Morgunblaðið - 24.12.1986, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
Eins og sjá má eru þrengslin orðin mikil í gömlu versluninni.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Grindavík:
Kaupfélagið byggir 870 fm verslunarhus
Grindavík.
STJÓRN Kaupfélags Suðurnesja hefur ákveðið að
byggja 870 fermetra verslunarhús undir starfsemi sína
í Grindavík á næsta ári.
Nýja verslunin á að rísa ofan við Félagsheimilið Festi
og verður að stærstum hluta ætluð undir matvöru, hrein-
lætisvöru og búsáhöld en einnig verður gott lými fyrir
byggingarvörudeildina og lagera.
Stefnt er að verslunin verði fokheld næsta sumar en
áætlað er að taka hana i notkun í byijun næsta vetrar.
Gamla verslunin er 280 fm og orðin allt of lítil. Áður
var jám- og byggingavörudeildin í sama húsnæði og var
þá mjög þröngt um matvöruna. Fyrir fimm árum flutti
byggingavörudeildin í 115 fm timburhús sem reist var til
bráðabirgða fyrir þann hluta verslunarinnar en allur lager
hefur verið í Keflavík nú í seinni tíð.
Að sögn Gunnars Sveinssonar kaupfélagsstjóra hefur
bæjarfógetaembættinu í Grindavík verið boðið að kaupa
húsnæði gömlu verslunarinnar undir sína starfsemi i
Grindavík.
Kr.Ben.
Byggingavörudeild Kaupfélags Suðumesja hefur
verið f þessu bráðabirgðahúsnæði f 5 ár.
Matvöruverslun Kaupfélags Suðumesja sem orðin
er alltof UtU.
Skákþrautir
Skák
Margeir Pétursson
Ef einhveijir verða í vandræð-
um með að drepa tímann yfir þá
löngu jólahelgi sem framundan
er eru hér sex skákdæmi fyrir
lesendur til að spreyta sig á. Að
venju birtast lausnimar í Morgun-
blaðinu milli jóla og nýárs.
Þrautimar em allar hæfílega
þungar, flestir ættu að geta leyst
þær, en tíminn sem það tekur fer
auðvitað eftir því hversu vanir
menn em að kljást við skákþraut-
ir.
Um þessi dæmi er það að segja
að fyrsta dæmið er óvenjulegt að
því leyti að það kom upp í tefldri
skák. Hvítu frípeðin em komin
það langt að svartur virðist góður
að sleppa með jafntefli, en samt
sem áður tókst honum að þvinga
fram vinning.
Dæmi nr. 2 er tekið úr júgó-
slavnesku alfræðibókinni um
peðsendatöfl. Hvíti kóngurinn er
ansi langt frá kóngsvængnum þar
sem hans er þó brýn þörf.
Dæmi nr. 3 og 4 em svokölluð
tvíleiksdæmi þar sem hvítur á að
leika, og eftir svar svarts verður
hann að máta. Þetta virðist ekki
flókið, en það tekur tíma að úti-
loka alla möguleika.
Dæmi nr. 5 og 6 eru bráð-
skemmtileg endatöfl. í þeim
báðum er hvítur liði undir en lum-
ar á stórhættulegum frípeðum.
Það sem hann þarf að gera er að
afvegaleiða menn svarts þannig
að honum takist ekki að koma í
veg fyrir að frípeðin komist upp
í borð og verði að manni. Það er
rétt að minna á að í öllum skák-
dæmum nægir ekki bara að
komast á sporið, lausn dæmisins
byggist á því að fínna vinning
gegn beztu vöm svarts.
Eg óska lesendum gleðilegra
jóla og góðrar skemmtunar.
3. Höf. H. Ahues 1985. 6. Höf. F. Bondarenko og A.P.
Hvítur mátar í öðrum leik. Kuznetsov 1967.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Milenkovic — Stankovic, 4. Höf. F. Fleck 1984.
Júgóslavíu 1970. Hvítur mátar í öðrum leik.
Svartur leikur og vinnur.
2. Höf. Dawson 1924.
Hvítur leikur og heldur jafn-
tefli.
5. Höf. L. Prokosh 1949.
Hvítur leikur og vinnur.
DANSK JULEGUDSTJÆNESTE
i Domkirken den anden juledag kl. 17.00.
DÖNSKJÓLAGUÐSÞJÓNUSTA
i Dómkirkjunni annan í jólum kl. 17.00.
De danske foreninger.