Morgunblaðið - 24.12.1986, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1986
#
♦
i
♦
%
§
i
m
m
Eggert
Örn
Siggi
Laddi
Edda
Halll
1987
Nú gerum við fyrsta kvöld ársins að
því ógleymanlegasta á öllu árinu 1987
Á nýársfagnaðinum í Súlnasal fögnum við
árinu með spauglandsliði íslands — svo
ekki sé minnst á veitingarnar og hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar.
Dagskrá kvöldsins:
Skemmtidagskrá.
Spauglandslið íslands með frábæra skemmti-
dagskrá.
Húsið opnað kl. 19.00 með fordrykk, fjórréttað-
urkvöldverður, ásamt drykkjarföngum með mat.
Dans
Verð miða
kr. 5.500,-
Forsala aðgöngumiða hefst 8. des. og verðuralla virka daga
íanddyri Súlnasalar frá kl. 16-19, síminn þar er20221.
LúxustilboA: Öllum nýársgestum býðst
gisting í hinni glæsilegu nýju álmu hótels-
insfyriraðeins. 1.595 krónurámann. II |“^I I IF"
Miðað við gistingu í tveggja manna her- | J |^| jj j| J|jp
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur:
Mótmælir frumvarpi
um virðisaukaskatt
STJÓRN Verzlunarmannafélags
Reykjvíkur hefur samþykkt
ályktun þar sem frumvarpi um
virðisaukaskatt er mótmælt, m.a.
á þeirri forsendu að skatturinn
muni leiða til umtalsverðra al-
mennra verðhækkana.
Alyktunin hljóðar svo: „Stjórn
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
vísar til fyrri njótmæla félagsins
vegna áforma stjómvalda um að
taka upp virðisaukaskatt, sem
koma á í stað núverandi söluskatts
samkvæmt frumvarpi, sem liggur
fyrir Alþingi.
Með kerfisbreytingunni er gert
ráð fyrir mun flóknara og kostnað-
arsamara kerfi en nú er og mun
öll skriffínnska margfaldast.
Það sem skiptir þó mestu máli
er að kerfísbreytingin, skv. frum-
varpinu, mun leiða til umtalsverða
almennra verðhækkana. Sú hækk-
un kæmi harðast niður á þeim, sem
minnstar tekjur hafa og nota þurfa
stærstan hluta tekna sinna til allra
brýnustu þarfa, þ.e. matarkaupa.
Þá er gert ráð fyrir verulegri til-
færslu á skattbyrði frá atvinnu-
rekstrinum yfír á launþega.
Núverandi söluskattskerfí er
stórgallað og býður upp á margar
undankomuleiðir í skattskilum. Það
er því brýnt að bæta úr því.
Stjóm Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur leggur hins vegar
þunga áherzlu á að nauðsynlegar
breytingar á núverandi kerfí verði
ekki keyptar því verði að almenn
skattbyrði verði þyngd og það mest
hjá þeim, sem minnstar tekjur hafa.
Slíkum áformum mótmælir stjóm
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
harðlega."
Jöklakórinn á Snæfellsnesi, en hann mun syngja í Landinu helga
UÚ um jólin.
Sönghátíð í
Stykkishólmi
- Jöklakórinn syngnr í Landinu helga
Stykkishólmi.
JÖKLAKÓRINN á Snæfellsnesi
er ánægjuleg tilbreyting i svartasta
skammdeginu, en hann er sam-
runi kirkjukóra á norðanverðu
Snæfellsnesi. Hefir honum verið
boðið að syngja við hátíðlegar
athafnir i Landinu helga um jól-
in. MikiII undirbúningur er nú
að baki. Hver helgi af annarri
hefur farið í stöðugar æfingar
víðsvegar á Nesinu. Búningar
hafa verið útbúnir í tilefni þess-
arar ferðar og eru þeir tilkomu-
miklir.
Eldraunin í æfingum er að ljúka.
Margir hafa orðið til að styrkja
kórinn til þessarar ferðar. Kórfélag-
ara hafa gefið út myndarlegt
jólakort sem Smári Lúðvíksson
Hellissandi hefur teiknað mjög
smekklega. Þá var komið á happ-
drætti sem gekk vel. Auk þessa
hefir margt verið gert til að gera
kórnum þessa för mögulega.
Laugardaginn 13. desember sl.
efndi kórinn til söngskemmtunar
hér í bamaskólahúsinu í Stykkis-
hólmi og bauð velunnurum sínum
til þessarar hátíðar sem bæði var
virðuleg og skemmtileg. A dag-
skránni voru 19 lög bæði innlend
og erlend og kórfélagar voru 38 sem
sungu. Stjómendur voru þau Jó-
hanna Guðmundsdóttir organisti við
Stykkishólmskirkju og Ronald V.
Turner organisti í Grundarfirði.
Hófst söngskemmtunin með því að
kórinn söng lag við Ijóð Einars
Steinþórssonar í Stykkishólmi sem
ort var í tilefni þessarar farar. Síðan
ávarpaði fararstjórinn sr. Jón Þor-
steinsson Grundarfírði gesti og
þakkaði veittan stuðning og upp-
örvun í erfiðu undirbúningsstarfi.
Gat hann einnig um tildrög ferðar-
innar og kvað eftirvæntingu þátt-
takenda mikla.
Síðan voru sungin lög þau sem
voru á dagskránni en á eftir varð
kórinn við mikinn fögnuð að syngja
aukalög og endurtaka ljóð Einars.
Þessi sönggleði var sönn og
skemmtileg enda fór það ekki fram
hjá neinum hve söngurinn náði tök-
um á fólkinu. Þetta var sannarlega
ánæguleg stund. Ég er ekki í vafa
um að þetta hefír mikinn byr og
áhrif á kirkjusöng hér á Snæfells-
nesi á komandi tímum og margt
hafa kórfélagar lært af þessu öllu.
Söngmálastjóri kirkjunnar hefír og
verið mjög hjálplegur. Þá má ekki
gleyma Ingveldi Hjaltesteð söng-
konu sem verður með í fórinni en
hún hefir þjálfað kórinn í nokkur
skipti.
- Arni
Leiðrétting1
í FRÉTT Morgunblaðsins á sunnu-
dag um útflutning Lagmetisiðjunn-
ar Garði hf. slæddist inn villa. Sagt
var að beitukóng mætti veiða í litlu
magni innan fjarða, en þar átti að
sjálfsögðu að standa í miklu
magni. Þetta leiðréttist hérmeð.
I