Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 3 Lottómiðar fyr- ir 45 milljónir „ÞÁTTTAKAN í Lottóinu hefur verið framar öllum von- um,“ sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri íslenskrar getspár. Vilhjálmur sagði að lottómiðar fyrir tæpar 44 milljónir hefðu selst á síðasta ári, þegar leiknar voru fimm umferðir. Þar að auki hefðu verið seldir miðar sem gilda fleiri vikur fram í tímann fyrir rúmlega eina milljón króna. „Þeir sem kaupa slíka miða eru gjarnan sjómenn eða ferðalangar sem eru fjarri heimili sínu í lengri tíma,“ sagði Vilhjálm- ur. „Af sölunni fer 40% í vinninga og við greiddum á síðasta ári nærri átján milljónir til vinningshafa." Á næstunni verður bætt við fleiri sölustöðum á landsbyggðinni og sagðist Vilhjálmur búast við að þá yrði þátttakan enn meiri. Um og eftir næstu helgi verður tíu sölu- stöðum bætt við, fímm á Snæfells- nesi, og einum á Hellu, Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri og Höfn. Þá verða fljótlega settar upp tvær lottótölvur á Húsavík. „Þegar þessi viðbót er komin verða sölustaðir alls um 140, þar af 50-60 utan höfuðborgarsvæðisins,“ sagði Vil- hjálmur. „Þá ætlum við að kanna hvort grundvöllur er fyrir enn frek- ari fjölgun sölustaða." í síðustu leikviku voru 81 þúsund lottómiðar afgreiddir og sagðist Vilhjálmur halda að yfirleitt notaði hver þátttakandi ekki marga seðla. „Við reiknum með að milli fímmtíu og sextíu þúsund manns hafi keypt þessa 81 þúsund seðla og höfum ekki heyrt talað um að einstakling- ar noti háar upphæðir til kaupanna. Hæsta talan sem ég hef heyrt eru 6300 krónur fyrir tíu talna kerfis- seðil með jafngildi 252 raða.“ Síldarverksmiðjan á Skagaströnd: ÖjTZDÍ Sluppu naum- lega úr brenn- andi bíl Vogum, Vatnsleysuströnd. ÞRJÚ ungmenni sluppu naum- lega úr bíl, sem eldur kom upp í í Vogum í vikunni. Ungmennin fundu brunalykt og þegar farið var að athuga hvaðan lyktin kom sást reykur aftan í bílnum. Þá var bíllinn stöðvaður og fóru ungmennin út úr honum. Pilt- amir opnuðu skottlok bílsins og sáu þá eld undir aftursætinu.Er þeir ætluðu að lyfta aftursætinu bloss- aði upp mikill eldur og varð bíllinn alelda á svipstundu. Ejrjólfur Kolahræra blandaðist p* i • •••!• fiskimjoli TILRAUNIR með að nota kolahræru í stað olíu, sem eldsneyti til þurrkunar i síldarmjölsverksmiðjum, voru gerðar á Skagaströnd síðastliðið sumar, en mistók- ust vegna þess að kolaryk blandaðist síldarmjölinu. Kolahræra þessi er búin til úr mjög fínt möluðum kolum sem blönduð eru með vatni að tæpum þriðja hluta, þannig að úr verður hægfljótandi efni sem hægt er að dæla eins og svartolíu. Kolahræra hefur verið notuð erlendis meðal annars við malbikunarþurrkun. Hugmyndir um að reyna kola- hræru í síldarmjölsverksmiðjum vöknuðu á tímum háa olíuverðs- ins, að sögn Jóns Reynis Magnús- sonar forstjóra Síldarverksmiðja ríkisins, en tilraunir voru gerðar í sumar í verksmiðjunni á Skaga- strönd. Jón sagði að kolin hefðu síðan ekki brunnið nægjanlega vel í eld- hólfi og því barst kolaryk með upphituðu lofti inn í þurrkara og blandaðist þar við sfldarmjölið. Jón sagði það ljóst að ef kolahrær- an ætti að koma að einhverju gagni þyrfti að breyta þurrkurun- um verulega og þar sem olíuverð hafði lækkað þegar þetta varð ljóst, hefði hugmyndin verið lögð á hilluna. Gert við Skógar- foss í Gautaborg- SKÓGARFOSS var losaður í Gautaborg í gær og verður tek- inn í slipp þar í dag. Skipið steytti á skeijum í Osló- fírði, göt og dældir komu á botninr. og er gert ráð fyrir að viðgerð verði lokið 20. janúar. Kynningarþjónustan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.