Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 Borgarspítalamálið: Rétt ákvörðun hjá borgarstjóra eftir Boga Ingimars- son Málefni Borgarspítalans hafa verið ofarlega á baugi að undan- fömu. Ástæða þess er fyrst og fremst sú ákvörðun Davíðs Odds- sonar, borgarstjóra, að óska eftir því við ríkið, að það greiði borginni eignarhluta Reykjavíkurborgar í Borgarspítalanum umfram 15% og beri jafnframt ábyrgð á fjárhags- legum rekstri og stjóm spítalans. Ríkið á í dag 60% í Borgarspítalan- um en borgin 40%. Samkvæmt núgildandi lögum skulu sveitarfélög greiða 15% af byggingakostnaði sjúkrahúsa, sem reist eru fyrir for- göngu þeirra. Þessa kröfu segist borgarstjóri hafa sett fram, þegar ljóst varð, að ríkisstjómin myndi alls ekki hverfa frá þeirri ætlan sinni að setja Borgarspítalann á svokölluð föst Qárlög ríkisins. Ég er borgarstjóra sammála, m.a. af eftirgreindum ástæðum. 1. Það getur ekki kallast réttlæti, að eitt sveitarfélag, þ.e. Reykjavík, sé látið greiða hærra hlutfall en önnur sveitarfélög þurfa að gera. Nauðsynlegt er að þetta dæmi sé gert upp við fyrirhugaðar breytingar, annars yrði það aldrei gert. Ég fæ ekki betur séð en að borgarstjóri sé með þessari kröfu sinni að vemda hagsmuni Reykvíkinga, þ.e. að ríkið greiði borginni það sem hún hefur greitt umfram 15% eða u.þ.b. 25% af verðmæti spítalans, þannig að hið opinbera hafí þá greitt 85% í Borgarspítal- anum eins og öðrum spítölum sveitarfélaga. 2. Þegar Borgarspítalinn hefur verið settur á fjárlög ríkisins, þ.e. föst fjárlög, er mjög eðli- legt, að Reykjavíkurborg óski ekki eftir því að bera fjárhags- lega ábyrgð á rekstri hans. Þessi afstaða borgarstjóra er að mínu mati sú eina rétta og fullkom- lega ábyrg. Ég fæ ekki betur séð, en að ríkið hafí í raun stjóm- að Borgarspítalanum mörg sl. ár. Ríkð hefur greitt 90% af rekstrarkostnaði spítalans og spítalinn getur sig vart hreyft nema með samþykki heilbrigðis- eða fjármálaráðuneytisins. Auk þess hefur meirihluti í borgar- stjóm Reykjavíkur ekki nema tvo af fímm stjómarmönnum í stjóm spítalans. Hvemig á borg- in eiginlega að stjóma með þessum hætti og hveiju? Já, mér er spum. 3. Þrátt fyrir að Borgarspítalanum hafí meira og minna verið stjóm- að óbeint af ríkinu mörg sl. ár hafa læknar spítalans og annað starfsfólk ekki kvartað. A.m.k. minnist ég þess ekki að hafa séð greinar um það í dagblöðunum. Það er hinsvegar afar eftirtekt- arvert, að nær allar blaðagreinar og viðtöl í hljóðvarpi og sjón- varpi, þar sem „sölu Borgarspít- alans", þ.e. þessum 25% hluta í spítalanum og breytingu á stjóm spítalans, er mótmælt, tengjast læknum Borgarspítalans. Við hvað eru þeir hræddir? Jú, þeir óttast miðstýringu og minni fag- lega samkeppni. Þetta em þeirra meginröksemdir gegn fyrir- huguðum áformum. Hinsvegar fínnast mér fullyrðingar lækn- anna, um að þessum áformum fylgi miðstýring og minni fagleg samkeppni milli spítalann, al- gjörlega órökstuddar, enda fá þær ekki staðist. Mér er nær að halda, að það sem í raun fari fyrir bijóstið á læknunum, sé það að þeim fínn- ist ákveðin niðurlæging í því að verða settir undir stjóm ríkisspítalanna, eins og rætt hef- ur verið um. En takið eftir. Þeir tala alltaf um „sölu Borgarspít- alans“. Þetta er auðvitað snjall áróður af þeirra hálfu og ætlað að slá á viðkvæma strengi. Stað- reyndimar eru hinsvegar allt aðrar, þegar málið er skoðað ofan í kjölinn. 4. Ég er þeirrar skoðunar að tómt mál sé að tala um Borgarspítal- ann sem borgarstofnun eftir að hann er kominn á fjárlög ríkis- ins. Slík stofnun getur aldrei verið nein borgarstofnun. Myndu Reykvíkingar sætta sig við það, að Strætisvagnar Reykjavíkur, Vatnsveitan, Hitaveitan, Félags- málastofnun o.fl. o.fl. yrðu sett á fjárlög ríkisins? Að vísu getur ríkið sagt: Við borgum ekki krónu í rekstrarkostnaði þessara stofnana, en við borgum 90% í rekstri Borgarspítalans og því eðlilegt að rekstrarkostnaður hans sé ákveðinn á fjárlögum ríkisins. Þegar ríkið hefur síðan einhliða ákveðið að setja Borg- arspítalann undir stjórn ríkisspítalanna, þ.e. Landspítal- ans o.fl., heldur ætti Borgarspít- alinn að verða sjálfstæð ríkisstofnun. Smærri einingar em miklu hagkvæmari heldur en stórar einingar, ekkert síður í opinberum rekstri en einka- Bogi Ingimarsson „Það er mín skoðun, að borgarstjóri hafi með tillög-um sínum varð- andi Borgarspítalann, sýnt pólitískt hugrekki, eins og honum er einum lagið að gera.“ rekstri. Þannig fæst líka betri samanburður. Þessi leið útilokar það alls ekki, að hægt sé að samræma og gera rekstur stóru spítalanna í Reykjavík, þ.e. Landspítala, Landakotsspítala og Borgarspítala, hagkvæmari. Þessir spítalar þjóna sjúklingum hvaðanæva af landinu, t.d. voru u.þ.b. 34% sjúklinga sem vistuð- ust á Borgarspítala 1985 búsett- ir utan Reykjavíkur skv. upplýsingum úr ársskýrslu Borgarspítalans. 5. Það sem mér fínnst að skipti mestu máli, er sú staðreynd, að fyrir forgöngu Reykjavíkurborg- ar var Borgarspítalinn byggður. I dag þjónar hann Reykvíkingum og öðrum landsmönnum; hann er öllum landsmönnum opinn. Borgarspítalinn hefur getið sér gott orð, ekkert síður en Landa- kotsspítali og Landspítalinn, og starfsmenn leggja sig fram um að þjóna sjúklingum sem best. Það munu þeir gera áfram, alveg án tillits til þess hvort ríki, borg eða einhveijir aðrir, jafnvel Óskum öllum viðskiptavinum okkar nœr ogfjœr gleðilegra jóla FASTEIGNA m J-l/I MARKAÐURINN m Óðinsgötu 4, símar 11540 - 21700. Jón Guðmundsson sölustj., Leö E. Löve lögfr., Ólafur Stefánsson viðskiptafr. r HIJSVA\(;iJK FASTEIGNASALA SL LAUGAVEGI 24, 2. HÆO. #f 62-17-17 1 Við óskum við- skiptavinum og landsmönnum öll- um gleðilegrajóla ogfarsœls kom- andi árs. Þökkum viðskipt- in á liðnum árum. - Guðmundur Tómasson, Viðar Böövarsson, viðskfr./lögg. fast. ■ ■■■ ■■■ Óskum öllum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsœls komandi árs. Þökkum viðskiptin á árinu. Skattaþjónustan Bergur Guðnason hdl. V____I____________ Húsafell FASTEIGNASALA Langholtsvegi 115 (Bæjartei&ahúsinu) Smi:681066 Adalsteirin Petursson Bergur Guónason hd' Þorlákur Einarsson. Ihj'A VITASTIG 13 IDUO Simi 20020 PflfTEIGnflJAIA 96065. Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegrajóla og farsœls komandi árs. Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Bergur Oliversson hdl., Gunnar Gunnarsson hs: 77410. starfsmenn sjálfir, stjómi Borg- arspítalanum. Það er mín skoðun, að borgar- stjóri hafí með tillögum sínum varðandi Borgarspítalann, sýnt pólitískt hugrekki, eins og honum er einum lagið að gera. Það þarf áræðni og kjark til að hreyfa svona stórmálum, ekki síst þegar ljóst mátti vera, að margir starfsmenn spítalans, einkum læknar, myndu mótmæla þessum áformum harka- lega. Vel kann að vera, að borgar- stjóri hefði átt að undirbúa þetta mál betur, en mér er þó ekki alveg ljóst hvemig. Andstaða læknanna hefði ömgglega orðið sú hin sama. Það er auðvitað virðingarvert þegar ríkið vill hagræða hlutum og draga úr kostnaði og vafalaust má spara víða í spítalarekstri. Hinsveg- ar hefðu heilbrigðisyfírvöld fyrir löngu átt að beita sér fyrir endur- skoðun á starfsháttum og starfs- skipulagi stóra spítalanna þriggja í Reykjavík, þ.e. að athuga sérstak- lega framtíðarskipulag, verkaskipt- ingu og samstarf þeirra, alla rekstrarþætti, stjómunarfyrir- komulag o.fl. Það eitt sér, að setja Borgarspítalann á fjárlög ríkisins gegn vilja borgarstjómar Reykja- víkur, er engin lausn. í stöðunni eins og hún var, fínnst mér að borgarstjóri hafí gert rétt og þar með tekizt að vemda hags- muni borgarinnar og _ jafnframt gæta virðingar hennar. Islendingar era óvanir því að stjómmálamenn þori, meðalmennskan og máttleysið einkenna störf þeirra alltof oft. Óttinn við ímyndað almenningsálit og þrýstihópa hræðir. Vonandi fjölgar þeim stjómmálamönnum sem þora. Þá fyrst verða stjómmál einhvers virði. Höfundur er lögfræðingur og á sæti ístjórn Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík. IngölfsstrjBti 18 s. 27150 Gleðileg jól gœfuríkt komandi dr Benedikt Halldórsson sölustj. Hjaltl Steinþórsson hdl. Gústaf Þór Tryggvason hdl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.