Morgunblaðið - 24.12.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
21
SELJALANDS
FOSS
„Þú komst í hlaðið á hvítum hesti,
þú komst með vor í augum þér.
Ég söng og fagnaði góðum gesti
og gaf þér hjartað í brjósti mér,“
kvað Davíðfrá Fagraskógi. Hvíturfoss,
hvítur gæðingur, tvennt sem táknar
hreyfingu ogfegurð, afl og líf sem í
senn erfagurt og nýtilegt. Stemmning-
in í mynd við Seljalandsfoss undir
Eyjafjöllum minnirá kvæði Davíðs,
hvítur hestur með manni og þessi svip-
hreini foss sem er eins og sífellt vor í
augum hversdagsleikans. Seljalands-
foss er ein af perlum náttúrunnar sem
fær fólk til þess að staldra við og það
er sérstætt og eftirminnilegt að ganga
bak við fossinn og sjá regnbogana leika
sér í úðaslæðunni.
Fossinn ereins og birtan, eins og
manneskja, síbreytilegurog þó bund-
inn þessum stað hamraveggja sem
hljóta að hýsa huldufólk. Ævintýrin í
sambúð manns og lands eru mörg.
Fossinn hreyfirsig eftirveðri og vind-
um, á sumrin í glettni með mjúkum tón
hjá grænum möttli, á vetrum í klaka-
böndum við bergið svo brakar í. Það
er Auðunn Leifsson bóndi á Leifsstöð-
um sem er með hestinn Ljósaling á
myndinni, en eigandi hans er Lára
Leifsdóttir í Neðradal. Ragnar Axelsson
Ijósmyndari Morgunblaðsins tók mynd-
ina.
0 •
a.j.