allt.
Opíð frá kl. 9-14 f dag.