Morgunblaðið - 11.12.1986, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1986
Bók um Grímsá
ÚT ER komin bókin Grímsá —
Drottning laxveiðiánna, eftir
Björn J. Blöndal og Guðmund
Guðjónsson. Útgefandi er Bók-
hlaðan. Bókin fjallar eins og
nafnið bendir til um laxveiðiánna
Grímsá og hliðará hennar
Tunguá, en þær renna um
Lundareykjadal í Borgarfirði.
í fréttatilkynningu um bókina
segir: „Saga laxveiða í Grímsá er
æði litrík, því þegar á síðustu öld
var hún tekin á leigu af ýmsum
breskum mönnum. Margir af fyrstu
íslensku laxveiðimönnunum stigu
einnig sín fyrstu skref á bökkum
Grímsár. Þá er áin sjálf í hópi fal-
legustu, fjölbreytilegustu og gjöful-
ustu laxveiðiáa landsins og lýsingar
á henni og leyndardómum hennar
eru fléttaðar saman við frásagnir
af veiðimönnum og ævintýrum sem
á daga þeirra hefur drifið.
Auk þessa eru nokkur viðtöl í
bókinni og þar segja frá reynslu
sinni ýmsir sem eru ánni gjörkunn-
ugir eftir áratuga viðkynni. Rætt
er við Steingrím Hermannsson for-
sætisráðherra, sem hefur veitt í
ánni í alls 25 ár, feðgana Kristján
og Sigurð Fjeldsted í Ferjukoti og
Viðar Pétursson tannlækni. Þá er
sagt frá Tunguánni í sérstökum
kafla þar sem farið er með ánni í
fylgd Sturlu Guðbjamarsonar í
Fossatúni sem þekkir ána manna
best.“
Bókin er tæplega 200 síður og
prýdd fjölmörgum myndum. Eftir
höfundana liggja aðrar bækur um
veiðiskap frá Bimi, m.a. Vatnanið-
ur, Hamingjudagar, Vötnin ströng
og Svanasöngur, en frá Guðmundi
Varstu að fá ’ann? og Vatnavitjun.
Almanak Hins
íslenska þjóð-
vinafélag’s 1987
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins hefur gefið út Alm-
anak Hins íslenska þjóðvinafélags
1987, en aðalhluti þess er að vanda
almanak um árið 1987 sem dr. Þor-
steinn Sæmundsson stjamfræðingur
hjá Raunvísindastofnun Háskólans
hefur reiknað og búið til prentunar.
Annað efni Þjóðvinafélagsalman-
aksins að þessu sinni er árbók
íslands 1985 sem Heimir Þorleifsson
menntaskólakennari tók saman.
Þetta er 113. árgangur Þjóðvinafé-
lagsalmanaksins sem er 200 bls. að
stærð, prentað í Odda. Umsjónarmað-
ur þess er Jóhannes Halldórsson cand.
mag. Forstöðumenn Þjóðvinafélagsins
auk Jóhannesar eru: Bjami Vilhjálms-
son fyrrverandi þjóðskjalavörður,
forseti, Einar Laxness menntskóla-
kennari, Guðrún P. Helgadóttir cand.
mag. og dr. Jónas Kristjánsson for-
stöðumaður Stofnunar Áma Magnús-
sonar.
Metsölublaó á hverjum degi!
(A) Husqvarna |
UPPÞVOTTAVCLAR
Q 3 - 30 5 v
' 1.5 13 stg
% / — 21( l
>.ði >5 itg *§
Góð greiðslukjoi
Hvuðerheimili ón ©Husqvama?
(2\
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 “Sí 91-35200
Leðurhægindastóll með áföstum
fótskemli
Verð f rá kr. 25.420.-
rfrjp=mrm m í.
BÚSTOFN
Smiöjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544.
■■M