Morgunblaðið - 24.12.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
3
+
Sædýrasafnið:
•• ■
Orlög dýranna ekki ráðin
HELDUR er dauflegt um að lit-
ast í Sædýrasafninu í Hafnarfirði
þessa dagana. Safninu hefur ver-
ið lokað og félagsskapur sem
r efnist Fauna vinnur nú að end-
u.rskipulagningu á rekstri þess.
Þiir eru aðeins örfá dýr eftir;
apar, ljón, kengúrur, ísbjörn, sel-
ir og sæljón. Að sögn Helga
Jónassonar, stjórnarformanns
Faunu, eru örlög dýranna ekki
ráðin. Félagið stefnir að því að
opna safnið að nýju næsta vor.
Hugmyndin er að ná breiðri sam-
stöðu um sædýrasafn sem nýst
gæti til rannsókna, kennslu og
væri aðlaðandi fyrir erlenda
ferðamenn.
Þrátt fyrir skammdegismyrkur
og óvissa framtíð virtist sem dýrin
yndu hag sínum vel er blaðamaður
leit þar við á mánudag. Af bram-
bolti karlapans mátti dæma að hann
hefði gaman af gestagangi en apa-
kerling fylgdist með aðforunum af
stóískri ró. Ljónaparið í næsta búri
tók þessari heimsókn heldur fálega,
eins og konungi og drottningu dý-
ranna sæmir. Isbirnan teygði
snoppuna til veðurs og virti að-
komumenn grannt fyrir sér.
m
Heldur hefur verið einmanalegt í bjarnargryfjunni eftir að „eigin-
maður“ ísbirnunnar lést fyrir tveimur árum.
Ljónabúrið.Ef þau verða látin fara
aftur til landsins.
Kengúrumar flórar höfðust við inni
í litlum kofa, en af fótsporum í
snjónum fyrir utan mátti sjá að þær
höfðu hoppað um í fönninnni
skömmu áður. Af sjávardýrum eru
nú aðeins eftir tveir kópar í tjörn-
inni stóru og sæljón sem lék sér
og buslaði í háhymingakerunum.
Morgunblaðið/RAX
er óvíst hvenær slík dýr koma
Stærstu öldrunarlækninga-
deildínni sagt upp húsnæðinu
ÖRYRKJABANDALAG íslands
hefur sagt ríkisspítulum upp
húsnæði í Hátúni 10 b, en þar
hefur öldrunarlækningadeild
Landspítalans verið til húsa und-
anfarin 11 ár. Uppsögnin tekur
gildi 1. maí 1988 og er ekki enn
vitað hvert starfsemin flytur.
öldmnarlækningadeildin hefði haft
yfir að ráða undanfarin ár. í Hátún-
inu hefur stærsta öldrunarlækn-
ingadeild landsins verið til húsa,
þar hafa verið 66 legurými, en auk
þess hafa um 40 sjúklingar verið
innritaðir á dagspítalann, um 20
koma daglega.
„Það er öllum ljóst að það verður
að leysa þetta mál“ sagði Davíð
Gunnarsson forstjóri ríkisspítal-
anna. Hann sagði að lagðar hefðu
verið fram tillögur um að byggja
öldrunardeild við Vífílsstaðaspítala,
en fé ekki fengist til þess á fjárlög-
um næsta árs. Auk húsnæðiserfíð-
leika væri orðið erfitt að manna
hjúkrunardeildir vegna skorts á sér-
menntuðu hjúkrunarfólki.
Að sögn Odds Ólafssonar hafa
leigutakar ekki farið fram á fram-
lengingu leigutímabilsins. „Það
hefur verið mjög góð samvinna, og
við höfum einnig getað notað þá
aðstöðu sem er í öldrunarlækninga-
deildinni fyrir meðlimi Öryrkja-
bandalagsins.“
Kjarasamningar
BSRB og ríkisins:
Væntanleg lág-
markslaun gilda
frá 1. desember
Viðræðunefndir BSRB, ríkis
og sveitarfélaga, komu saman til
fyrsta fundar á föstudaginn og
þar var ákveðið að sú hækkun
lágmarkslauna, sem samið verð-
ur um í væntanlegum kjarasamn-
ingum, gildi frá 1. desember
siðastliðnum.
Á fundinum var einnig ákveðið
að stofna þijár vinnunefndir. Samn-
inganefndimar munu koma saman
aftur 12. janúar en fram að þeim
tíma verður unnið að gagnaöflun.
Þá mum aðalsamninganefnd BSRB
kjósa nýja viðræðunefnd.
Oddur Ólafsson formaður stjóm-
ar hússjóðs Öryrkjabandalagsins
segir að þessi uppsögn eigi ekki að
koma neinum á óvart, leigusamn-
ingur hafi verið gerður 1975,
húsnæðið þá leigt til 13 ára og leig-
an greidd fyrirfram. í samningnum
hefði verið kveðið á um að ef leig-
utíminn yrði ekki framlengdur þá
yrði að segja leigutökum upp fyrir
áramót 1987, og hefði það verið
gert nú fyrir nokkrum dögum. Ör-
yrkjabandalagið þyrfti á þessu
húsnæði að halda, og væri ætlunin
að koma upp 36 íbúðum fyrir ör-
yrkja í þeim 2500 fermetrum sem
Rjúpnaskyttur í
leyfisleysi:
Haglabyss-
ur og veiði
gerð upptæk
Selfossi.
ÞRJAR rjúpnaskyttur voru tekn-
ar i landi Hagavikur í Grafningi
síðastliðinn sunnudag og skot-
vopn þeirra og veiði gerð
upptæk, en ijúpnaveiði er bönn-
uð í landi Hagavíkur.
Tilkynning barst til Lögreglunn-
ar á Selfossi á sunnudag frá
landeigendum í Hagavík um skot-
menn í leyfisleysi í Hagavíkurlandi.
Lögreglumen fóru á vettvang og
gerðu upptækar tvær haglabyssur
og 9 ijúpur, líklega jólaijúpumar.
Hagavík er ein þeirra jarða þar
sem ekki er leyfð meðferð skot-
vopna og eru skýrar tilkynningar
um það á girðingum. Þrátt fyrir
það er mikið ónæði af skotmönnum
í landi Hagavíkur og annars staðar
þar sem skotveiði er bönnuð svo
sem í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Sig.Jóns.
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
sendiröllum landsmönnum
bestu óskir um gleðileg jól,
þakkar viðskipti á liðnum
árum og óskar
farsældar og fararheilla
á komandi árum.
Ferdaskrifstofan
ÚTSÝN