Morgunblaðið - 15.11.1986, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986 59
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
• Broddi Kristjánsson tapaði í einliðaleik karla í landsleiknum gegn Norðmönnum í gœrkvöldi. Hér sóst
hann steygja sig eftir boltanum f fyrstu lotunni og í dag mun hann þurfa að taka á öllu sínu til að ná langt
á Norðurlandamótinu.
Norðmenn lagðir að velli
„ÞAÐ er góður möguleiki á að við
vinnum þennan landsleik þó svo
ég hafi tapað þessum fyrsta leik,“
sagði Broddi Kristjánsson eftir
að hann hafði tapað fyrsta leikn-
um í landskeppni Islands og
Noregs f badminton í Laugardals-
höllinni í gœrkvöldi. Broddi
reyndist sannspár því ísland vann
leikinn þó svo keppninni hafi ekki
verið lokið seint í gœrkvöldi er
Morgunblaðið fór f prentun.
Fyrsti leikurinn var í einliðaleik
karla og þar áttust þeir við Broddi
og Öyvind Berntsen. Norðmaður-
inn byrjaði mun betur og vann
fyrstu lotuna 13:15 eftir að hafa
verið 6:14 yfir. Aðra lotu vann hann
9:15.
Broddi virtist eitthvað stífur í
þessum leik og þó svo hann hafi
átt góða kafla og ágætis sóknir
þá var leikur hans ekki nógu jafn
því á milli góðu kaflana gekk bók-
staflega ekkert hjá honum.
í einliðaleik kvenna hafði Þórdís
Edwald mikla yfirburði gegn Ellen
Berg og vann 11:2 og 11:7.
Tvíliöaleikur karla var æsispenn-
andi og skemmtilegur. Broddi og
Þorsteinn Hængsson töpuðu fyrir
Öyvind og Erik Lia í fyrstu lotunni
15:10 en í þeirri næstu unnu þeir
8:15 og því þurfti oddalotu. Hún
var æsispennandi og skemmtileg
en vannst að lokum 17:18.
í tvíliðaleik kvenna léku þær
Þórdís og Elísbet Þóröardóttir
gegn Ellen og Mariaönnu Wikdal.
Norskar unnu fyrtu lotu 15:10 en
við þá næstu 9:15. Odddalotuna
unnu þær síðan 7:15 og þar með
landsleikinn því fyrir síðasta leikinn
hafði ísland 3 vinninga en Norð-
menn einn.
Nágrannarnir
skildu jafnir
ÞRÍR leikir voru f 2. deild karla í
handknattleik f gærkvöldi. Ná-
grannarnir á Suðurnesjum,
Reynir frá Sandgerði og ÍBK
gerðu jafntefli f hörku leik þar
sem hvoru liði tókst að skora 23
mörk.
Þór heimsótti Gróttu á Seltjarn-
arnesið og þar unnu Akureyringar
22:24 þrátt fyrir að Halldór Ingólfs-
son skoraði 12 mörk fyrir Gróttu.
Markahæstur hjá Þór var Sig-
urður Pálsson með 7 mörk og
Sigurpáll Á. Aðalsteinsson skoraði
6 en markvörður Þórs, Axel Stef-
ánsson, varði hreint ótrúlega og
hefur trúlega frammistaða hans
átt mikinn þátt í sigri þeirra.
[ Vestmannaeyjum unnu heima-
menn Fylki auðveldlega 26:19.
Stórleikurfrá Þýskalandi
Frá Jóhanni Inga Qunnaruyni, fróttarltara
ÞAÐ má með sanni segja að leik-
ur sá er íslendingar fá að sjá f
beinni útsendingu í dag sé stór-
leikur. HSV og Köln leiða þá
saman hesta sfna og verður
eflaust um skemmtilegan og
spennandi leik að ræða.
Allir bestu menn liðanna verða
með í dag nema hvað Ule Stein
markvörður HSV leikur ekki með
en í hans stað leikur Uwe Hain í
markinu en hann hefur verið vara-
markvörður HSV í nokkurn tíma.
Kölnarbúara byrjuðu keppn-
istímabilið afleitlega en hafa sótt
mjög í sig veörið að undanförnu
og þar eru þeir Morten Olsen og
MorgunblaAsins f V-Þýskalandi.
Allofs bræður í broddi fylkingar.
. Klaus Allofs spáir í leiki helgar-
innar fyrir Bild og hann spáir 2:2
jafntefli í Hamborg. Morten Olsen
hefur leikið mjög vel að undanf-
örnu, en ekki í þeirri stöðu sem
við höfum oftast sóð hann leika
því nú er hann kominn á miðjuna
og stjórnar þar eins og sannur
hershöfðingi.
HSV hefur unnið alla sex leiki
sína á heimavelli til þessa í deild-
inni og af þeim 23 leikjum sem liðin
hafa leikið hefur HSV unnið 14, sjö
sinnum hefur orðið jafntefli og
Köln aðeins unnið tvívegis, síðast
fyrir 17 árum.
Liðin sem leika í dag eru þannig
skipuð:
HSV: Hain, Jakobs, Plessers, Jusufi,
Kaltz, von Heesen, Kroth, Hinz, Grundel,
Schmöller, Okonski. Varamenn eru:
Wessel, Balzis, Diettmer og Kastl.
Köln: Schumacher, Steiner, Prestin,
Wollitz, Lehnhoff, Geiis, Olsen, Janssen,
Engels, Thomas Allofs og Klaus Allofs.
Varamenn eru: lllgner, Hassler, Kirchen
og Tony Woodcock.
Aðrir leikir í Þýskalandi i dag eru
Bremen og Schalke og mun Rudi
Völler leika með Bremen þó svo
hann hafi meiðst í leiknum gegn
Stuttgart á dögunum.
Frankfurt og Uerdingen mætast
og telur Vollack markvörður Uerd-
ingen aö þeir nái stigi þar og Klaus
Allofs spáir 1:1. Annars eiga leik-
menn Uerdingen geysilega erfiða
viku framundan því 19. nóvember
leika þeir við Köln í bikarnum, 22.
við Bayern í deildinni og 26. við
Barcelona i UEFA-keppninni.
Allofs spári 3:0 sigri Bayern
gegn nýliðum Homburg og hafa
blöðin lítið gert annað en vorkenna
hinum unga markverði Homburg
að þurfa að vera í markinu og segja
að hann veröi eini maöurinn í liðinu
sem hafi eitthvað að gera í leiknum
-tína tuðruna úr netinu hjá sér.
Bochum og Stuttgart mætast
og verður það ábyggilega erfitt hjá
Stuttgart því Ásgeir verður akki
með og telja menn vonlaust aö
fylla skarð hans með einum manni
en meira fá þeir ekki að nota. 1:2
fyrir Stuttgart spáir Allofs.
Gullknötturinn
til Maradona
DIEGO ARMANDO Maradona
hlaut í gær gullknöttinn en hann
er veittur þeim knattspyrnumanni
sem blaðamenn kjósa besta leik-
mann heimsmeistarakeppninnar.
Maradona hafði mikla yfirburði f
athvæðagreiðslu þeirra 920
blaðamanna sem um lokakeppn-
ina skrifuðu, og atkvæðarétt
hföðu. Hann hlaut 2,664 stlg.
Harald Schumacher varð i öðru
sæti með 344 stig og Preben Elkj-
ær í því þriðja með 236 stig þannig
að yfirburðir Maradona voru geysi-
legir og þarf víst fáum að koma á
óvart.
í gær fékk Marco van Basten
frá Ajax gullskóinn fyrir að skora
flest mörk í knattspyrnunni í Evr-
ópu á síðasta keppnistímabili en
þá gerði hann 37 mörk í 34 leikj-
um. Þá hlaut Gary Lineker gullskó
heimsmeistarakeppninnar en
hann varð þar markahæstur með
sex mörk.
Essen vann
Göppingen
ESSEN er enn í efsta sæti 1.
deildarinnar f þýska handknatt-
leiknum en nfunda umferðin hófst
á miðvikudaginn. Essen vann þá
Göppingen á heimavelli þeirrar
sfðarnefndu með 29 mörkum
gegn 18 og skoraði Alfreð Gísla-
son fimm marka Essen.
Fæstir höfðu búist við sigri Ess-
en því Göppingen var í þriðja sæti
fyrir þennan leik og ákveðnir í að
vinna. Reyndin varð önnur Essen
vann og setti þar með nýtt met í
1. deildinni því þeir hafa ekki tapað
leik í níu fyrstu umferðunum.
Gamla metið átti Gummersbach,
átta sigurleikir í röð.
Til gamans má geta þess að
höllin í Göppingen er ein af uppá-
halds höllum Jóhanns Inga
Gunnarssonar þjáfara Essen því
hann hefur stjórnað fimm leikjum
þar og unnið fjóra. Kiel hafði til
dæmis aldrei unnið leik þar fyrr
en Jóhann tók við félaginu og í
fyrra tapaði Essen með þremur
mörkum þar. í fyrra vann Kiel í
Göppingen með sömu markatölu
og Essen á miðvikudaginn.
Níunda umferðin heldur áfram
í dag og þá ieika meðal annars
Páll Ólafsson og félagar hans hjá
Dusseldorf gegn Sigurði Sveins-
syni í Lemgo og verðurþað án efa
skemmtilegur leikur. Á miðviku-
daginn leika síðan Dusseldorf og.
Essen í deildinni.
í gærkvöldi voru tveir leikir í
deildinni. Kristján Arason og félag-
ar töpuðu í Kiel 18:15 eftir að
staðan hafði verið 7:4 i leikhléi.
Gummersbach komst í 1:3 en Kiel
síðan t 7:3 og eftir það var aldrei
spurning um hvort liðið væri betra.
Kristján átti slakan dag, skoraði
ekkert merk þrátt fyrir að leika all-
an leikinn. Markahæstur var
Neitzel með 6 og hjá Kiel skoraði
Schvenker 7 mörk.
Andespil — Bingó
Dannebrog halda sitt árlega makabingó sunnudaginn
16. nóvember kl. 20.30 í Risinu, Hverfisgötu 105.
Húsið opnað kl. 20.00. Stiómia.
Tek að mér alhliða
málningarvinnu, ut-
anhúss sem innan.
Gjörið svo vel og reynið
viðskiptin.
Hallvaröur S. Óskarsson,
málarameistari,
sími 686658.
Állt í veisluna
hjá okkur
Kjörorð okkar er:
Góða veislu gjöra skal
YEISIAJ-ELDHUSIÐ
Álfheimum 74, Glæsibæ. Sími: 686220 kl. 13—17.
KALT BORÐ
HEITT BORÐ
KÖKUBORÐ
Á veisluborðið:
Roast beef
Hambogarhryggur
Grísasteik
Lambasteik
Hangikjöt
Nýr lax
Graflax
Reyktur lax
Sildarréttir
Salöt
Sósur
Brauð, smjör, smurt brauð, snittur, pinnamatur, kjöt,
fiskur, ostar. Rjómatertur, marsípantertur, kransakökur.
Sendum mat í fýrirtæki og leigjum út sali
VEISLUELDHÚSIÐ
Glæsibæ, sími 686220