Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 22
22__________
Suður-Afríka
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987
Dagblöð birta auglýs-
ingu í trássi við bann
75 ár frá stofnun Afríska þjóðarráðsins
Jóhannesarborg, AP.
DAGBLÖÐ í Suður-Afríku birtu
í gær heilsíðuauglýsingu þar sem
þess er minnst að 75 ár eru liðin
frá því Afríska þjóðarráðið var
stofnað og hvatt til þess að starf-
semi samtakanna verði heimiluð.
Tutulíktvið
töfralækni
Melbourne, AP.
DESMOND Tutu, erkibiskup,
gerði lítið úr gagnrýni, sem hann
hefur orðið fyrir i Ástralíuferð
sinni, en háttsettur embættis-
maður i Viktoríuríki rak fulltrúa
hans á dyr og líkti Tutu við
galdralækni.
Embættismaðurinn, Bruce Rux-
ton, sagði að Tutu gerði fátt annað
á ferðum sínum en að ala á kyn-
þáttahatri, auk þess sem hann væri
haldinn fjölmiðlafíkn og notaði
hvert tækifæri sem gæfíst til að
iáta á sér bera. Tilgangur Ástralíu-
ferðarinnar væri sá hinn sami, að
ala á sundrungu meðal fólks af ólík-
um litarhætti.
Ummæli Ruxtons hafa mælst
misjafnlega vel fyrir og Peter Spy-
ker, menntamálaráðherra Viktoríu,
sagði hann ekki tala í nafni ríkis-
ins. Tutu sagði að stundum óskaði
hann sér að vera galdralæknir til
að geta „sett illa anda í suma
menn". Tutu sagðist þó ekki mundu
setja illa anda í Ruxton, sem hefði
fullan rétt á að hafa sínar skoðanir
á mönnum og málefnum. Væntan-
lega væru þó fáir sammála Ruxton,
nema þá helzt félagar í Klu Klux
Klan.
Að sögn lögregluyfírvalda er nú
verið - að rannsaka hvort birting
auglýsinganna btjóti í bága við lög.
Skýrsla um málið verður afhent
saksóknara sem mun taka ákvörðun
um hvort ákæra verður gefin út.
í auglýsingunni, sem birtist í 22
dagblöðum, voru ríkisfjölmiðlar í
Suður-Afríku og upplýsingaskrif-
stofa stjórnarinnar harðlega
gagnrýnd fyrir að hafa dreift
„óhróðri" og „upplognum" fréttum
um Afríska þjóðarráðið. Þá var
þess einnig krafíst að samtökunum
verði heimiíað að starfa -4 opin-
berum vettvangi og birt ávarp sem
Nejson Mandela flutti árið 1964.
í auglýsingunni gat að líta mynd
af Mandela og Oliver Tambo, for-
seta samtakanna. Samkvæmt
lögum er óheimilt að birta myndir
af Mandela sem dæmdur var til að
sitja í fangelsi til æviloka.
Framkvæmdanefnd samtakanna
sendi í gær frá sér yfirlýsingu í til-
efni 75 ára afmælisins þar sem
segir að Pretoríustjómin hafí misst
öll tök á landinu og að ijölmargir
hvítir menn hafí nú gert sér grein
fyrir því að kynþáttaaðskilnaðar-
stefnan hljóti að líða undir lok. Þá
segir ennfremur að markmiðið hljóti
að vera að koma á fót byltingar-
hreyfmgu blökkumanna í bæjum
og borgum.
Afríska þjóðarráðið var sett á
stofn árið 1912. Stjóm hvíta minni-
hlutans í Suður-Afríku bannaði
starfsemi samtakanna árið 1960
eftir blóðug átök í Sharpeville þeg-
ar lögreglumenn myrtu 67 blökku-
menn. Höfuðstöðvar Afríska
þjóðarráðsins eru í Lusaka, höfuð-
borg Zambíu.
Hártogun
HELJARMENNIÐ Letuchumanan, sem yddar
blýanta á borgarskrifstofum Kuala Lumpur,
höfuðborg Malasíu, vann það afrek í síðustu
viku að draga áætlunarvagn með 25 farþegum
20 metra vegalengd. Taug var bundin í hár
heljarmennisins sem tók þegar á rás. Bifreiðin
ásamt farþegum var rúm sex tonn að þyngd.
Aðdáendur Letuchumanans fylgdust með fullir
lotningar og sjónvarpsmenn festu atburðinn á
filmu.
Afganistan:
Aðeins einn skæruliðafor-
ingi samþykkir vopnahlé
Washington, Islamabad, AP.
TALSMAÐUR bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins sagði á
miðvikudag, að Bandaríkjastjórn
vonaðist til þess að Sovétmönn-
um væri alvara, þegar þeir
segðust reiðubúnir til að kalla
heim 115.000 hermenn sína frá
Afganistan.
Talsmaðurinn, Phyllis Oakley,
sagði stjórnina reikna með því, að
Vetrarríki læsir kulda-
tönnum í Skandinavíu
Stokkhólmi. Reuter.
ÓVENJUMIKLIR kuldar hafa
verið í Svíþjóð að undanförnu,
og í Finnlandi muna menn ekki
harðari vetur frá því í Vetrar-
stríðinu við Sovétríkin árið 1940.
Norskir veðurfræðingar búast
við, að á næstu dögum falli aldar-
gamalt kuldamet í Finnmörku, við
landamæri Sovétríkjanna, þar sem
hitinn féll niður í 4-46 gráður C í
fýrradag, aðeins fímm gráður frá
metinu.
Rafmagnsnotkun sló öll met,
þegar hitinn fór niður í 21 stigs
frost í Stokkhólmi, en þá mældist
metkuldi fyrir norðan norðurheim-
skautsbaug, 4-52 gráður C.
Hótelbruninn í Puerto Rico:
Rýma varð spítalann
vegna sprengjuhótunar
San Juan, Puerto Rico.
RANNSÓKNARAÐILAR segjast
enn vera að reyna að komast að
því, hveijir séu ábyrgir fyrir
hótelbrunanum i San Juan á
Puerto Rico á gamlárskvöld, þar
sem 96 manns fórust og yfir 140
slösuðust.
Á miðvikudaginn varð að flytja
hundruð sjúklinga á brott af spítal-
anum, þar sem fómarlömb brunans
á Dupont Plaza-hótelinu eru til
meðferðar, vegna þess að sprengju-
hótun hafði borist spítalayfirvöld-
um. Sams konar hótun barst til
veitingahúss, þar sem forráðamenn
hótelsins hafa komið upp skrifstofu-
aðstöðu til bráðabigða, svo og til
fímm annarra staða í borginni.
Ekkert sprengiefni fannst á nein-
um þessara staða, og lögreglan
sagðist ekki hafa neitt í höndunum
um, að samband væri milli hótan-
anna og hótelbrunans.
í bænum Luleá, þar sem sólar
nýtur í aðeins þijá og hálfa klukku-
stund á dag, eru glóðarker höfð á
götum úti til þess að vegfarendur
geti omað sér.
Á síðustu dögum hefur orðið að
loka sumum pósthúsum í .Svíþjóð
og miklar tafír hafa orðið í járn-
brautarsamgöngum. Símalínur
vom glóandi hjá sænska útvarpinu
eftir útsendingu þáttar, sem fjallaði
um það, hvemig bregðast ætti við
kuldanum. Meðal annars var fólki
ráðlagt að forðast rakstur og sápu-
þvott í því skyni að varðveita
húðfítuna.
En þrátt fyrir heljarkuldann í
Skandinavíu segja veðurfræðingar,
að ástandið hafi verið verra. Arið
1595 og 1638 fraus sjórinn í höfn-
inni í Miðjarðarhafsborginni
Marseilles, og 1602 lagði ána Guad-
alquivir við Sevilla í Andalúsíuhér-
aði á Suður-Spáni.
Sovétmenn legðu fram tillögur á
samningafundum Pakistana og
Afgana sem fram verður haldið á
vegum Sameinuðu þjóðanna í Genf
í febrúar. Sagði hún að Bandaríkja-
stjóm myndi fara vel yfír öll
smáatriði tillagnanna áður en gefn-
ar yrðu frekari yfirlýsingar, en ljóst
væri að skipulagning heimflutnings
herliðs Sovétmanna frá Afganistan
yrði aðalmálið.
Utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, Eduard Shevardnadze, og
Najibullah, leiðtogi kommúnista-
stjórnarinnar í Afganistan, gáfu út
sameiginlega yfirlýsingu í lok heim-
sóknar Shevardnadze til Kabúl,
höfuðborgar iandsins, nú fyrir
skömmu. Þar sögðust þeir vilja að
6 mánaða vopnahléi verði komið á
í landinu frá og með 15. janúar og
að tíminn verði notaður til að binda
enda á styrjöldina sem geisað hefur
í landinu undanfarin ár. Yrði þá
m.a. samið um heimkvaðningu sov-
ésku hermannanna.
Samtök helstu skæruliðahreyf-
inganna er beijast í Afganistan
hafa hafnað tilboði um vopnahlé
og segja að fyrst þurfi að kalla
sovésku hermennina heim. Einn
skæraliðaforingi, Jalaladin Haqq-
ani, frá Paktia-héraði í austurhluta
Pakistans, sagði á fréttamanna-
fundi í Islamabad í Pakistan í gær,
að hann vildi taka boðinu um vopna-
hlé og semja síðan við Sovétmenn,
en ekki kæmi til greina að ræða
við leppstjóm þeirra í Kabúl.
Ástralía:
Rændi verslanir
vopnaður sprautu
Björgunarmenn leita i rústum aðalhæðar Dupont Plaza-hótelsins í
San Juan á föstudag.
Sydney, Reuter.
Heróínneytandi ruddist inn í
tvær verslanir í Sydney í gær og
hótaði að sprauta starfsfólkið
með alnæmissýktu blóði ef það
afhenti honum ekki peningana í
búðarkassanum.
Maðurinn, sem er 24 ára gam-
all, raddist inn í verslun með
sprautu í hönd sem hann sagði inni-
halda sýkt blóð úr sjálfum sér.
Hann komst undan með rúmar
3.000 krónur. Skömmu síðar hugð-
ist maðurinn endurtaka leikinn en
þá tókst miðaldra afgreiðslukonu
að yfirbuga hann.
Maðurinn er sagður þjást af al-
næmi og hefur hann verið ákærður
um vopnað rán, líkamsárás og her-
óínneyslu.