Morgunblaðið - 24.12.1986, Page 9

Morgunblaðið - 24.12.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 9 HUGVEKJA Jólin 1986 eftir ÓSKAR JÓNSSON I„Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gafson sinn eingetinn, tilþess að hver sem á hann trúirglatist ekki, heldur hafi eilíft líf“ Jóh.3,16. Lúk. 2,8-14. En í sömu byggð voru hirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir, en engillinn sagði við þá: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð fínna ungbam reifað og lagt í jötu.“ Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: „Dýrð sé Guði í upphæð- um, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur vel- þóknun á.“ í Betlehem er bam oss fætt. Því fagni gjörvöll Adams ætt. :,:Hallelúja:,: Þannig hefur verið sungið gegnum aldimar og við syngjum enn. Það átti að koma bjartur dagur yfir dimman og syndugan heim. En biðtíminn var langur. Árin liðu, já, margar aldir. En svo eina dimma vetramótt fengu þeir sem sátu i dauðans skugga að sjá mikið ljós. Guðspjallamaðurinn Jóhannes segir: „Hið sanna ljós, sem upplýsir hvem mann, kom nú í heiminn ... Hann kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku ekki við honum. En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs böm, þeim, er trúa á nafn hans.“ „Verið óhræddir" era fyrstu orðin sem engillinn segir við hirð- ana sem vora mjög hræddir. Ótti og hræðsla kemur á veg okkar í dag einnig. Ótti vegna syndanna: Frelsarinn er fæddur. Ótti vegna framtíðarinnar. „Hver mun gjöra oss viðskila við kærleika Krists?" Róm. 8,35. Ótti við dauðann. Fyr- ir þann sem trúir á Frelsarann er ekkert að óttast. Páll postuli vitnar: „Lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur." Fil. 1,21. Ótti við dóminn á dómsdegi. „Jes- ús segir: „Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim, sem sendi mig, hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms, heldur er stiginn yfír frá dauðanum til lífsins." Jóh. 5,24. „Sjá, ég boða yður mikinn fögn- uð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur." Gleði og fögnuður á að ein- kenna jólahátíðina og gerir það einnig, en mismunandi mikið. Hér á landi hafa jólin indælis áhrif á þjóðina. Það besta í mann- inum kallast fram. Fólkið sýnir meiri gleði, er kærleiksríkara og gjafmildara. Kirkjusóknin er betri en á öðram tímum ársins. Fögnuð- ur og gleði jólanna ætti að vara allan ársins hring, þá væri gott að lifa. Jólagjöfin mikla, „Jesús“, er Guðs gjöf til okkar mannanna: „Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3,16. Andi jólanna er andi fyrirgefn- ingar, fómar og þjónustu. Jesús tók á sig þjóns mynd, og það er hann sem er fyrirmyndin. Kristnir menn eiga í Jesú nafni að vinna kærleiksverkin allt árið. Eftirfarandi var birt í „Heróp- inu“ fyrir nokkram áram: Hið lítilmótlega verður mikið þegar Guð er í því. Eftir David Kjellgren. í kvöld mun hinn heimsfrægi fiðlusnillingur Fritz Kreisler halda tónleika í Metropolitan Opera House í New York. Þessi stórkost- lega tónlistarhöll er fullsetin tónlistarunnendum sem bíða þess fullir eftirvæntingar að einleiks- tónleikamir heíjist. Þetta era aukatónleikar, sem Kreisler held- ur, þar sem allur ágóði á að renna til líknarstarfs Hjálpræðishersins til handa bágstöddum um jólin. Aðgöngumiðamir að tónleikunum era dýrir, en það hefur ekki fælt fólk frá því að koma. Tjaldið er dregið frá sviðinu og Kreisler kemur fram á sviðið. Hann brosir til áheyrenda sem hylla hann með lófaklappi. Kynnir kvöldsins er Mr. Hooving, vinsæll útvarpsþulur. Hann kynnir Fritz Kreisíer á eftirfarandi hátt: „Það er þokukennt nóvember- kvöld í London. Hópur frá Hjálp- ræðishemum hélt útisamkomu á götuhomi. Það vora ekki margir áheyrendur þetta kvöld, enda hrá- slagalegt úti. En þama stóð ungur maður sem auðsjáanlega var mjög kalt og hlýddi á sönginn. Hann var í mjög lélegum skóm og átti í ekkert hús að venda fyrir nótt- ina. Samkoman var á enda, og þessi ungi maður talaði við kapteininn og sagði frá erfiðleikum sínum. Kapteinninn sá um að útvega honum gistingu auk þess sem hann gaf honum nýja skó.“ Þegar hér var komið sögu leit Hooving yfir salinn um leið og hann benti á Kreisler. „Fritz Kreisler er hér í kvöld til þess að borga fyrir skóna sem hann fékk,“ sagði hann. Þessi litli hópur hermanna á útisamkomu sem ekki aðeins söng og spilaði en sýndi líka kærleika í verki samkvæmt boði Jesú, vissi ekki að á þessari fámennu útisam- komu var sæði sáð, sem, eftir margra ára vöxt, átti eftir að veita mörgum hjálp og gleði. Nú aftanklukkur óma vor andi lifnar við. Vér þekkjum þessa hljóma, þvi þeir oss boða frið. Þeir boða sælu bjarta, þeir boða frelsi nýtt, :,: þeir drepa á dyr vors hjarta svo dásamlega og blítt :,: Svo há er höllin eigi né hreysisþakið lágt, að sorgin sjatna ei megi um sæla jólanátt. í konungshöllum háum jafn himinfagurt sem :,: í lýðsins kofum lágum skin ljós frá Betlehem :,: En ef að dimmir aftur og undraljósið dvín, ef kærleiks rénar kraftur og kólnar sólin þin, ó, flý á fund þíns Herra, þá finnurðu aftur jól, :,: og aldrei þá mun þverra í þínu hjarta sól :,: Guðs friðar boðskap blíða ei burt fær tíminn máð. Sjá, ár og aldir líða, en æ er söm Hans náð. Sú gleðifregn ei gleymist, að Guðs son kom á jörð. :,: Sú sæla saga geymist í söng og þakkargjörð:,: R. Mælum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.