Morgunblaðið - 24.12.1986, Side 34

Morgunblaðið - 24.12.1986, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986 Skoðanakönnun Hagvangs um jólavenjur íslendinga: Svínahamborgarhry^gur vinsæl- astur á j ólabor ðunum í kvöld 14,6% sögðust borða rjúpur Svínahamborg-arhryggnr ætl- ar að verða hvað vinsælastur á jólaborðum landsmanna í kvöld samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar Hagvangs, sem gerð var á timabilinu 29. nóv- ember til 7. desember sl. Af 1.000 manna úrtaki um land allt svör- uðu 773 og af þeim ætluðu 34% að borða svinahamborgarhrygg í kvöld. Rjúpurnar komu næst að vinsældum, en 14,6% svarenda ætluðu að gæða sér á þeim í kvöld og áberandi var það eldra fólkið. Fengin voru svör við sex spumingum í könnun Hagvangs og var i Morgunblaðinu i gær fjallað um þijár þeirra. Hinar þijár vora: — Hvaða mat borðar þú yfir- leitt á aðfangadagskvöld? — Hve mörg jólakort sendir þú eða fjölskylda þín yfirleitt? — Fer að jafnaði fram sérstök jólahreingeming á þinu heimili? (átt er við meiriháttar hreingera- ingar). Hangikjöt vinsælla í dreifbýli en þéttbýli Svínasteik lenti í þriðja sæti að vinsældum og ætluðu 12,5% að borða svínasteik í kvöld. Þá ætluðu 8,9% að borða lambakjöt og 7,9% hangikjöt. í sveitum landsins og í dreifbýli virðist lamba- og hangikjöt vinsælla en í þéttbýli annars staðar á landinu. Athygli vakti að flestir virðast hafa ákveðin matseðil á aðfangadagskvöld ár eftir ár enda sögðust aðeins 5,8% ekki hafa neitt sérstakt í matinn þetta kvöld, en eins og áður sagði var könnunin gerð í byrjun desember og vissi þá þorri svarenda hvað yrði að borða á aðfangadagskvöld. Samkvæmt könnunmni munu tæp 80% af þjóð- inni borða fímm vinsælustu matar- tegundimar, þ.e. svínahamborgar- hrygg, ijúpur, svínasteik, lambalqot og hangikjöt. 31 jólakort sent Að meðaltali sagðist fólk senda tæplega 31 jólakort til vina sinna og ættingja fyrir jólin. Nóg er að gera þessa dagana hjá póstþjón- ustunni, eins og fram hefur komið í fréttum, enda er jólapósturinn áætlaður hátt í 330 tonn að þessu sinni. Þar af fara 60 tonn til út- landa og 270 tonnum er dreift innanlands. Samkvæmt niðurstöð- um könnunarinnar virðist eldra fólkið senda hlutfallslega fleiri kort en þeir sem yngri eru og eins virð- ist fólk úti á landi vera mun duglegra við jólakortasendingamar heldur en þeir sem höfuðborgar- svæðið byggja. 75% þjóðarinnar íjólahreingerningnm Tæplega 75% af þeim, sem spurðir voru um hvort þeir gerðu sérstaka jólahreingemingu játtu því og var þá átt við meiriháttar hrein- gemingar svo sem að þvo glugga- Jóla- og nýárskveðja Góðum vinum og ættingjum nær og fjær, til sjós og lands, og fyrrum samstarfsmönnum sendi ég innilegar jóla- og nýárskveðjur með óskum um gæfu og gengi á komandi ári. Starfsfólki Landakotsspítalans, heilsuhælisins í Hveragerði, Rauða kross-heimilisins og hér á Hrafnistu í Laugarásnum þakka ég hlýhug og velvilja um leið og ég sendi því jóla- og nýárskveðjur. Hilmar Norðijörð loftskeytamaður, DAS Hrafnistu. SÆLGÆTIS- POKAR Ás-tengi fyrir JÓLATRÉS- SKEMMTANIR 3 stærðir. WK UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Smiðjuvegur 11. Sími 641006 AHar gerðir Tengið aldrei stál-í-stál SdiuE*sít[®Mr cííaroææfflxni & (S® VESIUHGOTU Ib SlMAR 14680 ?I480 Að meðaltali senda íslendingar 31 jólakort. tjöld og þess háttar. Hinsvegar sögðust 22.5% ekki standa í meiri- háttar jólahreingemingum. 89,2% af þeim, sem spurðir voru á aldrin- um 18 til 29 ára, sögðust taka verulega í gegn hjá sér fyrir jólin, 66,9% af svarendum, 30 til 49 ára, sögðust gera sérstaka jólahrein- gemingu og 67,6% af þeim sem em á aldrinum 50 ára og eldri sögðust gera hreint sérstaklega fyrir jólin. Tafla I Hve mörg jólakort sendir þú eða fjölskylda þín yfirleitt? Meðalfjöldi korta í hverju kjördœmi Reykjavík 27,7 Reykjanes 29,8 Vesturland 30,7 Vestfirðir 33,6 Norðurland vestra 39,2 Norðurland eystra 34,0 Austurland 31,9 Fimm vinsælustu réttirnir á aðfangadagskvöld eru svínahamborgarhryggur, rjúpur, svínasteik, lambakjöt og hangikjöt. Suðurland 33,2 Að meðaltali eru send 30,7 kort frá hverju heimili. Tafla II Fer að jafnaði fram sérstök jólahreingerning á þínu heim- ili? % Fjöldi Já 74,5% 576 Nei 22,5% 174 Stundum 2,6% 20 Veit ekki 0,4% 3 Tafla III Hvaða mat borðar þú yfirleitt á aðfangadagskvöld? Hamborgarhrygg (svína) 34,0% Rjúpur 14,6% Svínasteik 12,5% Lambakjöt 8,9% Hangikjöt 7,9% Ekkert sérstakt 5,8% Gæs 2,6% Londonlamb 2,5% Hamborgarhryggur (lamba) 1,6% Kalkún 1,6% Kjúklingar 1,6% Önd 1,4% Nautakjöt 0,8% Annað 4,3% Löggjafinn á að sjá um setningu refsiheimilda — ekki Seðlabankinn MORGUNBLAÐINU barst í gær fréttatilkynning frá Seðlabanka Islands. Þar segir: „Allt frá því á árinu 1957 hafði Landsbanki íslands, Seðlabanki, heimiid til að ákveða vexti við inn- lánsstofnanir. Bankinn nýtti þá heimild fyrst á árinu 1960. Með lögum um Seðlabanka íslands frá árinu 1961 hafði bankinn rétt til að ákveða hámark og lágmark vaxta, sem innlánsstofnanir máttu reikna af innlánum og útlánum. Hér var um heimild en ekki skyldu að ræða. Heimild þessi náði einnig til að ákveða hámarksvexti sam- kvæmt lögum nr. 58/1960, um bann við okri o.fl. Vaxtaákvarðanir sínar skv. 13. gr. laga nr. 10/1961 birti Seðlabankinn undantekningar- laust í Lögbirtingablaðinu á þann hátt, sem þar var kveðið á um. Frá og með 11. ágúst 1984 varð stefnubreyting í vaxtamálum að frumkvæði ríkisstjómar. Bankinn gaf frá þeim tíma innlánsstofnunum skilyrta heimild til að ákveða vexti af tilteknum inn- og útlánum. Þessi skipan mála hélst til 1. nóvember sl. er ný lög tóku gildi um Seðla- bankann. Hin nýju lög Seðlabank- ans gera ráð fyrir víðtæku frelsi innlánsstofnana í vaxtamálum og er sá háttur tekinn upp í beinu framhaldi af þeim breytingum, sem urðu hinn 11. ágúst 1984 að frum- kvæði stjómvalda, og staðfestar voru fyrst í lögum nr. 86/1985, um viðskiptabanka, og 87/1985, um sparisjóði, og endanlega með gildis- töku laga nr. 36/1986, um Seðla- banka Islands, hinn 1. nóvember 1986 eins og að framan greinir. Við ofangreindar breytingar á árinu 1984 var talið, enda sérstak- lega tekið fram í vaxtaauglýsingum bankans, að hámarksvextir í láns- viðskiptum aðila utan innlánsstofn- ana, sem miðað er við í lögum nr. 58/1960 um bann við okri o.fl., sbr. ákvæði 3. gr. þeirra, séu ,jafn- háir og almennir útlánsvextir em hæstir á þeim tíma, sem til skuldar er stofnað, hjá bönkum og spari- sjóðum, sbr. 16. gr. laga 63/1957 (nú lög nr. 10/1961, 13. gr.) eða breytiiegir í samræmi við þá vexti." Lög 58/1960 gera ekki ráð fyrir, að greindir vextir séu auglýstir opinberlega. Seðlabankinn skyldaði samt sem áður innlánsstofnanir til að auglýsa á áberandi hátt í af- greiðslum sínum þá vexti, sem hver stofnun bauð. Bankamir auglýstu auk þess vexti við sínar stofnanir í Lögbirtingablaðinu. Þrátt fyrir þessa breytingu og þá erfiðleika, sem af henni leiða við túlkun hæstu lögleyfðra vaxta skv. okurlögum, hefur Seðlabankinn, sérstaklega frá og með 1. janúar 1985 birt ákvarðanir sínar varðandi þetta atriði reglulega í Lögbirtinga- blaði, sbr. dóm undirréttar í umræddu dómsmáli. Hefur bankinn þannig reynt að samræma þróun síðari ára til auk- ins vaxtafrelsis óbreyttum okurlög- um, sem miðast við ólíkt ástand í vaxtamálum fyrir 26 ámm. Þetta misgengi í stefnu Alþingis og stjómvalda á þessum sviðum hefur nú leitt til þess, að Hæstiréttur tel- ur auglýsingar Seðlabankans ekki nægja sem gmndvöll refsiábyrgðar í umræddu dómsmáli. Bent skal á það hér, að verulegur munur er á grundvallarreglu laga um lög- bundnar refsiheimildir, sem stað- fest er í rnannréttindasáttmálum þeim, sem ísland er aðili að, og svo þeim stjómarfarslegu heimildum og skyldum, sem bankanum em ætlað- ar samkvæmt lögum. Hvergi er að því vikið í dómi Hæstaréttar, að bankinn hafí vanrækt skyldur sínar samkvæmt lögum. Seðlabankinn hafði ótvíræða heimild en ekki skyldu til ákvörðun- ar hámarksvaxta samkvæmt þeim Seðlabankalögum, sem í gildi vom á þeim tíma. Það er hlutverk lög- gjafans en ekki Seðlabankans að tryggja það, að refsiheimildir séu jafnan í samræmi við þá stjóm- sýslulöggjöf, sem bankanum er ætlað að starfa eftir. Seðlabankinn hafði raunar ástæðu til að ætla, að 3. gr., sbr. 2. mgr. 6. gr. okurlaga, mundi nægja sem refsiheimild, og var í fullkomlega góðri trú í starfí sínu lögum samkvæmt, þótt niður- staða Hæstaréttar yrði sú að gera meiri kröfur um skýrleika refsi- heimilda en ætla mátti að þyrfti eftir 3. gr. okurlaga. Dómur Hæstaréttar leiðir í ljós verulega réttaróvissu við beitingu okurlaga samhliða hinni nýju bankalöggjöf, sem miðast við gjör- breyttar forsendur. Er af þeim ástæðum fyllilega tímabært að móta heilstæða löggjöf um vaxta- mál og refsiheimildir til samræmis við réttarþróun síðari ára og eyða þar með umræddri réttaróvissu. GENGIS- SKRANING Nr. 244 - 23. desember 1986 Kr. Kr. Toll- Eín.Kl.09.15 Kaup Sala gengi Doiiari 40,610 40,730 40,520 SLpund 57,879 58,050 58,173 Kan.dollari 29,506 29,593 29,272 Dönsk kr. 5,4147 5,4307 5,4225 Norsk kr. 5,3978 5,4137 5,3937 Sænskkr. 5,8915 5,9089 5,8891 Fi.mark 8,3354 8,3600 8,2914 Fr.franki 6,2443 6,2628 6,2492 Beig. franki 0,9848 0,9878 0,9846 Sv.franki 24,4344 24,5066 24,5799 Holi.gyllini 18,1254 18,1790 18,1135 V-þ. mark 20,4891 20,54% 20,4750 Ítlira 0,02954 0,02962 0,02953 Austurr. sch. 2,9101 2,9187 2,9078 Port. escudo 0,2739 0,2747 0,2747 Sp.peseti 0,3030 0,3039 0,3028 Jap.yen 0,24956 0,25030 0,25005 Irsktpund 55,709 55,873 55,674 SDR(Sérst.) 49,1443 49,2892 48,9733 ECU,Evrtpum.42,63643 42,7624 42,6007 Belg.franki 0,9740 0,9769

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.