Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 21 Vopnasala Bandaríkjastjórnar til írans: Þingmenn skipa tvær rannsóknarnefndir Greiðslur til Contra-skæruliða horfnar Washington, Reuter, AP. Bandarilgaþing hefur sam- þykkt að skipaðar verði tvær nefndir, sem munu rannsaka vopnasölu Bandaríkjastjómar til írans. Nefndirnar munu hafa víðtæk völd og er líklegt að rann- sókninni ljúki ekki fyrr en seint á þessu ári. Fulltrúadeildin samþykkti í fyrradag með 416 atkvæðum gegn 2 að nefndir skyldu skipaðar og öldungadeildin lagði einnig blessun sína yfir nefndimar með 88 atkvæð- um gegn fjórum. Hins vegar gagnrýndu repúblíkanar valdsvið nefndanna og hversu langur tími mun líða þar til niðurstöður liggja fyrir. Töldu þeir við hæfi að nefnd- imar rannsökuðu eingöngu vopna- sölumálið og hvernig Contra- skæruliðar í Nicaragua nutu góðs af því. Þá hafa þeir einnig áhyggjur af því að mál þetta dragist á lang- inn og hafi áhrif á forsetakosning- amar á næsta ári. Nefndir þessar em um margt líkar þeim sem vom skipaðar er uppvíst varð um Watergate- hneykslið sem varð Richard Nixon að falli. Nú vinna nefndarmenn að undirbúningi yfirheyrslna sem áætl- að er að hefjist um miðjan næsta mánuð. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem nú er á ferð um Afríku, sagði fréttamönnum er hann var á leið til Senegal að greiðslur ótilgreinds „þriðja ríkis" til stuðnings Contra-skæruliðum hefðu horfið af bankareikningum. Shultz vildi ekki láta uppi hvaða ríki þetta væri en sagði að Banda- ríkjastjóm væri umhugað um að greiðslumar kæmust til skila. Full- yrt hefur verið að um 10 milljónir Bandaríkjadala sé að ræða og hafa verið uppi getgátur um að þær hafi komið frá smáríkinu Brunei, sem Shultz heimsótti á síðasta ári. Dagblaðið New York Times skýrði frá því á miðvikudag að stjóm Bru- nei hefði lagt tíu milljónir dala inn á bankareikning Contra-skæruliða í Sviss þann 19. ágúst síðastliðinn. í fréttinni sagði ennfremur að ut- anríkisráðuneytinu hefði ekki verið Noregur: Olíuframleiðslan minnkuð um 7—8% Osló, Reuter. NORÐMENN, annað mesta olíurík- ið á Vesturlöndum, munu líklega fara að dæmi olíuríkjanna í OPEC og draga úr framleiðslunni um 7—8% síðar í mánuðinum í von um að það verði til að hækka verðið. Var þetta haft eftir ónefndum emb- ættismönnum. Þrátt fyrir fyrirhugaðan sam- drátt mun olíuframleiðsla Norð- mannanna verða meiri á þessu ári en í fyrra vegna þess, að síðar á árinu verða tekin í notkun ný olíu- svæði. Samt vonast stjómin til, að minni framleiðsla á fyrri hluta árs- ins hafi þau sálrænu áhrif, að verðið hækki eitthvað. Talsmenn olíufé- laganna, sem sjá um vinnsluna í Norðursjó, segja, að til að hefja aftur vinnslu á þeim svæðum, sem hafa verið lögð til hliðar í bili, megi verðið ekki vera minna en 20 dollar- ar fyrir tunnuna. Norðmenn, sem framleiða rúm- lega einn milljarð olíutunna á dag, minnkuðu framboðið um 10% í nóv- ember og desember með því að geyma hjá sér olíuna en nú er birgðarýmið á þrotum. Ame Öien, olíu- og orkumálaráðherra, hefur sagt, að Norðmenn séu fúsir til samstarfs við OPEC-ríkin en það á hins vegar ekki við um Breta, sem framleiða 2,6 milljarða tunna á dag og em mesta olíuframleiðsluþjóð á Vesturlöndum. tilkynnt um greiðslur þessar fyrr en nokkrum mánuðum síðar og að þá hefðu þær horfið af reikningun- um. Holland: Gullbrúð- kaup Júlíönu og Bernhards Frá Eggert H. Kjajrtssyni fréttaritara Morgunbladsins í Hollandi. GULLBRÚÐKAUP Júlíönu, fyrr- verandi Hollandsdrottningar og Bernhards prins, var haldið hátí- ðlegt nú í vikunni. í tilefni þess voru m.a. gefin út frímerki til heiðurs þeim hjónum og einnig var stofnaður sérstakur sjóður til að safna í fyrir afmælisgjöf handa þeim. Gjöfin verður af- hent þann 30. apríl næstkomandi eða á afmælisdegi prinsessunn- ar. Gert er ráð fyrir að minnsta kosti 18 milljónir króna safnist fyrir þann dag. Bernhard prins, sem er þekktur fyrir störf sín fyrir alþjóðanáttúru- vemdarsjóðinn, hefur ákveðið að gefa sinn hlut þessarar peninga- gjafar til kaupa á sérstökum vögnum sem verði innréttaðar með kynningu á starfsemi sjóðsins í huga. Ætlunin er síðan að þessir vagnar aki um Holland og kynni mikilvægi náttúruvemdar og þá sérstaklega þeirra tegunda dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu. Júlíana hefur ákveðið að gefa sinn hluta fjármagnsins til kaupa á vögnum sem verði innréttaðir sér- staklega fyrir fatlaða íþróttamenn og aki þeim á mót sem eru haldin sérstaklega fyrir þá. T AP/Símamynd Ronald Reagan ráðfærir sig hér við Frank Carlucci, sem tók við starfi öryggisráðgjafa af John Poindexter, eftir að forsetinn kom af sjúkrahúsi eftir aðgerð á blöðruhálskirtli. Reagan útskrifastaf Bethesda Washington. AP. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti var glaður í bragði, þegar hann útskrifaðist af Beshesda-sjúkrahúsinu í gær. Hann tekur þegar til starfa að hluta til. Reagan var útskrifaður þremur dögum eftir að hann gekkst und- ir aðgerð á blöðruhálskirtli, og sagðist hann vera „fjallhress", þegar hann yfírgaf spítalann. Þegar fréttamenn spurðu, hvort hann væri orðinn nógu góður til að snúa aftur til starfa, svaraði hann: „Að sjálfsögðu; og reyndar hætti ég aldrei." Læknar forsetans sögðu, að hann hefði náð sér ágætlega eftir aðgerðina „á öllum sviðum". Það gleður mitt gamla hjarta, hve margir heim- sóttu mig eða sendu mér kveðjur á nírœðisaf- mcelinu siðastliðinn nýársdag. Um leið og ég þakka þeim öllum vináttuna, lœt ég fylgja óskir um farsœlt komandi ár. HuldaÁ. Stefánsdóttir. Innilegustu þakkir fyrir heimsóknir, gjafir og heillaskeyti á 95 ára afmœlisdegi mínum þann 20. desember sl. Sérstakar þakkir fœri ég barnabörnum minum, sem héldu mér veglega afmœlisveislu á Hótel Loftleiðum. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Gísladóttir, Kambsvegi 11. Evren hvetur Tyrki til að sameinast gegn bók- staf strúarmönnum Ankara, Tyrklandi, AP. KENAN Evren, forseti Tyrk- lands, hvatti landsmenn sína til að sameinast gegn bókstafstrú- armönnum, hverra boðskapur væri ,jafn hættulegur og kommúnisminn“. Evren Iét þessi orð falla í ræðu, sem hann flutti í háskólanum í borginni Adana í gær, þar sem hann sagði að það væri aftaurhvarf til forneskju að konur vefðu hár sitt í slæður og klúta. Tyrkneskir strangtrúarmenn vilja fara í einu og öllu eftir bók- stafnum og hafa verið uppi deilur í landinu vegna framgöngu þeirra að undanförnu. „Ég hvet alla þjóð- ina til að sameinast gegn þeirri hættu, sem felst í þeim áróðri að við ættum að hverfa aftur til þess ástands, sem var ríkjandi fyrir daga Kemal Atatúrk," sagði Evr- en. Evren hélt ræðu sína aðeins nokkrum stundum eftir að í gildi gengu lög, sem banna tyrknesk- um háskólakonum að sveipa höfuð sitt slæðu í samræmi við trúarbók- staf. Deilur um klæðaburð tyrkne- skra kvenna hafa staðið um hríð en uppúr sauð 24. desember sl. er yfirstjóm tyrknesku háskól- anna gaf út tilskipun um klæða- burð, þar sem lagt var bann „við hverjum þeim skrúða, sem ekki væri nútímamönnum boðlegur". Námsmönnum var jafnframt bannað að klæðast gallabuxum og láta sér vaxa skegg. Brot gat haft í för með sér brottrekstur úr skóla, sagði í tilskipuninni. Mótmælaaðgerðir sigldu í kjöl- farið, þar sem námskonur héldu því fram að trúin krefðist þess af þeim að þær hyldu hár sitt þegar þær væru meðal karl- manna. Foreldrar þeirra og strangtrúaðir námsmenn tóku þátt í aðgerðunum. Námsfólkið leitaði árangurslaust til forsætis- ráðherra, forseta landsins og forseta tyrkneska þingsins. Turg- ut Ozal, forsætisráðherra, sagðist reyndar hafa samúð með náms- konunum og sagði það út í hött að verið væri að hverfa aftur til fomeskju þótt þær vefðu hár sitt slæðum. Fjórir námsmenn eru í hungurverkfalli til að leggja áherzlu á kröfur strangtrúar- manna. Blaóburóarfólk óskast! ÚTHVERFI Hvassaleiti Efstasund frá 60-98 GRAFARVOGUR KÓPAVOGUR Kársnesbraut 57-139 og Hafnarbraut Holtagerði frá 18-82 Krosshamar VESTURBÆR Aragata o.fl. AUSTURBÆR Ingólfsstræti Drápuhlíðfrá 1-24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.